Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Side 13
j.mrptTAW or> rjririf OTrTvr»»TAT i-n DV. FIMMTUDAGUR 29. MARS1984. ■ 13 væntanlega myndu þeir setja um þaö lög ef þeir mættu að öll umræða um grunnskólalögin yrði bönnuð. Mennta- málaráðherra hefur sýnt lofsverða til- burði við aö hrófla við kerfinu og aö vonum ætlar þá allt af göflum að ganga. Þá veröur einnig fróölegt að s já hver verða örlög frumvarps um breytingu á útvarpslögunum, þar sem gert er ráð fyrir afnámi einokunar Ríkisútvarps- ins. Gegn þessu frumvarpi berjast ýmis sterk öfl meö hnúum og hnefum og hafa hrætt ýmsa framsóknarþing- menn frá stuðningi við það. Verður þó síst séð að sá flokkur geti tapað á því þótt breyting yröi á frá núverandi ástandi. Ekki verður síður fróðlegt að fylgj- ast með framgangi orkumála og iðnaðar. Þar eiga vafalaust eftir að verða miklar orrahríðir, þegar hillir undir samninga um hærra orkuverð til álversins, hvað þá um ný stóriðjuver. Raunar virðist ljóst orðið að svo ræki- lega hafi fyrrverandi orku- og iðnaðar- ráðherra getað klúðrað viðskiptum Islendinga og álhringsins svissneska að eitthvað mun enn dragast að við náum viðunandi orkuverði. Engu að síður verða þau mál ofarlega á baugi næstu mánuðina og ekki væri ónýtt fyrir ríkisstjórnina að geta mætt atvinnusamdrætti við sjávarsíöuna meö auknum orkuframkvæmdum. Nú, þegar hillir undir „normalt” þjóðfélag hérlendis að nýju eftir nokk- urra ára hlé á slíku ástandi, ættum við aö geta farið aö skipuleggja framtíð okkar sem þjóðar og undirbyggt sókn til bættra lífskjara nokkuö fram í tímann. Forsætisráðherra hafði orö á því í kringum áramótin að hann myndi beita sér fyrir slíkri áætlanagerð. Síðan hefur verið hljótt um það mál. Eru einhverjir á móti þessu? Gaman væri þá að vita hverjir það eru því aö ekki munu þeir opinberlega mæla því gegn. Það skulu lokaorð þessarar greinar að hvetja forsætisráðherra til þess að láta ekki deigan síga í þessu máli og hafa forgöngu í því eins og hannboöaðisjálfur. .Ahrif hinna minnkandi veiða eiga eftir að koma i Ijos, ahrif sem orðið hefðu hvaða aðferð sem beitt hefði verið við takmörkun fiskveiðanna.' Það er því alveg ljóst að þeir sem um taumana halda á stjórnarheimilinu úr báöum flokkum mega hafa sig alla við á næstunni, ef ríkisstjórnin á að veröa eins samhent í framtíöinni og hún hef ur verið hingað til. Hin smærri málin Ef ríkisstjómin getur hætt að eyða allri orku sinni í verðbólguamstur hlýtur að því að koma að hún fari að huga að ýmsum þjóðþrifamálum, sem hafa legiö í láginni þetta fyrsta ár, enda þótt fyrirheit hafi verið gefin um úrbætur á ýmsum sviðum. Eitt af fyrirheitum ríkisstjórnarinnar var einföldun stjómkerfisins og var sett nefnd ungra og vaskra manna í málið. Olíkt flestum öðrum nefndum tók hún starf sitt mjög alvarlega, vann af kappi og skilaði niðurstöðum og tillög- um. En þá fór nú að fara um ýmsa. Hróflað var viö grunnmúmöu valda- kerfi sem stjómmálamenn og embætt- ismenn hafa af mikilli kostgæfni komiö upp á löngum tíma. Valdamiklir embættismenn sem búast við að „missa höfuðið” berjast eins og ljón gegn hinum nýju tillögum, kerfið s jálft titrar af ótta og andúð og ýmsir hinna værokærari stjómmálamanna eru hálfhræddir. Það verður fróðlegt aö sjá hvernig umræöan snýst um tillögur nefndarinnar. Hinir raunverulegu íhaldsmenn í þjóðfélaginu, hvar í flokki sem þeir standa, munu reyna að koma í veg fyrir að