Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Page 7
DV. FIMMTUDAGUR 29. MARS 1984.
Neytendur Neytendur
Mestir erf iðleikar
með símann
— af öllum breskum ríkisf yrirtækjum
Formaður Neytendasamtakanna,
Jón Magnússon lögfræðingur, er
nýkominn heim úr för til Bretlands og
Danmerkur og í báðum löndunum
heimsótti hann aðalstöðvar neytenda-
samtaka viðkomandi þjóða.
Við fórum þess á leit við Jón að hann
segði okkur frá starfi ensku neytenda-
samtakanna.
Starfi ensku neytendasamtakanna
má skipta í fjóra meginþætti. Fyrst
ber þar aö telja útgáfumál, en samtök-
in gefa út blaðið Which og ýmsa bækl-
inga. I öðru lagi er unniö að rannsókn-
um sem kynntar eru í blaði samtak-
anna. Þess má geta að ensku neyt-
endasamtökin hafa yfir 400 starfs-
menn en flestir þeirra vinna við rann-
sóknir og prófanir á alls kyns hlutum. 1
þriðja lagi felst starfið í aðstoð við gerð
sjónvarps- og útvarpsþátta og í fjórða
lagi að styrkja svæðisfélög neytenda.
Neytendaþættir í sjónvarpi
og útvarpi
„Allmargir sjónvarps- og útvarps-
þættir um neytendamál eru sendir út í
Englandi,” sagði Jón Magnússon „og
eftir því sem mér var tjáð eru þessir
helstir: That’s life, For what it’s
worth, Money program, Check point,
allir í sjónvarpi, og You and yours í út-
varpi.
Þessir þættir eru allir blanda af
neytendafræðslu og skemmtiefni.
Bresku neytendasamtökin taka alla
þessa þætti upp á mynd- og segulbönd.
Ef svo færi aö viö fengjum einhvern-
tíma inni í sjónvarpinu fyrir slíka þætti
myndi það vera ómetanlegt fyrir þann
eða þá sem ætluðu að stjórna slíkum
þáttum að fá aðgang að þessum spól-
um.
I viöræðum minum við forsvars-
menn samtakanna kom fram að ís-
lensku Neytendasamtökin gætu hve-
nær sem er fengið aögang að þessu efni
og mættu nota það að vild ef okkur
sýndistsvo.
Og þá er rétt að geta þess aö bresku
neytendasamtökin leggja mikið upp úr
videovæðingunni og hafa látið gera
spólur fyrir sig um samtökin og neyt-
endastarf almennt sem var mjög gam-
anaðsjá.”
Fólk úr öllum flokkum virkt í
starfi
Kom fram í máli Jóns að afskipti
bresku neytendasamtakanna af pólitík
hefðu veriö rædd og kom í ljós að
haldiö er fast í þá stefnu að þau séu
hlutlaus hvaö pólitík snertir. Viðmæl-
endur hans sögöu að iöulega kæmu upp
mál sem erfitt væri fyrir samtökin að
taka afstöðu til vegna pólitískra
deilna. Þegar slík aðstaða kæmi upp
þá tækju samtökin ekki afstöðu eða
gerðu það ef mjög skýr neytenda-
sjónarmiö gerðu þeim þaö kleift. Eitt
mál var nefnt, áætlun ríkisstjómar
Thatcher að selja ríkisfyrirtæki.
Afstaða samtakanna var sú varð-
andi það mál að ef séð yrði til þess að
hagsmunum neytenda yrði borgið
hefðu samtökin ekkert við það að
athuga. Fólk úr öllum flokkum er virkt
í starfi bresku neytendasamtakanna.
Jón Magnússon, formaður
Neytendasamtaka íslands.
Það heyrir tU undantekninga ef
vörur eru ekki verömerktar í búöar-
gluggum í Bretlandi enda hafa
samtökin lagt mikla áherslu á þennan
þátt í sínu starfi. Og kom fram í máh
manna, að sögn Jóns, að þeir telja að
hagsmunum neytenda sé best borgið
með samkeppni.
