Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Síða 28
28
DV. FIMMTUDAGUR 29. MARS1984.
PANTANIR
SÍMI13010
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
KLAPPARSTÍG 29.
Ópið laugardag
Alþjóðlega skákmótið í Neskaupstað:
BENÓNÝ HÆTTIR
OG FUEKIR STÖÐUNA
— Helgi á möguleika á stórmeistaraáfanga
TRULOFUNARHRINGAR
FRÁ
JÓNIOG ÓSKARI
^PAD
ER RÉTTA LEIÐIN
FRÁBÆRT ÚRVAL
GÓD
adstaoa JON og OSKAR,
Laugavegi 70, 101 Reykjavik, simi24910.
LAUGAVEGI97 - Drafnarfelli 12
ADIDAS
TOP TEN HIGH
körfuboltaskórnir
eru komnir,
stærðir 31/2—13
KREDITKORT
Póstkröfusími: 17015.
VELKOMIN
STÖÐVIÐ ÞJÓFINN
NÝJUNG í PENINGASKÁPUM
Eins og myndin sýnir hefur afgreiðslustúlkan aðeins lykla að
skúffunni sem er hluti peningaskápsins og gerir það henni
mjög auðvelt að vera aldrei með mikla peninga í peningakass-
anum. Um leið og skúffunni er lokað falla peningamir niður í
rammgerðan skápinn þar sem þeir eru öruggir fyrir þjófum
sem aðeins heimta peninga úr sjáanlegum peningakassa.
Er til sýnis í:
BLÓMASKÁLANUM
Kársnesbraut 2.
Símar 40810 og 40980.
Benóný Benediktsson, sem sett haföi
svo mikinn svip á alþjóðlega skákmót-
iö í Neskaupstaö, treysti sér ekki til
þess aö tefla fleiri en þrjár skákir og
hætti þátttöku. Þá ákvöröun tók hann
bæði af heilsufarsástæðum og eins
vegna þess að mótherjamir léku aldrei
af sér. Slíku er Benóný ekki vanur,
enda þarf vissulega að tefla afar vel til
þess að forðast hinar margvislegu
„Benóný-gildrur”, sem eru við hvert
fótmál. Þaö er sorglegt að hann skuli
draga sig í hlé, því að jafnvel þótt
honum hafi ekki vegnað sem skyldi, þá
var hann greinilega til alls vís. Tefldi
t.a.m. eins og reyndur stórmeistari
gegn Wedberg og var óheppinn að
tapa.
Fjarvera Benónýs setur strik í
reikninginn og flækir stöðuna, því að
nú situr einn skákmaður yfir í hverri
umferð og vont að átta sig á röð efstu
manna. Þó sker Helgi Olafsson sig
nokkuð úr en hann á jafnframt mögu-
leika á að krækja sér í sinn annan
áfanga að stórmeistaratitli. Til þess
þarf hann 7 1/2 v. af 10 mögulegum —
þurfti 8 af 11 áður en Benóný hætti.
Helgi hefur unnið Róbert og Dan og
stórmeistarana Lombardy og Kneze-
vic. Sá síðastnefndi er öruggur skák-
maöur sem sjaldan tapar skák en
gegn Helga þýðir ekki fyrir hann að
stilla upp. I Grindavík vann Helgi í 56
leikjum og notaði aðeins 24 mínútur af
umhugsunartima sínum (11,4% af
leyfilegum tíma!) og nú vann Helgi í
aðeins 26 leik jum.
Lombardy er með efstu mönnum en
hann hefur aðeins tapað fyrir Helga.
Hann h'fgar mikiö upp á mótiö, því aö
hann er ekkert að flýta sér með fyrstu
leikina og lendir iðulega í tímahraki. Á
síðustu minútunum er hann hins vegar
háll sem áU og nokkrum stööum hefur
hann snúið sér í vil á elleftu stundu.
Jón L. Ámason
Það er ekki úr vegi að renna yfir
skák hans við Schiissler sem er einmitt
einkennandi fyrir þetta. Skiptamuns-
fóm Lombardys er harla vafasöm en í
tímahraki sínu tekst honum að gmgga
taflið og skapa ógnanir. Schiissler
verður á í messunni og Lombardy snýr
tafhnu við. Annars má margt af
skákinni læra um samvinnu mann-
anna.
Hvítt: William Lombardy
Svart: Harry Schiissler
Petrovs-vöm.
1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rxe5 d6 4. Rf3
Rxe4 5. d3
Lombardy er þekktur fyrir að fara
sínar eigin leiðir í byrjun tafls og
treysta lítt á svonefnda „téóríu”.
Fræðimenn telja óþarft að stugga við
riddaranum og vilja leika peðinu fram
um tvo reiti.
5. — Rf6 6. d4d5
AthuguUr lesendur taka e.t.v. eftir
því, að staðan gæti eins hafa komið upp
í franskri vörn eftir 1. e4 e6 2. d4 d5 3.
exd5 exd5 4. Rf3 Rf6, afbrigði, sem
ekki er talið gefa hvítum mikiö í aðra
hönd. I framhaldinu velur Lombardy
beittustu leiðina og tekst að blása lífi í
tafhð.