þaö nái fram að ganga. Það verður líka fróölegt að sjá hvað gerist í menntamálunum. Æ fleirum verður ljóst að hin svokallaða grunn- skólalöggjöf er meingölluð og þá ekki síöur túlkun kennara og annarra skóla- manna á henni. Raunar var aldrei viö því að búast að svo viðamikil löggjöf væri gallalaus. Vafalítið hafa þeir sem að setningu hennar stóðu gert sér ljóst frá upphafi að hana þyrfti að endur- skoða í ljósi reynslunnar. En það virðist ekki mega. Skólamenn, eöa öllu heldur harösnúinn hluti þeitta, hafi slegið sh'ka skjaldborg um lögin og þó fyrst og fremst túlkun sína á þeim aö Skattsektir og launamat í atvinnurekstri I viðmiðunarreglum rikisskatt- stjóra, sem notaðar eru til aö reikna einstaklingum í atvinnurekstri laun, voru hæstar viðmiöunartekjur fyrir árið 1982 279 þúsund krónur, en lægstar 95 þúsund. Til samanburðar má taka launþega á árinu 1982, en þá var lág- markstekjutrygging 82 þúsund krónur. Samkvæmt úrtaki Kjararannsókna- nefndar höfðu konur í fatasaumi lægstu tekjumar á því ári, eða 106 þúsund krónur. Samkvæmt þessu geta þeir scm vinna einir við eigin atvinnu- rekstur ákveðið sér lægri laun en laun- þegar sem lægst laun höfðu á árinu 1982. I tekjuskattslögunum er ákvæöi um að greiöa á í skattsekt allt að tífaldri þeirri fjárhæð sem undan er dregin. I framkvæmd hefur aidrei verið um tíföldun að ræða, heldur algengast að sektir séu frá 0,5 upp í í mesta lagi tvö- földun. Einnig eru skattsektarupphæö- ir allt of lógar, eða frá 5 til 10 þúsund krónur og hafa ekki breyst frá því árið 1981 en þar er um fasta krónutölu aö ræöa. Aiþýðuflokkurinn vísar leiðina Upplýst er, að það stefni í 2—3 milljarða greiðsluhalla hjá ríkissjóði verði ekkert að gert. Nálægt 800—900 milljónir vantar í húsnæðiskerfiö og af þeim sökum blasir við að húsbyggjend- ur og íbúðakaupendur geta fyrr en var- ir staðið frammi fyrir miklum vand- ræðum. — Það þolir því enga bið aö ná inn þeim miklu tekjum sem ríkissjóður veröur af vegna skattsvika. Líkur benda til aö skattsvik hér á landi séu ekki minni en í sumum okkar nágrannalöndum eða 11% af þjóðar- tekjum, sem samsvaraði um 5,3 milljörðum á árinu 1983, að söluskatt- svikum undanskildum. Það verður að gera þá kröfu til stjórnvalda að tafarlaust veröi gripið til raunhæfra aðgerða til aö ná inn í ríkissjóð þeim gífurlegu fjármunum sem stolið er undan skatti. Alþýðuflokkurinn hefur vísað leiöina. Nú er að sjá hvort ríkisstjómin hefur kjark til að takast á við þetta verkefni. ríkisstjómin hyggst fara að ráðum okkar Alþýðuflokksmanna og herða innheimtu og eftirlit með skattsvikum. Tillögur Alþýðuflokksins hafa því þegar skilað nokkrum á rangri. Fjármálaráðherra, sem komst ekki. hjá að svara spurningum sem ég beindi til hans er önnur tillaga okkar Alþýðuflokksmanna var til umræðu á Alþingi, taldi að sannleiksgildi orða minna um skattsvik yrði að kanna, og ekki væri skynsamlegt að láta þau orð sem féllu í mínu máli sem vind um eyruþjóta. Arangurinn mátti lesa í DV föstu- daginn 23. mars sl. Þar kom fram að alrangar áherslur væm í skattaeftirliti — flestir starfsmenn skattakerfisins í smámálum. Þetta var nákvæmlega það sem ég hafði haldið fram í um- ræöum þótt þaö virtist þá lítið frétta- efni, eöa þær tillögur sem fyrir Alþingi liggjaum þettamál. Ennfremur kom þar fram að fjár- málaráöherra hefði falið skattarann- sóknarstjóra að leggja fram tillögu til úrbóta — og gegnumlýsa þyrfti heilu stéttirnar og greinarnar á skipulegan hátt, — en um það fjallar m.