Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Side 12
12 DV. FIMMTUDAGUR 29. MARS1984. ■ i rv%r Frjálst.óháð dagblað Utgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stiórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstoóarritstjóri: HAUKUR HELGASON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍDUMÚLA 12—14. SÍMI 86611. Auglýsingar: SÍÐUMULA 33. SÍMI 27022. Afgreiðsla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI 11. SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 86611. Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF., SÍDUMÚLA 12. Prentun: Árvakur hf., Skeifunni 19. Áskriftarverð á mánuði 250 kr. Verð i lausasölu 22 kr. Helgarblaö 25 kr. 3089milljóna sparnaður Landsfeður okkar viröast vera í mestu vandræðum með að fylla í göt fjárlaga og lánsfjáráætlunar þessa árs. Þeir telja útilokað að spara þær 1845 milljónir, sem þurfi til aö ná endum saman. Lausleg yfirferð á fyrirhuguðum útgjöldum bendir þó til, að spara megi 3089 milljónir. Sú upphæð nýtist að vísu ekki til fulls. Þegar er liðinn nærri fjóröungur ársins, svo að búast má við, að þegar sé búið aö greiöa sumt, sem betur hefði verið sparað. Við þurfum því að draga frá 772 milljónir og fá út 2317 milljónir til að f jalla raunsætt um málið. Hins vegar getum við mætt ýmissi röskun og öörum herkostnaði af þessum niðurskurði með því að gefa frjálsan innflutning landbúnaðarafuröa. Það mundi bæta hag neytenda um 500 milljónir að minnsta kosti og senni- lega um 1000 milljónir. En hverjir eru þeir liðir, sem óþarfir eru og samtals nema 3089 milljónum á f járlögum og lánsf járáætlun? 280 milljón króna útflutningsuppbætur landbúnaðaraf- uröa hvetja til viðgangs peningabrennslu og dulbúins at- vinnuleysis í kinda- og kúabúskap. 258 milljón króna beinir styrkir til kinda- og kúabú- skapar hvetja einnig til framhalds á peningabrennslu og dulbúins atvinnuleysis. 945 milljón króna niðurgreiöslur á afurðum kinda og kúa skekkja verökerfið í landinu. Neytendum má bæta þær upp meö frjálsum innflutningi slíkra afurða. 83 milljón króna framlag til Byggðasjóðs hvetur til peningabrennslu og dulbúins atvinnuleysis. 120 milljón króna lántaka Byggðasjóðs hvetur einnig til peningabrennslu og dulbúins atvinnuleysis. 16 milljón króna styrkur við pólitísk sorprit stjórn- málaflokkanna stuðlar aö því, aö almenningur fái ekki upplýsingar á borð við þessar. 230 milljón króna niðurgreiðsla á raforku stuðlar að því, að fólk búi á óhagkvæmum stöðum á landinu. 61 milljón króna olíustyrkur tefur fyrir nýtingu inn- lendra orkugjafa. 200 milljón króna lántöku til vegagerðar má fresta um eitt ár af fjárhagsástæðum, enda standa þó eftir 1383 milljónir til vegageröar á f járlögum. 200 milljón króna lántaka til Blönduvirkjunar er óþörf, af því að frekja landeigenda hefur gert þá virkjun óhag- kvæma og kaupanda vantar að orkunni. 104 milljón króna lántaka til flugstöðvar í Keflavík er óþörf, af því að það er ekki góður staður fyrir gróðurhús og núverandi flugstöð er nógu stór. 92 milljón króna samanlagðir styrkir til Flugleiða eru óþarfir, af því að það þjóöþrifafyrirtæki er komið á réttan kjölaðnýju. 