7. c4! ? Be7 8. Rc3 0-0 9. cxd5
Eina leiðin til þess aö berjast um
frumkvæðið. Eftir 9. Be3 c6 nær
svartur að sty rk ja stöðuna.
9. -Rxd510. Bc4 Rb611. Bb3 Bg412.0—
0Rc613. Be3 Bf614. h3Bh5
Helgi Olafsson.
Eftir 14. - Bxf315. Dxf3 Rxd4 (15. -
Bxd4? er svarað með 16. Hadl og
leppar biskupinn) 16. Dxb7 á hvítur
betra tafl. Nú hótar svartur 15. — Bxd4
og svo virðist sem hvítur verði að
veikja kóngsstöðu sina með 15. g4 til
þess að forða peöinu. En Lombardy
fómar því ótrauður og vonast eftir
mótfærum.
15. Hcl!? Bxd4 16. Bxd4 Bxf3 17. Dxf3
Dxd418. Hfdl Dh419. Rd5 Hac8
20. Hxc6?!!
Fóm eins og þessi byggist ekki á
nákvæmum útreikningum heldur inn-
sæi. Lombardy hefur tamið sér aðferð
Capablanca að telja menn sína til
sóknar og svo menn andstæðingsins
sem eru til varnar. Hér hefur hann
drottningu, riddara, biskup og hrók,
sem geta sameinast til sóknar gegn
svarta kónginum en svartur hefur
aðeins þrjá menn í vöminni:
Drottninguna, hrók og kónginn sjálfan.
Riddarinn á b6 er fjarri góðu gamni og
hrókurinn á c8 tekur heldur ekki þátt í
vöminni. Hins vegar er riddarinn
aöeins einu stökki frá því aö verða aö
manni og hvítur verður því að hafa
snör handtök. Fómin gefur „prakt-
íska” möguleika en það er hæpiö að
hún standist.
20. —bxc6 21. g3 Dg5 22. h4 De5 23. Re3
Dxb2(?)
Fyrsta merki þess að kæruleysi hafi
gripið Schiissler, enda var Lombardy
þegar búinn með næstum allan sinn
tíma. Hann gat lagað stöðu riddarans
með 23. —Rd5, því aö b-peðiö hleypur
ekki burt. Nú missir riddarinn fótfest-
una og möguleikar hvíts aukast.
24. Dxc6De5 25. Hcl!
Hann ætlar í sóknina eftir 5. reitaröð-
inni.
25. — g6 26. Hc5 Dd6 27. Db5 Dd4 (?)
Betra er 27. —c6 28. Da5 Rd7 29. Hg5
Kh8 ásamt f7 — f6 og svartur nær að
treysta vamir sínar. Schiissler
vanmetur sóknarfæri hvíts.
28. h5Hfd8 29.Da5
Þessi dularfulli drottningarleikur
virðist aöeins hafa þann sálfræðilega
tilgang aö taka broddinn úr framrás c-
peösins.
29. —Hd6 30. Hg5 Hc6? 31. hxg6 hxg6
32. Df5! Df6 33. Dg4He8
Hann vill hafa hrókinn „virkan” því
að eftir 33. -Hf8 34.Rf5! Hcl+ 35. Kh2
Dh8+ 36. Rh4 vinnur hvítur.
34. HÍ5 Hcl+ 35. Kg2 Dc6+ 36. Hf3 He7
37.Df4Kg738.Bxf7?
Afleikur, enda var hann alveg að
falla á tíma. Mun sterkara er 38. Dg5!
sem hótar hróknum á e7, Rf5+ og einn-
ig er Hc! í sjónmáli. Nú getur Schiis-
sler unnnið en hann var einnig kominn
í heiftarlegt tímahrak.
38. —He4??
Eftir 38. —Dd6! þvingar hann fram
drottningakaup og ætti að vinna létt.
Ef 39. Rf5+ gxf5 40. Dg5+ Kxf7 41.
Hxf5+ Ke8 42. Dxcl Kd7 nær svartur
að bægja hættunni frá og á manni
meira. Nú snýr Lombardy taflinu við í
einuvetfangi....
39. Dg5! Hc5
Hótunin var 40. Rf5+ og 39. — Kh7
breytir engu, því 40. Rf5! kæmi samt.
Best er 39. —Hxe3 en eftir 40. Dxe3 ætti
hvítur að vinna vegna opinnar kóngs-
stöðu svarts.
40. Dd8! Hf5
eða 40. —Hh5 41. Dg8+ Kh6 42. Dh8+
Kg5 43. Hf5+! gxf5 44. Dg7+ og mátar.
Schiissler náði ekki að leika sinn 40.
leik, því að hann féll á tíma um leið. En
staðan er töpuð eftir 41. Dg8+ Kf6 (41.
—Kh6 42. Dh8+ Kg5 43. Dh4 mát) 42.
Dxg6+ og drottningin fellur.
JLA.