Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Síða 18
Lögmenn
Aðalfundur Lögmannafélags Islands verður haldinn að Hótel
Sögu, hliðarsal 2. hæð, föstudaginn 30. mars og hefst kl. 13.
Arshóf félagsins verður haldiö að kvöldi sama dags í
Atthagasal Hótel Sögu og hefst kl. 19.00.
STJORNIN.
OFFSETLJÓSMYNDUN
OG SKEYTING
Óskum að ráða offsetljósmyndara sem einnig er vanur
skeytingarvinnu.
Upplýsingar gefur Ólafur Brynjólfsson.
FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Siðumúla 12.
l|f Tilkynning
Þeir sem telja sig eiga bíla á geymslusvæði „Vöku” á Artúns-
höföa þurfa að gera grein fyrir eignarheimild sinni og vitja
þeirra fyrir 10. apríl nk.
Hlutaðeigendur hafi samband við afgreiðslumann „Vöku” að
Stórhöfða 3 og greiði áfallinn kostnað.
Aö áðurnefndum fresti liönum verður svæðið hreinsað og bíl-
garmar fluttir á sorphauga á kostnaö og ábyrgö eigenda, án
frekari viðvörunar.
Reykjavík, 21. mars 1984.
GATNAMALASTJORINN IREYKJAVIK
Hreinsunardeild.
Laus staða
Staða sérfræöings innan læknadeildar Háskóla Islands er laus
til umsóknar. Gert er ráð fyrir, að stöðunni verði ráðstafað til
tveggja ára.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi, og er læknis-
menntun ekki skilyrði. Umsókn fylgi starfsáætlun á sviði
rannsókna í læknisfræði. Jafnframt fylgi umsögn þess
kennara innan læknadeildar sem umsækjandi hyggst starfa
með, þar sem fram komi staðfesting þess að starfsaðstaða sé
fyrir hendi og aö annar kostnaður en laun sérfræðingsins verði
greiddur af viðkomandi stofnun eða deild. Nánari upplýsingar
veitir forseti læknadeildar.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu
um vísindastörf sín, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil
sinn og störf.
Umsóknir skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfis-
götu 6,101 Reykjavík, fyrir 26. apríl nk.
MENNTAMALARAÐUNEYTIÐ,
26. mars 1984.
QSx 'ANTAK
A EFTIRTAL
/ HVERFI:
GLAÐHEIMA
MÖÐRUFELL
DV. FIMMTUDAGUR 29. MARS1984.
Menning Menning Menning
Jafnvægið milli lista-
mannsins ogformanna
— um sýningu Helmut Federle
Nýlistasafnið býður nú upp á
sýningu á verkum eftir Helmut
Federle sem búsettur er í Ziirich í
Sviss. Hann hefur haldiö 9 einka-
sýningar í þekktum söfnum og
galleríum í Sviss og tekiö þátt I fjölda
samsýninga víðs vegar í heiminum.
Samband listamannsins við
formin
Helmut Federle sýnir smá-
myndir, teikningar á pappír, þar
sem bæði má merkja hlutlæga og
óhlutlæga myndsýn. Flestar eru
myndirnar fagurfræöilega óálit-
legar, einnig sem þær verða að
teljast oft æði ópersónulegar. En
þessar neikvæðu athugasemdir sem
miðast við hefðbundna listskoðun
hafa þó sínar skýringar eins og fram
kemur í sýningarskrá. Þar kemur
m.a. fram að þessi myndverk
tengjast á engan hátt expressionism-
anum líkt og áhorfendur gætu haldiö,
þau lýsa ekki neinum tilfinningum á
borð við reiði, ótta eða hryggð. Og
þau eru á engan hátt til að undir-
strika persónuleika eða innra ástand
listamannsins. Og auk þess hafa
þessi verk enga skírskotun til
umhverfisins. Teikningar Helmut
Federle eru fyrst og fremst spuming
um jafnvægi eða svörun milli lista-
mannsins og listarinnar, eða eins og
Myndlist
GunnarB. Kvaran
segir í sýningarskrá: „það sem
skiptir máli er ekki samspiliö milli
formanna. heldur samspiliö milli
mín og formanna.” Málverkið
miðast því ekki við sjálft sig heldur
við sjálfan listamanninn, óháð
sögunni, samfélaginu eða lista-
sögunni með öllum sinum hliðar-
greinum.
Ljót og leiðinleg sýning
En þó svo að ásetningur lista-
mannsins sé vel skýrður í sýningar-
skrá eru það samt sem áður
myndimar sem áhorfandinn skoðar
og veltir fyrir sér. Og líkt og öll
myndlist byggjast þessi verk á
ákveðnu myndmáli og myndskrift.
