Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Qupperneq 7
DV. FIMMTUDAGUR 29. MARS 1984. Neytendur Neytendur Mestir erf iðleikar með símann — af öllum breskum ríkisf yrirtækjum Formaður Neytendasamtakanna, Jón Magnússon lögfræðingur, er nýkominn heim úr för til Bretlands og Danmerkur og í báðum löndunum heimsótti hann aðalstöðvar neytenda- samtaka viðkomandi þjóða. Við fórum þess á leit við Jón að hann segði okkur frá starfi ensku neytenda- samtakanna. Starfi ensku neytendasamtakanna má skipta í fjóra meginþætti. Fyrst ber þar aö telja útgáfumál, en samtök- in gefa út blaðið Which og ýmsa bækl- inga. I öðru lagi er unniö að rannsókn- um sem kynntar eru í blaði samtak- anna. Þess má geta að ensku neyt- endasamtökin hafa yfir 400 starfs- menn en flestir þeirra vinna við rann- sóknir og prófanir á alls kyns hlutum. 1 þriðja lagi felst starfið í aðstoð við gerð sjónvarps- og útvarpsþátta og í fjórða lagi að styrkja svæðisfélög neytenda. Neytendaþættir í sjónvarpi og útvarpi „Allmargir sjónvarps- og útvarps- þættir um neytendamál eru sendir út í Englandi,” sagði Jón Magnússon „og eftir því sem mér var tjáð eru þessir helstir: That’s life, For what it’s worth, Money program, Check point, allir í sjónvarpi, og You and yours í út- varpi. Þessir þættir eru allir blanda af neytendafræðslu og skemmtiefni. Bresku neytendasamtökin taka alla þessa þætti upp á mynd- og segulbönd. Ef svo færi aö viö fengjum einhvern- tíma inni í sjónvarpinu fyrir slíka þætti myndi það vera ómetanlegt fyrir þann eða þá sem ætluðu að stjórna slíkum þáttum að fá aðgang að þessum spól- um. I viöræðum minum við forsvars- menn samtakanna kom fram að ís- lensku Neytendasamtökin gætu hve- nær sem er fengið aögang að þessu efni og mættu nota það að vild ef okkur sýndistsvo. Og þá er rétt að geta þess aö bresku neytendasamtökin leggja mikið upp úr videovæðingunni og hafa látið gera spólur fyrir sig um samtökin og neyt- endastarf almennt sem var mjög gam- anaðsjá.” Fólk úr öllum flokkum virkt í starfi Kom fram í máli Jóns að afskipti bresku neytendasamtakanna af pólitík hefðu veriö rædd og kom í ljós að haldiö er fast í þá stefnu að þau séu hlutlaus hvaö pólitík snertir. Viðmæl- endur hans sögöu að iöulega kæmu upp mál sem erfitt væri fyrir samtökin að taka afstöðu til vegna pólitískra deilna. Þegar slík aðstaða kæmi upp þá tækju samtökin ekki afstöðu eða gerðu það ef mjög skýr neytenda- sjónarmiö gerðu þeim þaö kleift. Eitt mál var nefnt, áætlun ríkisstjómar Thatcher að selja ríkisfyrirtæki. Afstaða samtakanna var sú varð- andi það mál að ef séð yrði til þess að hagsmunum neytenda yrði borgið hefðu samtökin ekkert við það að athuga. Fólk úr öllum flokkum er virkt í starfi bresku neytendasamtakanna. Jón Magnússon, formaður Neytendasamtaka íslands. Það heyrir tU undantekninga ef vörur eru ekki verömerktar í búöar- gluggum í Bretlandi enda hafa samtökin lagt mikla áherslu á þennan þátt í sínu starfi. Og kom fram í máh manna, að sögn Jóns, að þeir telja að hagsmunum neytenda sé best borgið með samkeppni. „Þrjár stærstu verslunarkeðjumar í Bretlandi ráða um 40 prósent markaðarms í mat- og nýlenduvörum. Var mér sagt að stórverslanirnar hefðu haft þá þýðingu, að þær hefðu getaö pínt niður verö hjá framleiðend- um, sem hefði komið neytendum til góða. Viðmælendur mínir vildu ekki gera lítið úr hverfisverslunum með svipuðum rökum og við þekkjum hér heima.” Eftirlitsnefndir Ríkisstjómin breska skipar sérstak- ar eftu-Utsnefndir til aö fylgjast með „State monopoUes” ríkisemkasölum eða þjónustustofnunum. Um þaö sagði Jón Magnússon: „Þessar nefndir eiga að fylgjast með því að þjónusta þess- ara stofnana, til dæmis síma, raf- magns og fleiri, sé meö eðUlegum hætti. Það var nokkuð merkilegt að þeir bresku sögðust hafa átt í hvaö mestum erfiðleikum með símann af öllum ríkisfyrirtækjunum. Þær eftir- Utsnefndir sem hér um ræðir gætu verið sniðug hugmynd hér á landi. Nefndirnar fylgjast bæði með þjónust- unni og verðlagningu opinberra þjón- ustufyrirtækja. Hugmyndin á bak við þær er því ekki ósvipuð hugmyndmni sem kemur fram í þingsályktunartil- lögu Friðriks Sophussonar, sem hefur verið tU umræðu innan Neytendasam- takannahér.” Margt fleira kom fram í máli for- manns Neytendasamtakanna um störf bresku samtakanna, sem eflaust mun koma starfi samtakanna hér til góða, neytendum tU hagsbóta. Munum við síöar greina frá helstu atriðum í starfi dönsku neytendasamtakanna. -ÞG FUNDIR UM VEIÐI- OG FISKRÆKTARMÁL Landssamband stangarveiðifélaga boðar til fundar um veiöi og fiskræktarmál í Hótel Borgarnesi laugardaginn 31. mars kl. 10.00 f.h. Frummælendur verða frá þessum aðilum: Landssambandistangarveiðifélaga, Veiðimálastofnun, Líffræðifélagi Islands, Landssambandi fiskeldis- og hafbeitarstöðva, Landssambandi veiðifélaga. Ahugamenn komið og takiö þátt í umræðum. OLANDSSAMBAND STANGARVEIÐIFÉLAGA 7 [ HÖGGDEYFAR MJÖGMIKIÐ ÚRVAL E m EUROCARO IBW M woö HÁBERG HF. N JGabrigjfl IÝ SENDING ssm SkeifunniSa —Simi8*47*88 Allar vorur á markaðsverði. OPIÐ í KVÖLD TILKL. 7 L í ÖLLUM DEILDUM iS GLÆSILEGT ÚRVAL HÚSGAGNA TVEIMUR HÆÐUM E V/SA BÍLASTÆÐI RAFTÆKI - RAFLJÓS t og rafbúnaður. Raftækjadeild II. hæð m Glœsilegt úrval • leðursófasetta • í leðurdeild, • 3ju hœð. 5 JL-PORTIÐ NÆG Muniö okkar hagstæðu greiösluskilmála JL-GRILLIÐ Grillréttir allan daginn^ ■ ■ H| /A A A A A A - Jón Loftsson hf. : z jajoa _ JULJIJLIJ ZnSŒŒTE Hringbraut 121 Simi 10600 HUSQUARNA ELDHUSLINAN I dag er hvíta Husquarna-eldhúslínan vinsælust. Eigum einnig eldhúslínuna í cameé, avocado og lion litum. Kynn- iö ykkur Husquarna lánakjörin. Gunnar Asgeirsson hf. Suóurlandsbraut 16 Simi 9135200

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.