Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Page 6
6
DV. FIMMTUDAGUR 29. MARS1984.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Starfsfólkið á nýjustu kránni i Reykjavik sem opnuð var fyrir skömmu og ersniðin eftir enskri fyrirmynd.
B m Verðkönnun á „bjór”:
MJOG SVIPAÐ VERD
Á BJÓRLÍKINU
Enn sem komið er verðum við að búa við það að fá bjóriiki á börunum hér á
landi. Margir telja nú að það breytti ekki miklu að hafa alvörubjór i þessu
glasi hérá myndinni. DV-mynd E.Ó.
„Er ekki leyfilegt að selja bjór hér á
Islandi?” sagði erlendi ferðamaðurinn
undrandi. „Nei, það er bannaö sam-
kvæmt lögum,” sagði Islendingurinn.
„En hafðu engar áhyggjur, það eru
ýmsar leiðir til að komast yfir góðan
bjór. I fyrsta lagi er hægt aö brugga
bjórinn sjálfur. Hér eru verslanir sem
selja allar græjur sem til þarf fyrir
bjórbruggun, en þaö er nú fremur sein-
legt. I öðru lagi hafðir þú möguleika á
því að kaupa 12 bjóra þegar þú varst
staddur í fríhöfninni. Allir sem koma
hingað til landsins eiga kost á því aö
taka með sér ákveðiö magn af bjór í
landið. En þessar 12 dósir duga
skammt ef þú ætlar að staldra við hér í
nokkum tíma. En það eru til ráð við
því ef þú veröur uppiskroppa meö bjór-
inn. Hér á landi er bjór seldur á
svörtum markaði. Yfirleitt eru þaö
farmenn sem sjá um aö koma þessum
bjór til landsins. Eg hef sambönd svó
ég get reddaf bjór ef þú þarft á aö
halda. Hann er ekki svcýkja dýr. Einn
kassi kostar 1300—1500 krónur. Þér
finnst þaö að sjálfsögðu vera nokkuð
dýrt en miöaö við aðstæður er þetta
nokkuð sanngjamt verð. Heyrðu, ég
var næstum búinn að gleyma því að
hér í Reykjavík getur þú fengiö svo-
kallað bjórh'ki á flestum vínveitinga-
stöðunum. Nú um þessar mundir eru
starfandi tvær bjórkrár sem bjóða upp
á bjórh'ki. Forráðamenn þessara staða
vilja ekki gefa upp hvemig þetta bjór-
hki er búiö til og hvíhr yfirleitt mikil
leynd yfir uppskriftinni. Eg hef
reyndar ekki smakkað á þessu bjórliki
en kunnugir segja að þaö bragðist
ágætlega. Sumir efast um hvort það sé
nógu áfengt og segja þetta vera hálf-
gertgutl.”
Við þurfum ekki að halda þessari
sögu áfram. Það fylgir reyndar að hinn
erlendi ferðamaður varö ákaflega
undrandi yfir þessar frásögn Is-
lendingsins en hann varð einnig yfir
sig ánægður þegar honum varð ljóst að
dvöl hans á Islandi ætti ekki eftir að
verða bjórlaus með öllu. Ferðamaöur-
inn spurði reyndar hvers vegna bjór
væri bannaður samkvæmt lögum en
því átti Islendingurinn erfitt með að
svara. Hann gat þó sagt honum að það
væri orðið nokkuð ljóst að allmargir
Islendingar væru því fylgjandi að bjór
(alvörubjór) yrði seldur á veitinga-
stöðum og í Ríkinu þar sem börn næðu
ekkitilhans.
Ferðamaðurinn, sem kom frá landi
þar sem bjór drýpur af hverju strái,
átti erfitt með að setja sig í spor Islend-
inga. Honum fannst þetta bráðfyndiö
en um leiö af ar sorglegt.
Bjórlíki
Nú skulum við kveðja þennan ferða-
mann og snúa okkur að bjórhkinu.
Fyrst við erum búin aö fá bjórhki er
spurning hvort við þurfum nokkuð á
alvörubjór aö halda. Eg sem þetta
skrifa hef ekki bragöað á bjórlíkinu
sem boðið er upp á á öldurhúsunum
hér í bæ. Einu sinni gerði ég tilraun
meö að blanda pilsner saman viö
kláravín en það bragðaðist ekki vel.
En eins og getið var um hér að framan
fullyrða kunnugir að bjóriíkið sé víðast
hvar ágætt á bragðið og þokkalegt að
styrkleika. Bjórhki fæst nú orðið mjög
víða á vínveitingastöðum hér í bæ.
Fyrir skömmu var opnuö önnur bjór-
kráin hér og mun eiga að fara að opna
þá þriðju.
Hvað kostar bjórlíkið
Við höfðum samband við nokkra aðila
sem bjóða gestum sínum upp á bjór-
líkl Ekki tókst okkur þó að ná sam-
bandi við alla þá sem eru með þaö á
boðstólum. Af þeim stöðum sem við
náðum ekki að fá uppgefið verð hjá er
veitingahúsið Oðal, en það bendir
margt til þess að upphaf bjórhkisins
eigi rætur sínar að rekja þangað. Þar
var snemma á boðstólum bjórlíki. Hót-
el Saga byrjaði fyrir tveimur árum að
bjóða gestum sínum upp á bjórhki á
ensku ölstofunni sem þá var opnuö.