„Þrjár stærstu verslunarkeðjumar í
Bretlandi ráða um 40 prósent
markaðarms í mat- og nýlenduvörum.
Var mér sagt að stórverslanirnar
hefðu haft þá þýðingu, að þær hefðu
getaö pínt niður verö hjá framleiðend-
um, sem hefði komið neytendum til
góða. Viðmælendur mínir vildu ekki
gera lítið úr hverfisverslunum með
svipuðum rökum og við þekkjum hér
heima.”
Eftirlitsnefndir
Ríkisstjómin breska skipar sérstak-
ar eftu-Utsnefndir til aö fylgjast með
„State monopoUes” ríkisemkasölum
eða þjónustustofnunum. Um þaö sagði
Jón Magnússon: „Þessar nefndir eiga
að fylgjast með því að þjónusta þess-
ara stofnana, til dæmis síma, raf-
magns og fleiri, sé meö eðUlegum
hætti. Það var nokkuð merkilegt að
þeir bresku sögðust hafa átt í hvaö
mestum erfiðleikum með símann af
öllum ríkisfyrirtækjunum. Þær eftir-
Utsnefndir sem hér um ræðir gætu
verið sniðug hugmynd hér á landi.
Nefndirnar fylgjast bæði með þjónust-
unni og verðlagningu opinberra þjón-
ustufyrirtækja. Hugmyndin á bak við
þær er því ekki ósvipuð hugmyndmni
sem kemur fram í þingsályktunartil-
lögu Friðriks Sophussonar, sem hefur
verið tU umræðu innan Neytendasam-
takannahér.”
Margt fleira kom fram í máli for-
manns Neytendasamtakanna um störf
bresku samtakanna, sem eflaust mun
koma starfi samtakanna hér til góða,
neytendum tU hagsbóta. Munum við
síöar greina frá helstu atriðum í starfi
dönsku neytendasamtakanna.
-ÞG
FUNDIR
UM VEIÐI- OG FISKRÆKTARMÁL
Landssamband stangarveiðifélaga boðar til fundar um veiöi
og fiskræktarmál í Hótel Borgarnesi laugardaginn 31. mars kl.
10.00 f.h.
Frummælendur verða frá þessum aðilum:
Landssambandistangarveiðifélaga,
Veiðimálastofnun,
Líffræðifélagi Islands,
Landssambandi fiskeldis- og hafbeitarstöðva,
Landssambandi veiðifélaga.
Ahugamenn komið og takiö þátt í umræðum.
OLANDSSAMBAND
STANGARVEIÐIFÉLAGA
7
[ HÖGGDEYFAR MJÖGMIKIÐ ÚRVAL E m EUROCARO IBW M woö HÁBERG HF.
N JGabrigjfl IÝ SENDING ssm
SkeifunniSa —Simi8*47*88
Allar
vorur
á markaðsverði.
OPIÐ í KVÖLD TILKL. 7
L í ÖLLUM DEILDUM
iS
GLÆSILEGT ÚRVAL
HÚSGAGNA
TVEIMUR HÆÐUM
E
V/SA
BÍLASTÆÐI
RAFTÆKI - RAFLJÓS
t og rafbúnaður.
Raftækjadeild II. hæð
m
Glœsilegt úrval •
leðursófasetta •
í leðurdeild, •
3ju hœð. 5
JL-PORTIÐ
NÆG
Muniö okkar hagstæðu
greiösluskilmála
JL-GRILLIÐ Grillréttir allan daginn^
■ ■ H| /A A A A A A -
Jón Loftsson hf.
: z jajoa
_ JULJIJLIJ
ZnSŒŒTE
Hringbraut 121 Simi 10600
HUSQUARNA ELDHUSLINAN
I dag er hvíta Husquarna-eldhúslínan
vinsælust. Eigum einnig eldhúslínuna
í cameé, avocado og lion litum. Kynn-
iö ykkur Husquarna lánakjörin.
Gunnar Asgeirsson hf.
Suóurlandsbraut 16 Simi 9135200