Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Síða 17
DV. FIMMTUDAGUR 29. MARS1984. ' 17 Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur IVorskt sjónvarp er eittþað lélegasta á Norðurlöndum, segir bréfritari. KEFLAVÍKURSJÓN- VARPIÐ AFTUR 0523-0764 skrifar: Eg vil taka undir bréf frá sjónvarps- notanda sem birtist 23/3 sl. hér í les- endadálknum þess efnis að íslenska sjónvarpiö hefði ekki staðið sig sem skyldi. Það er í einu orði sagt lélegt. Það mætti vera miklu meira og betra barnaefni, fleiri kvikmyndir (ekki bara um helgar) og fleiri íslenskir skemmtiþættir væru vel þegnir. Norskt sjónvarp er eitt það lélegasta á Noröurlöndum og finnst mér að þjóð- in eigi heimtingu á að fá aö ráða hvort hún vill þetta sjónvarp en ekki bara skella þessu á án fyrirvara, svipaö og þegar khppt var á Kanann sem var mjög gott sjónvarp. Þá var ekki verið að spyrja einn eða neinn, bara klippt á, ekkert nema f jandans frekja. Eg skora á ykkur, ráðamenn, að semja viö Keflavíkursjónvarpið svo allir landsmenn geti haft eitthvert efnisval. Tímarnir breytast og mennirnir meö, það gerir meiri kröfur og íslenska sjónvarpið hefur algerlega brugöist. Landsmenn, ég skora á ykkur að láta heyra frá ykkur um sjónvarpsmáUn og endurhehntingu Keflavíkursjónvarps- ins. Bændur eru ekki baggar á þjóðfélaginu, segir bréfritari. Bændureru ekki baggi Guðbjörg Indriðadóttir, Brúnastöðum í Fljótum, hringdi: Mig langar að koma með Utla áskorun til ritstjóra DV vegna iUra skrifa hans um landbúnaðarmál. Bændafólk er ákaflega óhresst með þessi skrif og finnst þau í hæsta máta óviðeigandi. Við erum engir þurfaUngar eða baggi á þjóðinni. Viö viljum bara fá að lifa eins og annað fólk. Höfum við ekki oft þurft að þreyja þorrann og góuna og aðra erfiða tíma sem hafa í för með sér lambadauða og annan viðUka búmissi? Eg skora á ritstjóra blaösins aö koma og vera hér í eitt ár eða vetur og taka við búrekstrinum á meöan við skreppum til sólarlanda. Það viljum við fá að gera eins og aðrir. Eg er Uka viss um að viöhorfin tU landbúnaðarmála myndu breytast hjá þessum mönnum. USTAHÁTÍÐ Gummi skrifar: Til aUra þeirra sem hafa og ætla að leggja orð í belg vegna komandi lista- hátíðar. Farið nú að hætta þessum hundleiðinlegu og lágkúrulegu skrifum ykkar. Fyrir utan að vera á einstaklega lágu plani þá fá þau engu breytt um hvaöa sveit kemur. Um bandarísku þjódina: Nú er það Hart-æðið Reykvíkingur skrifar: Bandariska þjóðin kom enn einu sinni upp um sjálfa sig um daginn er hún sýndi hve úrkynjuð hún er. Enn eitt æðið hefur gripið um sig hjá henni. Síðast var það dúkkuæðið þar sem fólk eyddi öUu sínu sparifé tU að geta ættleitt dúkkur. Nú er þaö Hart-æöið. Gary, Hart, forsetaframbjóðendaefnL demókrata. Það er vinsælt að greiða, honum atkvæði því hann segist vera í forsvari fyrir nýja tíma. En hvað kemur svo i ljós þegar málið er skoöaö ofan í kjölinn? Það er sáralít- ill munur á honum og Mondale og ef eitthvað er þá er Hart afturhalds- samari. En þetta er bandaríska þjóöin í hnotskurn. Það eru slagorðin sem gilda því hún hefur ekki rænu eða vit á því að gá hvað undir býr. Urkynjunin lætur ekki að sér hæða. Gary Hart. Nýjasta æði þeirra Bandarikjunum. anttprb ab etö luntn €rla Snorrabraut 44 — pósthólf 5249 Sími 14290. HÚRPULEIKUR Stærð 50 x 50, saumað með dökkryðrauðu Verð kr. 330. ASTARENGLARNIR Stærð 20 x 20, saumað með brúnu, 2 saman í pakkningu. Verð kr. 220. ENGLABÖRN í GLEÐI 0G S0RG Stærð 40 x 40 cm, saumað með brúnu, 2 sam- an í pakkningu. Verð kr. 420,- Tilbúnir rammar og mikið úrval af rammalistum. Sérhœf- um okkur i innrömmun á handavinnu. Vönduð vinna. ALEIGAN Stærð 50 x 70, saumað með brúnu. Verð kr. 520,- NÝTT RÚM Sandra Verd kr.28.790 m/dýnum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.