En það er ekki fyrr en Gaukur á
Stöng hefur starfsemi sína að fjörkipp-
ur kemst í framleiðslu bjórlíkis. En
snúum okkur nú að verðinu.
Gaukur á Stöng: Þar er í boði bjór-
líki sem hefur átt nokkrum vinsældum
að fagna. Uppskriftin er að sjálfsögðu
algjört leyndarmál eins og hjá öðrum
sem eru í bransanum. Okkur hefur
borist til eyma að ölbollan, eins og hún
nefnist á Gauknum, sé samsett úr
pilsner, vodka, brennivíni og malt-
viskíi. En þetta er að sjálfsögðu bara
getgáta og um hlutföllin vitum við ekk-
ert. Verðið á bjómum þarna virðist
hafa orðið öðrum til fyrirmyndar. Lítið
glas, með 0,3 htrum, kostar 70 kr., 0,41
kosta 90 kr., 0,5 1110 kr. Siðan er hægt
að panta svokallaö stígvél og rúmar
það 2 1 og kostar 440 krónur. Þar var
Verð á svokölluðu
bjórlíki
Gaukur á Stöng:
0,3 1 70 kr.
0,41 90 kr.
0,51 110 kr.
2,01 440 kr.
Pubb-inn Hlóðir:
/0.33 1 80 kr.
0,5 1 110 kr.
1,0 1 220 kr.
Zorba:
0,331 80 kr.
Hótel Saga (enska ölstofan): 0,331 80 kr.
Hótel Borg:
0,251 90 kr.
Hornið (í Djúpinu):
0,361 96 kr.
Gullni haninn:
? 90 kr.
okkur sagt að líkur væru á því að bjór-
líkið ætti eftir að hækka í veröi. Afengi
hækkaði í verði fyrir skömmu sem
getur haft áhrif á verð bjórlikisins.
Ekki er þó öruggt að þessi hækkun eigi
eftir aö eiga sér stað því búist er við að
öl og gosdrykkir eigi eftir að lækka á
næstunni. Ef af þeirri lækkun verður er
jafnvel búist við aö þessar hækkanir og
lækkanir jafni hvor aðra upp þannig að
bjórhkið þurfi liklega ekki að hækka.
Pubb-inn Hlóðir: Glænýr pöbb í
enskum stíl og víst alveg glerfínn.
Leyndardómur hvílir einnig yfir upp-
skriftinni aö „bjómum” þar eins og á
Gauknum. Þar kostar 0,33 lítrar 80
krónur, 0,5 htrar 110 kr. og 1 1
220 krónur. Verðið er mjög svipað því
sem þaö er á Gauknum. Þá er einnig
vert að geta þess að á báðum þessum
stööum er bjórlíkinu pumpaö af þrýsti-
kútum.
Zorba: Þar er hægt að fá bjórlíki á
þrýstikútum og er það einungis selt
með mat. Ein stærð er seld og kosta
0,33 1 80 krónur. Uppskriftin er
leyndarmál.
Hótel Borg: Uppskriftin er að sjálf-
sögöu leyndarmál en 0,25 1 kosta 90
krónur. Bjórlíkið er á þrýstikút.
Horaið: Þar er bjórhki selt í kjallara
staöarins sem nefnist Djúpið. Þetta
bjórlíki er nokkuð frumstætt miðaö við
hin sem nefnd hafa veriö. Gestirnir
geta sjálfir vahð uppskriftina. Hér er
einungis um það aö ræða að blanda
Egils pilsner saman við einhverja vín-
tegund að ósk viðskiptavinarins. 3
sentíhtrar af víni og einn pilsner kosta
96krónur.
Hótel Saga: Þar hefur bjórhki veriö
selt í nokkurn tíma. Uppskriftin er ekki
neitt sérstakt leyndarmál og saman-
stendur hún af vodka, viskíi og pilsner.
Líkið er síöan selt úr þrýstikútum sem
gerir það að verkum að það verður
meira gos í því og froða sem talin er
nauðsynlegur fylgifiskur bjórsins.
Styrkleikinn
Mönnum hefur orðið nokkuð tíðrætt
um styrkleika bjórhkisins. Heyrst hafa
sögur af mönnum sem hafa setið
kvöldlangt við drykkju og ekki fundið
neina breytingu. Þá hafi einnig einn
bjórhkisdrykkjumaður verið stöðvað-
ur við akstur bifreiðar sinnar en ekki
hafi mælst óleyfilegt magn áfengis í
blóði hans, þó hafði hann sporðrennt
nokkmm bjómm. En þetta segja
kjaftasögumar.
Við spurðumst fyrir um styrkleika
bjórhkisins sem boðið er upp á á „bjór-
kránum” hér í bæ. A Gauki á Stöng var
okkur sagt að styrkleikinn væri frá
4,5—5,0 prósent en það væri breyti-
legt vegna þess að styrkleikinn á
pilsnernum væri nokkuö breytilegur
frá tíma til tíma. Pubb-inn Hlóðir býð-
ur upp.á bjórlíki sem ku vera 5 prósent
að styrkleika og jafnvel rétt yfir. A
Gauknum er reynt að halda styrk-
leikanum í 5 prósentum svo á þessum
stöðum virðist styrkleikinn vera sá
sami.
-APH