Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Side 16
16 DV. FIMMTUDAGUR 29. MARS 1984. Spurningin Ertu fylgjandi jafnrétti? Pétur H. Steinsson: Já, ætli ég sé þaö ekki. Oskar Hansen: Já, ég er eindreginn stuðningsmaöur jafnréttis. Magnús Sveinsson: Ég er jafnréttis- lega sinnaöur að mörgu leyti en með mörgum fyrirvörum. Jafnrétti á það á hættu aö ganga út í öfgar og verða að misrétti. SörenLarsen: Já,já,þaðerég. SigurðurGunnarsson: Já, égerþaðað vissu leyti. Bergiind Hilmarsdóttir: Já, ég held að ég sé það. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Frá New Orleans i Bandarikjunum. Lögreglumaðurinn til vinstri er látinn og sá sem liggur upp að trénu er særður. Skotbardagar eru daglegt brauðV útlandinu og bréfritari vill meina að Íslendingar séu heppnir að sleppa með minni háttar ókurteisi. ■ Morð eða ókurteisi? Guðmundur Sigurðsson skrifar: Alveg rak mig í rogastans er ég las í lesendadálki ykkar DV-manna grein eftir mann sem kallar sig Is- lending. Þar telur hann upp hina ýmsu galla íslensku þjóðarinnar og nefnir atriöi eins og ósiðsemi í umferðinni, eigingirni í viðskiptahfi og ókurteisi Islendinga i daglegum samskiptum yfirleitt. Svo segir þessi frómi Islendingur að svona lagað þekkist ekki í út- landinu. Og svo lætur hann það fljóta með aö það sé þeim aga sem her- skyldu fylgir að þakka að aðrar þjóðir séu lengra á veg komnar en viö í þessum málum. Hann segir orð- rétt: „Morð, rán og ofbeldi eru ekki fátíð í nágrannalöndunum, fremur en annars staöar. En þjóðlíf í dagsins önn er meö öörum hætti. . . Fólk á ekki í samskiptaörðugleikum á al- mannafæri og kurteisi er aðalsmerki almennings.” Heyr á endemi. Svo er að skilja á þessum orðum aö „Islendingurinn” vilji skipta á morðum og ránum fyrir einhverja almenna kurteisi. Ætli hann væri þá tilbúinn aö skipta á lífi sínu og ókurteisi annarra í umferð- inni eða aö þurfa að berjast til að komast inn í strætó? Ætli Lundúna- búar vildu ekki láta okkur Islendinga fá hinar fallegu biðraðir viö strætis- vagnana í skiptum fyrir sprengingarnar í Harrods magasíninu og víðar? Nei, vinur, svona hugsunarháttur gengur ekki. Að fara að láta okkur Islendinga handleika einhver vopn svo við hættum aö svína fyrir næsta bíl eru léleg kaup. Það æsir upp í fólki þjóðrembu og fólk fer að fremja alls kyns ódæöis- verk í nafni þjóðarinnar og áður en við vitum af hætta bankarán og morð og þykja forsíðufrétt í blöðum. Nei takk. Við erum komin nógu langt í þeirri þróun samt. Þjóðernisrembingur er hættu- legur. Það sanna dæmin. Hvað eftir annaö hafa stríösóöir forystumenn þjóða allt í kringum okkur notfært sér þjóöerniskennd til að réttlæta hroðaleg myrkraverk. Lítum á Hitl- er og gyðingana og reyndar öll hans verk í styrjöldinni miklu. Lítum á Brésnev og Afganistan. Lítum á Reagan og E1 Salvador. Lítum á fleira og fleira. Allt er þetta gert undir því yfirskini aö vernda hags- muni þjóðarinnar. Hvað er ókurteisi úti á götu í samanburði við öll þau mannslíf sem hafa farið fyrir lítið í styrjöldum og orrustum sögunnar. Og þú, Islendingur. Ef þú ætlar að svara þessu þá skaltu hugsa þig um tvisvar áður en þú stingur niður penna. Þau í fiskiðjuverinu á Súgandafirði vílja aðstöðu til að drekka kaffið sitt. Léleg kaffi- aðstaða íFiskiðjunni á Súgandafirði Verkakona á Súgandafirði hringdi: Hún sagðist ásamt starfssystrum í frystihúsi Sambandsins á staðnum vera oröin þreytt á aðstöðuleysinu í kaffitímunum. Þær þyrftu aö hírast í fatahenginu með stígvélin svo að segja ofan í kaffibollunum. Svo væri þarna fullt eins og kalt og inni í salnum sjálfum. Starfsfólkið hefur margítrekað beðið um sómasamlega kaffiaðstöðu en ekkert hreyfst í þá átt. Afengishækkanir 1747—1821 skrifar: Nú dynja hækkanir yfir okkur eins og snjókom úr lofti. Nú síðast er það áfengiö og tóbakið. Mér skilst á öilu aö hækkunin sé á bilinu 3 til 80 prósent. Til dæmis hækkar Campari úr 320 kr. í 570 kr! Þegar síðasta hækkun var gerð, þann 13. des. síðastliðinn, var sú hækkun gerð tfl að „jafna” verðið. Og þá langar mig til að spyrja háttvirtan forstjóra ATVR hvemig standi á þessari svakaiegu hækkun. Þetta getur nú varla verið „jöfnun” á verði. Fleiri myndir með Doris Day Jóna Sigurgeirsdóttir hringdi: Mikið ægilega varð ég ánægð þegar ég sá að sjónvarpið ætlar að fara að sýna mynd með Doris Day um næstu helgi. Vona ég bara að sjónvarpiö haldi því áfram og sýni þá einhverjar myndir með henni og Rock Hudson í aðalhlutverki. Gott hjá ykkur. Tekið i nefið. 73% hækkun á neftóbaki — of mikið Tryggvi Þorvaidsson hringdi: Eg er mjög gramur og óánægður með það hve hækkun á neftóbakinu var gífurlega mikil. Hækkaði dósin úr 22 krónum í 38 eða um 73%. Hvernig getur staðið á svona gífurlegri hækkun? Hvers eigum við gömlu mennirnir að gjalda? Margir erum við aöeins meö okkar einu innkomu í mynd ellilífeyris eða þá meö lágar tekjur annars staðar frá. Þó að þessi nef- tóbaksneysla hafi einhver óhreinindi í för með sér þá er hún mörgum okkar bráðnauðsynleg og sumir okkar geta hreint ekki verið án þess arna. Því spyr ég, hví svona gífurlega hækkun? Við þekkjum hana úr Me and My Girl þessa. Sá þáttur fær hrós hjá brófritara. Góður skemmtiþáttur 3196—3834 skrifar: Jæja. Haldiö ykkur nú fast. Eg ætla aö þakka fyrir góðan skemmtiþátt, íslenskan, sem var í sjónvarpinu laugardaginn 17. mars. Þaö er alitaf góð tilbreyting að hlæja. Vellingur með nokkrum vel gerjuðum rúsínum hefði eflaust aukið á kæti mína en það þýðir ekki að tala um það sem ekki er hægt. Áfram með góða skapið. Meira af þessu. Skilaboö til sjónvarpsins frá vinnu- félaga mínum, Herdísi: Þátturinn Me and My Girl er eitt- hvað það besta sem sést hefur í sjón- varpinu. Það eru víst fleiri á sama máli og hún.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.