Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Side 15
DV. FIMMTUDAGUR 29. MARS1984. 15 Menning Menning /________Menning__________Menning Höggmyndir í rekavið á sýningu Sæmundar Valdimarssonar að Kjarvalsstöðum „Þetta er allt höggviö úr rekaviðar- drumbum,” sagöi Sæmundur Valdimarsson um sýningu sína á Kjarvalsstöðum sem staðið hefur frá 17. mars og lýkur 1. apríl. A sýningunni eru 18 verk eftir Sæmund og þetta er hans fyrsta einkasýning, en hann hefur áður sýnt tvisvar á samsýningum. Sæmundur er Barðstrendingur að upp- runa og var búsettur þar til fullorðins- ára en fluttist til Reykjavíkur 1948. Hann fór að setja saman myndir úr steinum og rekaviði 1970 og hefur gert það stöðugtsíðan. „Eg reyni fyrst að sjá hvað er í hver jum drumbi, hverju er hægt að ná, eftir lögun og stærð. Og svo sem ég sögu um hvert verk. Þetta verk heitir Misrétti, t.d. þessi drengur er beiskur af því hann telur sig beittan misrétti, hann er vanskapaður. Það er nefni- lega misrétti víðar en í þjóðfélaginu, það er misrétti í náttúrunni líka.” Sýningu Sæmundar Valdimarssonar lýkurl.aprílnk. -óbg. Sinfóníutónleikar: Fjölbreytt dagskrá Þrettándu áskriftatónleikar Sin- fóníuhljómsveitarinnar á þessu starfs-. ári verða í Háskólabíói í kvöld. A efnis- skrá veröa f jögur verk: Þjóðvísa eftir Jón Asgeirsson, Andante spianato e Grande Polonaise Brilliante eftir Chopin, Píanókonsert nr. 1 eftir Prokofieff og Konsert fyrir hljómsveit eftir Bartok. Stjórnandi verður bandaríski hljóm- sveitarstjórinn Robert Henderson. Hann hóf hljóðfæranám fjögurra ára gamall og nám í hljómsveitarstjóm og tónsmíðum ekki ýkja löngu síöar. Stjórnaði flutningi á eigin tónsmíð 13 ára og vann til tónlistarverðlauna 16 ára. Hann er nú aðalstjórnandi sinfóníuhljómsveitarinnar í Little Rock, Arkansas, Bandaríkjunum. Roger Woodward píanóleikari hefur lengi verið í hópi eftirsóttustu píanista í heimi. Hann kom fyrst fram opinberlega í London 1971 og hefur síðan verið lítið lát á tónleikahaldi þar sem hann hefur komið f ram með fjölda þekktra hljómsveitarstjóra. -óbg. Robert Henderson hljómsveitarstjóri. Arkitektar - Verkfræðingar - Byggingameistarar - Húseigendur [EmEliTR CSI ab Svíþjóð er eitt elsta fyrirtækið í Evrópu með þessa nýjung. 1. Cementa gólfílagningarefni sem stenst allar þær gæðakröfur er til þarf í íbúðarhúsum og öðrum mannvirkjum. 2. Með þessu efni þurfa múrarar ekki að bogra við að strauja gólf eða að skríða á fjórum fótum við að pússa þau. 3. Fljótandi efni sem leggur sig sjálft og verður algjörlega lárétt (spegilslétt). 4. Mun ódýrara en gamla aðferðin. 5. Þornar á 24 tímum. 6. Fyrir ný sem gömul gólf (getum rétt af gólf allt út í 1 mm). 7. Hagstæðir greiðsluskilmálar á efni og vinnu. Dæmi: Þú greiðir 30% út og eftirstöðvar á allt að 6 mánuðum. Allar upplýsingar gefur Gunnar F.E. Magnússon múrari í síma 20623 kl. 12-13 og 18-22.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.