á. önnur tillaga okkar Alþýðuflokksmanna, en þeirri tillögu geröi ég grein fyrir á síð- um DV24. febrúarsl. Aðgerðir gegn skattsvikum Hin tillaga okkar Alþýöuflokks- manna fjallar um að fela ríkisstjóm- inni tafarlausa framkvæmd eftirtal- inna verkefna í þeim tilgangi að koma í veg fyrir skattsvik og gera alla skatt- heimtu ríkissjóðs skilvirkari og hrað- virkari en nú tíðkast. 1. Að endurskoða lög um skipan dómsvalds í héraði, lögreglustjóm, tollstjóm o.fl. nr. 74/1972 með síðari breytingum í þeim tilgangi að stofna sérdeild við Sakaqtóm Reykjavíkur eða sérdómstól sem feSigi a.m.k. eftirtalin afbrot til meðferöar: Skattsvik, bók- haldsbrot, gjaldeyrisbrot, faktúro- falsanir, verðlagsbrot og fleiri skyld brot. 2. Að endurskoða lög um meðferð opinberra mála nr. 73/1973 með síðari breytingum. Sérstaklega skal athuga í því sambandi hvort hagfcvæmt sé að refsiákvæði einstakra laga, svo sem skatta- og bókhaldslaga, í því skyni að samræma þau og beita í auknum mæli sjálfvirkum sektarákvæðum fyrir af- mörkuð afbrot í stað tímafrekari dómsrannsókna á flóknum, umfangs- miklum afbrotum sem leiöa af sér refsivist í lengri eöa skemmri tíma. 4. Að undirbúa nauðsynlegar breyt- ingar á bókhaldslögum nr. 51/1968 og reglugerð þar að lútandi, sem tryggja gleggri og áreiðanlegri fylgiskjöl með skýrum upplýsingum fyrir utanað- komandi aðila, t.d. skattrannsókna- menn, þar sem fram kemur nákvæm- ari sundurliöun reikninga. Ennfremur að skuldbinda alla aðila til að taka í notkun tölusett eyöublöð og reiknings- form, sem eru útgefin og viðurkennd af opinberum aðilum, t.d. skattstofum. 5. Aö beita sér fyrir nauðsynlegum breytingum á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt með síöari breytingum, svo og framtalsreglum til aö tryggja áreiöanlegri og fjölþættari upplýsingar um fyrirtæki og einstak- linga í atvinnurekstri. Endurskoöa þarf sérstaklega í því sambandi frá- drátt af tekjum af atvinnurekstri, þar með talið risnukostnaö, bifreiðafríð- indi, launamat, afskriftir o.fl. 6. Að láta tafarlaust fara fram gagn- gera endurskoðun á fyrirkomulagi söluskattskerfisins með það aö mark- miði aö koma á skilvísri innheimtu söluskatts. Athugað verði, hvort hægt sé að fækka undanþágum og lækka þar með söluskatt. 7. Að beita sér fyrir aukinni hag- ræðingu og tölvuvæðingu við upp- lýsingaöflun og úrvinnslu skattfram- talaogfylgiskjala. 8. Að beita sér fyrir að veitt verði stóraukið fjármagn til skattaathug- ana, einkum til rannsóknadeildar ríkisskattstjóraembættisins, þannig að hægt sé að taka til ítarlegrar rannsókn- ar u.þ.b. 10—20% skattframtala fyrir- tækja og einstaklinga í atvinnurekstri árlega. Eðlilegt er aö skattsektafé ríkisskattanefndar standi straum af rekstri deildarinnar aö einhverju leyti. Að öðrum kosti verður aö koma til sér- greint fjármagn úr ríkissjóði eða frá hinu almenna skattaeftirliti af framtölum launþega. „Likur benda til að skattsvik hér á iandi séu ekki minni en í sumurn okkar nágrannalöndum eða 11% af þjóðartekjum, sem samsvaraði um 5,3 milljörðum á árinu 1983, að söluskattsvikum undanskildum." fjölga og sérhæfa saksóknara í ákveðn- um málaflokkum eða veita öðrum aðil- um eins og ríkisskattstjóra eða skatt- rannsóknastjóra ákæruvald í skatta- málum. 3. Að endurskoöa refsilöggjöf og

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.