Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Blaðsíða 6
6 DV. FIMMTUDAGUR 29. MARS1984. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Starfsfólkið á nýjustu kránni i Reykjavik sem opnuð var fyrir skömmu og ersniðin eftir enskri fyrirmynd. B m Verðkönnun á „bjór”: MJOG SVIPAÐ VERD Á BJÓRLÍKINU Enn sem komið er verðum við að búa við það að fá bjóriiki á börunum hér á landi. Margir telja nú að það breytti ekki miklu að hafa alvörubjór i þessu glasi hérá myndinni. DV-mynd E.Ó. „Er ekki leyfilegt að selja bjór hér á Islandi?” sagði erlendi ferðamaðurinn undrandi. „Nei, það er bannaö sam- kvæmt lögum,” sagði Islendingurinn. „En hafðu engar áhyggjur, það eru ýmsar leiðir til að komast yfir góðan bjór. I fyrsta lagi er hægt aö brugga bjórinn sjálfur. Hér eru verslanir sem selja allar græjur sem til þarf fyrir bjórbruggun, en þaö er nú fremur sein- legt. I öðru lagi hafðir þú möguleika á því að kaupa 12 bjóra þegar þú varst staddur í fríhöfninni. Allir sem koma hingað til landsins eiga kost á því aö taka með sér ákveðiö magn af bjór í landið. En þessar 12 dósir duga skammt ef þú ætlar að staldra við hér í nokkum tíma. En það eru til ráð við því ef þú veröur uppiskroppa meö bjór- inn. Hér á landi er bjór seldur á svörtum markaði. Yfirleitt eru þaö farmenn sem sjá um aö koma þessum bjór til landsins. Eg hef sambönd svó ég get reddaf bjór ef þú þarft á aö halda. Hann er ekki svcýkja dýr. Einn kassi kostar 1300—1500 krónur. Þér finnst þaö að sjálfsögðu vera nokkuð dýrt en miöaö við aðstæður er þetta nokkuð sanngjamt verð. Heyrðu, ég var næstum búinn að gleyma því að hér í Reykjavík getur þú fengiö svo- kallað bjórh'ki á flestum vínveitinga- stöðunum. Nú um þessar mundir eru starfandi tvær bjórkrár sem bjóða upp á bjórh'ki. Forráðamenn þessara staða vilja ekki gefa upp hvemig þetta bjór- hki er búiö til og hvíhr yfirleitt mikil leynd yfir uppskriftinni. Eg hef reyndar ekki smakkað á þessu bjórliki en kunnugir segja að þaö bragðist ágætlega. Sumir efast um hvort það sé nógu áfengt og segja þetta vera hálf- gertgutl.” Við þurfum ekki að halda þessari sögu áfram. Það fylgir reyndar að hinn erlendi ferðamaður varö ákaflega undrandi yfir þessar frásögn Is- lendingsins en hann varð einnig yfir sig ánægður þegar honum varð ljóst að dvöl hans á Islandi ætti ekki eftir að verða bjórlaus með öllu. Ferðamaöur- inn spurði reyndar hvers vegna bjór væri bannaður samkvæmt lögum en því átti Islendingurinn erfitt með að svara. Hann gat þó sagt honum að það væri orðið nokkuð ljóst að allmargir Islendingar væru því fylgjandi að bjór (alvörubjór) yrði seldur á veitinga- stöðum og í Ríkinu þar sem börn næðu ekkitilhans. Ferðamaðurinn, sem kom frá landi þar sem bjór drýpur af hverju strái, átti erfitt með að setja sig í spor Islend- inga. Honum fannst þetta bráðfyndiö en um leiö af ar sorglegt. Bjórlíki Nú skulum við kveðja þennan ferða- mann og snúa okkur að bjórhkinu. Fyrst við erum búin aö fá bjórhki er spurning hvort við þurfum nokkuð á alvörubjór aö halda. Eg sem þetta skrifa hef ekki bragöað á bjórlíkinu sem boðið er upp á á öldurhúsunum hér í bæ. Einu sinni gerði ég tilraun meö að blanda pilsner saman viö kláravín en það bragðaðist ekki vel. En eins og getið var um hér að framan fullyrða kunnugir að bjóriíkið sé víðast hvar ágætt á bragðið og þokkalegt að styrkleika. Bjórhki fæst nú orðið mjög víða á vínveitingastöðum hér í bæ. Fyrir skömmu var opnuö önnur bjór- kráin hér og mun eiga að fara að opna þá þriðju. Hvað kostar bjórlíkið Við höfðum samband við nokkra aðila sem bjóða gestum sínum upp á bjór- líkl Ekki tókst okkur þó að ná sam- bandi við alla þá sem eru með þaö á boðstólum. Af þeim stöðum sem við náðum ekki að fá uppgefið verð hjá er veitingahúsið Oðal, en það bendir margt til þess að upphaf bjórhkisins eigi rætur sínar að rekja þangað. Þar var