Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Page 17
DV. FIMMTUDAGUR 29. MARS1984.
' 17
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
IVorskt sjónvarp er eittþað lélegasta á Norðurlöndum, segir bréfritari.
KEFLAVÍKURSJÓN-
VARPIÐ AFTUR
0523-0764 skrifar:
Eg vil taka undir bréf frá sjónvarps-
notanda sem birtist 23/3 sl. hér í les-
endadálknum þess efnis að íslenska
sjónvarpiö hefði ekki staðið sig sem
skyldi. Það er í einu orði sagt lélegt.
Það mætti vera miklu meira og betra
barnaefni, fleiri kvikmyndir (ekki
bara um helgar) og fleiri íslenskir
skemmtiþættir væru vel þegnir.
Norskt sjónvarp er eitt það lélegasta
á Noröurlöndum og finnst mér að þjóð-
in eigi heimtingu á að fá aö ráða hvort
hún vill þetta sjónvarp en ekki bara
skella þessu á án fyrirvara, svipaö og
þegar khppt var á Kanann sem var
mjög gott sjónvarp. Þá var ekki verið
að spyrja einn eða neinn, bara klippt á,
ekkert nema f jandans frekja.
Eg skora á ykkur, ráðamenn, að
semja viö Keflavíkursjónvarpið svo
allir landsmenn geti haft eitthvert
efnisval. Tímarnir breytast og
mennirnir meö, það gerir meiri kröfur
og íslenska sjónvarpið hefur algerlega
brugöist.
Landsmenn, ég skora á ykkur að láta
heyra frá ykkur um sjónvarpsmáUn og
endurhehntingu Keflavíkursjónvarps-
ins.
Bændur eru ekki baggar á þjóðfélaginu, segir bréfritari.
Bændureru
ekki baggi
Guðbjörg Indriðadóttir, Brúnastöðum
í Fljótum, hringdi:
Mig langar að koma með Utla
áskorun til ritstjóra DV vegna iUra
skrifa hans um landbúnaðarmál.
Bændafólk er ákaflega óhresst með
þessi skrif og finnst þau í hæsta máta
óviðeigandi.
Við erum engir þurfaUngar eða
baggi á þjóðinni. Viö viljum bara fá að
lifa eins og annað fólk. Höfum við ekki
oft þurft að þreyja þorrann og góuna
og aðra erfiða tíma sem hafa í för með
sér lambadauða og annan viðUka
búmissi?
Eg skora á ritstjóra blaösins aö
koma og vera hér í eitt ár eða vetur og
taka við búrekstrinum á meöan við
skreppum til sólarlanda. Það viljum
við fá að gera eins og aðrir.
Eg er Uka viss um að viöhorfin tU
landbúnaðarmála myndu breytast hjá
þessum mönnum.
USTAHÁTÍÐ
Gummi skrifar:
Til aUra þeirra sem hafa og ætla að
leggja orð í belg vegna komandi lista-
hátíðar. Farið nú að hætta þessum
hundleiðinlegu og lágkúrulegu skrifum
ykkar. Fyrir utan að vera á
einstaklega lágu plani þá fá þau engu
breytt um hvaöa sveit kemur.
Um bandarísku þjódina:
Nú er það Hart-æðið
Reykvíkingur skrifar:
Bandariska þjóðin kom enn einu
sinni upp um sjálfa sig um daginn er
hún sýndi hve úrkynjuð hún er. Enn
eitt æðið hefur gripið um sig hjá
henni. Síðast var það dúkkuæðið þar
sem fólk eyddi öUu sínu sparifé tU að
geta ættleitt dúkkur.
Nú er þaö Hart-æöið. Gary,
Hart, forsetaframbjóðendaefnL
demókrata. Það er vinsælt að greiða,
honum atkvæði því hann segist vera í
forsvari fyrir nýja tíma. En hvað
kemur svo i ljós þegar málið er
skoöaö ofan í kjölinn? Það er sáralít-
ill munur á honum og Mondale og ef
eitthvað er þá er Hart afturhalds-
samari. En þetta er bandaríska
þjóöin í hnotskurn. Það eru slagorðin
sem gilda því hún hefur ekki rænu
eða vit á því að gá hvað undir býr.
Urkynjunin lætur ekki að sér hæða.
Gary Hart. Nýjasta æði þeirra
Bandarikjunum.
anttprb ab etö luntn €rla
Snorrabraut 44 — pósthólf 5249 Sími 14290.
HÚRPULEIKUR
Stærð 50 x 50,
saumað með
dökkryðrauðu
Verð kr. 330.
ASTARENGLARNIR
Stærð 20 x 20, saumað með brúnu, 2 saman í
pakkningu. Verð kr. 220.
ENGLABÖRN í GLEÐI 0G S0RG
Stærð 40 x 40 cm, saumað með brúnu, 2 sam-
an í pakkningu. Verð kr. 420,-
Tilbúnir rammar og mikið úrval af rammalistum. Sérhœf-
um okkur i innrömmun á handavinnu. Vönduð vinna.
ALEIGAN
Stærð 50 x 70, saumað
með brúnu. Verð kr. 520,-
NÝTT RÚM
Sandra
Verd kr.28.790
m/dýnum