200 milljón krónur getur Seðlabankinn gefið eftir af þeim vöxtum, sem hann tekur af ríkinu, og af öðrum gróða. Um leið getur hann frestað byggingu sinni. 200 milljón krónur má fá meö því að beina skattrann- sóknum frá smámálum yfir í söluskattinn. 100 milljón króna lántöku til hlutabréfakaupa í vitlaus- um fyrirtækjum á borð við steinullarverksmiðju má spara, enda er því fé að öllu leyti kastað á glæ. Samtals eru þetta 3089 milljónir króna í hreinan sparn- að án nokkurrar skattlagningar og erlendrar skuldasöfn- unar. Þetta er hægt, ef landsfeðurnir hætta að tilbiðja heilögu kýrnar. Jónas Kristjánsson Ýmissa veðra von Öll orka núverandi ríkisstjómar hefur farið í það aö berjast gegn verð- bólgunni. Um þaö strið hefur þjóð- félagsumræðan staðiö allt frá því að ríkisstjórnin var mynduð og þar hafa högg verið tíö og þung. Nú virðist þar ætla að verða hlé á. Enda þótt niður- rifsöflum hafi tekist að hækka nokkuð veröbólguna frá því sem vonast var til og sennilega að koma henni upp í ein 20% aö minnsta kosti má stjórnin þó sæmilega við sinn hlut una. Segja má raunar að þetta sé í fyrsta skipti í meira en áratug sem ríkisstjórn tekst að ná stjórn á efnahagsmálum, segja til um mörk og möguleika og standa nokkurn veginn á því. Ýmis hættumerki framundan En enda þótt svona vel hafi til tekist í efnahagsmálum eru þó mörg Ijón á veginum og þaö skammt framundan. Ahrif hinna stórminnkuðu fiskveiða eru enn ekki komin fram. Ljóst er að stjórnarandstaöan — einkum kommúnistar — reynir mikiö til þess að plægja akurinn fyrir óánægju- aögerðir þegar syrta fer aö á vinnu- markaðnum. Þingmenn Alþýðubanda- lagsins hömuðust gegn heimild til handa ráðherra um kvótaskiptingu þrátt fyrir vilja hagsmunaaðila og hið sama geröi Þjóðviljinn og hann hefur raunar alla tíö síðan hamast gegn kvótaskiptingunni og reynt að æsa upp öll öfl sem mögulegt er að æsa upp gegn henni. Hafa sumir hent gaman að upphrópunum blaðsins um hálfgert uppreisnarástand í þjóðfélaginu þegar langflestir viðurkenna að ekki sé annað til ráða en skammta veiðarnar. Agnúar, sem unnt er aö sníða af, eru úthrópaöir sem aðalsönnunargögn þess að stefnan sé röng og leiði til ófarnaöar. Kjallari á fimmtudegi MAGNÚS BJARNFREÐSSON Að baki þessu öllu er markviss til- gangur, eins og ávallt þegar áróðurs- stríð er hafið á þeim bæ. Ahrif hinna minnkandi veiða eiga eftir að koma í ljós, áhrif sem orðið hefðu hvaða aðferð sem beitt hefði verið við tak- mörkun fiskveiðanna. Þegar þau áhrif fara að segja til sín að marki með at- vinnusamdrætti og því sem honum fylgir er ekki ónýtt að geta hamraö á andstööu við aðgeröirnar, í von um að enginn spyrji hvað hefði þá átt að gera ístaðinn. Ljóst er að hvergi nærri verður auð- velt fyrir ríkisstjórnina að stoppa upp í hið alræmda fjárlagagat. Þar verða skoöanir skiptar, bæði um skattheimtu og sparnað. Þar munu rekast á hags- munir þéttbýlis og dreifbýlis og þeir árekstrar kunna að valda miklum óróa í báöum stjómarflokkunum, ekki síst fyrir þá sök að stjómarandstaðan mun kynda undir óánægju í þéttbýlinu í garðdreifbýlisins. Sennilega verður erfitt að halda gengi krónunnar innan þeirra marka sem ríkisstjómin