En í þessum verkum er erfitt að sjá
tengslin milli myndmálsins og hinna
fræðilegu hugleiðinga. Við getum
ekki merkt í verkunum hið
uppbyggjandi samspil milli lista-
mannsins og formanna. Við sjáum
aðeins hiö endanlega verk sem
virkar líkt og pár, auk þess sem
formin detta stundum ofan í sögu-
lega þekkt fyrirbæri eins og t.d.
formheim Mondrians eða Arp. En í
gegnum textann fáum við þá vit-
neskju að verkin séu „fullkomin”
vegna þess að þau eru í jafnvægi við
„sýn” listamannsins.
Viðkunnanlegar
hugleiðingar
Þegar á heildina er litið og reynt er
að skoða sýninguna í ljósi þeirra
upplýsinga sem er að finna í
sýningarskránni getur maður verið
fyllilega sáttur og jafnvel hrifist af
þessum viökunnanlegu hug-
leiðingum. En aftur á móti virkar
textinn ekki í sambandi við
myndimar. Þær detta inn í lista-
söguna sem söguleg endurtekning.
Eða hvemig fellur pop-portrettið inn
íkenningarkerfið? -GBK.
Myrtd eftir H. Federle. Ljósm. GBK.
Listahátíð 1984:
Lundúnafílharmónían
með tvenna tónleika
— dagskrá hátíðarinnar að mestu f rágengin
Listahátíð 1984 hefst í Reykjavík
1. júní næstkomandi og stendur til 17.
júní. Dagskrá hátíðarinnar er nú í
stórum dráttum tilbúin og byggir aö
miklu leyti á listsköpun síöustu
tveggja áratuga, áranna 1964 til 1984,
eins og kemur fram í efnisvali á
tónleikum og sýningum. Að öðru
leyti leggur stjórn hátíðarinnar
áherslu á að kæti og gleði ríki á há-
tíðinni með útiuppákomum og ýmsu
fleiru. Þá veröur reynt aö nýta
úthverfin sem mest til sýninga svo
fólk þurfi ekki að leggja á sig löng
ferðalög tii að n jóta listahátíðar.
Setningarathöfn verður í Laugar-
dalshöll þann 1. júní. Þar mun
menntamálaráðherra flytja ávarp
og Sinfóníuhljómsveitin leika syrpu
íslenskra dægurlaga sem vinsæl haf a
verið síðustu tvo áratugi. Einnig
mun Bob Krr’s Whoopee Band, ensk
kráarhljómsveit halda uppi fjöri og
danshljómsveit undir stjórn
Guiuiars Þórðarsonar leika fyrir
dansi.
Einn helsti tónlistarviðburður há-
tíöarinnar verður án efa heimsókn
Fílharmóníuhljómsveitarinnar frá
Lundúnum sem halda mun tvenna
tónleika undir stjóm Vladimú-
Ashkenazy.Munu Ashkenazyog Stef-
án sonur hans leika einleik á píanó á
þessum tónleikum. Þá mun ítalska
söngkonan Lucia Valentini Terreni
IJSl'AH/VTÍD í REYKJÁVÍK
#1. 17JÚNÍ 1984
THK REÝKjAVfK FESTIVAL
Merki listahátíðar: Heilög Sesselja
hoppar af kæti yfir menningarlifi
höfuðborgarbúa.
syngja á tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar og Christa Ludwig og
Eric Werba munu einnig halda
tónleika. Auk þess mun fjöldi
íslenskra tónlistarmanna koma fram
í tengslum við hátíðina.
Af léttari tónlist má nefna að írska
þjóölagasveitin The Chieftains mun
halda tónleika og norrænir jass-
tónleikar verða haldnir, tveir að tölu.
Þá er unnið að því að fá hingað
þekkta erlenda rokkhljómsveit, auk
þess sem samnorrænir rokktónleikar
verða haldnir.
Verk félagsmanna í FIM verða
kynnt í þáttaröð í sjónvarpi meöan
hátíðin stendur og af öðrum
sýningum má nefna yfirlitssýningu á
verkum íslenskra listamanna
búsettra erlendis. Þá verður sýning
á íslenskum listvefnaði og yfirlits-
sýning á vegum Leirlistarfélags
Islands.
Milli skinns og hörunds, nýtt leikrit
Olafs Hauks Símonarsonar, verður
frumsýnt í Þjóðleikhúsinu undir
stjóm Þórhalls Sigurðssonar.
Borgarleikhúsið í Stokkhólmi mun
flytjagestaleik: „Narmanharkans-
lor”. Þá kemur hingað þekktur
hópur látbragðsleikara frá Banda-
ríkjunum, Morse Mime Repertory
Theatre, og einnig látbragðs-
leikarinn Adam Darius. írskur
leikari, Nile Toinin, bregður sér í
gervi Brendan Behan og flytur dag-
skrá með verkum hans. Og svo
kemur þekktur gjörningahópur frá
Finnlandi, Jack Helen-Bmt.
Enn eru viss atriði á dagskrá lista-
hátíðarinnar ófrágengin og eitthvað
kann að bætast við. En það er ljóst að
menningarunnendur mega láta
hendur standa fram úr ermum
fyrstu sautján dagana í júní. -óbg.