snemma á boðstólum bjórlíki. Hót- el Saga byrjaði fyrir tveimur árum að bjóða gestum sínum upp á bjórhki á ensku ölstofunni sem þá var opnuö. En það er ekki fyrr en Gaukur á Stöng hefur starfsemi sína að fjörkipp- ur kemst í framleiðslu bjórlíkis. En snúum okkur nú að verðinu. Gaukur á Stöng: Þar er í boði bjór- líki sem hefur átt nokkrum vinsældum að fagna. Uppskriftin er að sjálfsögðu algjört leyndarmál eins og hjá öðrum sem eru í bransanum. Okkur hefur borist til eyma að ölbollan, eins og hún nefnist á Gauknum, sé samsett úr pilsner, vodka, brennivíni og malt- viskíi. En þetta er að sjálfsögðu bara getgáta og um hlutföllin vitum við ekk- ert. Verðið á bjómum þarna virðist hafa orðið öðrum til fyrirmyndar. Lítið glas, með 0,3 htrum, kostar 70 kr., 0,41 kosta 90 kr., 0,5 1110 kr. Siðan er hægt að panta svokallaö stígvél og rúmar það 2 1 og kostar 440 krónur. Þar var Verð á svokölluðu bjórlíki Gaukur á Stöng: 0,3 1 70 kr. 0,41 90 kr. 0,51 110 kr. 2,01 440 kr. Pubb-inn Hlóðir: /0.33 1 80 kr. 0,5 1 110 kr. 1,0 1 220 kr. Zorba: 0,331 80 kr. Hótel Saga (enska ölstofan): 0,331 80 kr. Hótel Borg: 0,251 90 kr. Hornið (í Djúpinu): 0,361 96 kr. Gullni haninn: ? 90 kr. okkur sagt að líkur væru á því að bjór- líkið ætti eftir að hækka í veröi. Afengi hækkaði í verði fyrir skömmu sem getur haft áhrif á verð bjórlikisins. Ekki er þó öruggt að þessi hækkun eigi eftir aö eiga sér stað því búist er við að öl og gosdrykkir eigi eftir að lækka á næstunni. Ef af þeirri lækkun verður er jafnvel búist við aö þessar hækkanir og lækkanir jafni hvor aðra upp þannig að bjórhkið þurfi liklega ekki að hækka. Pubb-inn Hlóðir: Glænýr pöbb í enskum stíl og víst alveg glerfínn. Leyndardómur hvílir einnig yfir upp- skriftinni aö „bjómum” þar eins og á Gauknum. Þar kostar 0,33 lítrar 80 krónur, 0,5 htrar 110 kr. og 1 1 220 krónur. Verðið er mjög svipað því sem þaö er á Gauknum. Þá er einnig vert að geta þess að á báðum þessum stööum er bjórlíkinu pumpaö af þrýsti- kútum. Zorba: Þar er hægt að fá bjórlíki á þrýstikútum og er það einungis selt með mat. Ein stærð er seld og kosta 0,33 1 80 krónur. Uppskriftin er leyndarmál. Hótel Borg: Uppskriftin er að sjálf- sögöu leyndarmál en 0,25 1 kosta 90 krónur. Bjórlíkið er á þrýstikút. Horaið: Þar er bjórhki selt í kjallara staöarins sem nefnist Djúpið. Þetta bjórlíki er nokkuð frumstætt miðaö við hin sem nefnd hafa veriö. Gestirnir geta sjálfir vahð uppskriftina. Hér er einungis um það aö ræða að blanda Egils pilsner saman við einhverja vín- tegund að ósk viðskiptavinarins. 3 sentíhtrar af víni og einn pilsner kosta 96krónur. Hótel Saga: Þar hefur bjórhki veriö selt í nokkurn tíma. Uppskriftin er ekki neitt sérstakt leyndarmál og saman- stendur hún af vodka, viskíi og pilsner. Líkið er síöan selt úr þrýstikútum sem gerir það að verkum að það verður meira gos í því og froða sem talin er nauðsynlegur fylgifiskur bjórsins. Styrkleikinn Mönnum hefur orðið nokkuð tíðrætt um styrkleika bjórhkisins. Heyrst hafa sögur af mönnum sem hafa setið kvöldlangt við drykkju og ekki fundið neina breytingu. Þá hafi einnig einn bjórhkisdrykkjumaður verið stöðvað- ur við akstur bifreiðar sinnar en ekki hafi mælst óleyfilegt magn áfengis í blóði hans, þó hafði hann sporðrennt nokkmm bjómm. En þetta segja kjaftasögumar. Við spurðumst fyrir um styrkleika bjórhkisins sem boðið er upp á á „bjór- kránum” hér í bæ. A Gauki á Stöng var okkur sagt að styrkleikinn væri frá 4,5—5,0 prósent en það væri breyti- legt vegna þess að styrkleikinn á pilsnernum væri nokkuö breytilegur frá tíma til tíma. Pubb-inn Hlóðir býð- ur upp.á bjórlíki sem ku vera 5 prósent að styrkleika og jafnvel rétt yfir. A Gauknum er reynt að halda styrk- leikanum í 5 prósentum svo á þessum stöðum virðist styrkleikinn vera sá sami. -APH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.