hafði sett sér. Samningarnir, sem geröir hafa veriö undanfarið, eru ávísun á nokkra gengisfellingu, nema eitthvað sérstakt gerist í gengismálum umheimsins og verðlagi þar. I hvert skipti sem útdeilt er peningum sem ekki em til er í raun fellt gengi gjaldmiöilsins og það var gert í nýafstöðnum k jarasamningum. Þá er einnig ljóst að nokkurs tauga- titrings gætir í röðum verslunarmanna í Sjálfstæðisflokknum gagnvart samvinnuhreyfingunni. Aðalástæðan er væntanlega tilkoma Miklagarðs, sem þeim þykir hafa tekið of vænan spón úr aski sínum, einmitt þegar nokkur heildarsamdráttur veröur í versluninni. Ekki er enn ljóst hver áhrif þessi upphlaup hafa, en víst er aö þau auövelda ekki stjómarsamstarfið því aö landsbyggðarþingmenn Fram- sóknar munu verða fyrir þrýstingi á heimavelli vegna þessara aðgerða kaupmanna í Reykjavík. mmmmm^m^mmmm^^^mmmmm^^^mmm^mm i 9 »Ljóst er aö hvergi nærri veröur auövelt jfyrir ríkisstjórnina að stoppa upp í hiö alræmda fjárlagagat.” Ríkisstjómin sæk ir ráð í smiðju Alþýðuflokksins Stjómarliðar halda því oft fram að stjómarandstaðan sé málefnasnauð og haf i engar tillögur fram að færa. En nú bregöur svo viö að tillögur okkar Al- þýðuflokksmanna um stórhert skatta- eftirlit og leiðir til að uppræta skatt- svik hafa verið teknar upp af ríkis- stjórninni sem ein aðaltillagan til að fylla upp í gatið í ríkisfjármáladæm- inu. Skattsvikin 33% af heildartekjum ríkissjóðs? Fyrir skömmu ritaði ég grein í DV, þar sem fram kom það mat að skatt- svik hér á landi væru 33% af áætluðum heildartekjum ríkissjóös á árinu 1984 eöa 11% af þjóðartekjum sem sam- svaraði því að um 5,3 milljörðum hefði verið skotið undan skatti á árinu 1983 og voru þá söluskattssvikin undanskil- JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR ÞINGMAÐUR FYRIR ALÞÝÐUFLOKKINN 1983 — og hve illa er búiö aö skatta- eftirlitinu. Einnig var í þeirri grein gerð skU tU- lögu Alþýðuflokksins sem Uggur fyrir Alþingi um úttekt á umfangi skatt- svika í öUum atvinnustéttum og at- vinnugreinum auk umfangs söluskatt- svika hér á landi. Jafnframt kom fram í greininni að litill áhugi virtist vera á Alþingi fyrir þessum málum ef marka mátti aö saUr Alþingis voru hálftómir og lítil viðbrögð alþingismanna eða ráðherra þegar framsaga var flutt á Alþingi fyrir tveimur tUlögum, sem þingmenn Alþýöuflokksins flytja, um aðgerðir gegn skattsvikum þar sem færð voru rök fy rir því að í skjóU sinnu- leysis stjómvalda yrði ríkissjóður af gífurlegum tekjum vegna skattsvika. Óvænt ánægja Það var því óvænt ánægja og fagnaðarefni að heyra í fréttum að I þeirri grein voru færð rök að því hvað litiö innheimtist vegna skatteftir- Uts eða 0,05% af því sem áætla má að stoUð hafi verið undan skatti á árinu 1983 (söluskattsvikin undanskiUn) — hve fá skattframtöl félaga og einstakl- inga í atvinnurekstri fá sérstaka rann- sókn og meðferö hjá skatteftirliti eða 1% aUra framtala 1982 og innan viö 3% Æk „Það var því óvænt ánægja og fagnaðar- efni að heyra í fréttum að ríkisstjórnin hyggst fara að ráðum okkar alþýðuflokks- manna og herða innheimtu og eftirlit með skattsvikum.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.