Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Page 29
íiHAM PS HOnAfTHTMWm VH
DV. FIMMTUDAGUR 29. MARS1984. 29
Erling Sigurðsson með nýjan spútnik i skeiðinu, Jagger.
Sigurbjörn Bárðarson sigraði i töltkeppni i karlaflokki á hryssunni HHdu.
Um sjötíu keppendur á vetrarkappreiðum Fáks
(D V-myndir E.J.)
Fjórar konur iúrslitum i töltkeppni ikvennaflokki.
Fyrstu búsetarnir
á Akureyri?
Fjölmenni var á stofnfundi hús-
næðissamvinnufélagsins Búseta á
Hótel KEA á þriðjudagskvöld. Um 80
manns gerðust stofnfélagar. For-
maður var kosinn Jón Arnþórsson.
A fundinum var samþykkt tillaga
um aö skora á Alþingi að samþykkja
húsnæðisfrumvarp hið fyrsta þannig
að slík félög geti fengið lánafyrir-
greiðslu. Einnig að sett verði lög um
búseturéttarformið.
Fram kom að tilbúnar eru á Akur-
eyri bæði fjölbýlis- og raðhúsalóðir. Ef
fjármagn fengist yrði hægt að hefja
byggingaframkvæmdir á þessu ári.
Þannig er hugsanlegt aö fyrstu búset-
amir verði á Akureyri.
Gestur fundarins var Reynir Ingi-
bjartsson, starfsmaður Búseta í
Reykjavík. Hann var á Húsavík á
mánudag þar sem kosin var undirbún-
ingsnefnd aö stofnun félags. I gær-
kvöldi var Reynir á Sauðárkróki þar
sem búist var viö aö sama yrði gert.
Félagið sem stofnað var á þriöju-
dagskvöld er hugsaö fyrir Akureyri en
gert er ráð fyrir að félagssvæðið geti
orðið Eyjaf jörður.
-JBH/Akureyri.
Ríkið greiði náms-
vistargjöld
Jón Sveinsson, varaþingmaður
Framsóknarflokksins, hefur lagt
fram frumvarp um breytingu á lög-
um um iðnfræðslu. I frumvarpinu er
gert ráð fyrir að ríkissjóður greiði
námsvistargjöld fyrir þá nemendur
sem sækja skóla utan síns sveitar-
félags.
Gjald þetta er nú greitt af því
sveitarfélagi sem nemandi á lög-
heimili i. I greinargerð með frum-
varpinu segir að mörg sveitarfélög,
sérstaklega hin smærri og fámenn-
ari, hafi hins vegar algerlega neitað
greiösluskyldu sinni. Ymis stærri
sveitarfélög telji sig því eiga inni
nokkrar fjárhæðir hjá öðrum
sveitarfélögum og hafi það leitt til
deilna sem stafa meðal annars af
óljósum lagaákvæðum, sérstaklega
hvað varðar fjölbrautaskóla. Því er
lagt til með þessu frumvarpi að ríkis-
sjóður taki að sér greiðslu náms-
vistargjalda. OEF
Hestamenn eru nú farnir að leggja á
hesta sína og stunda hestamennsku af
mikilli elju. Eins og vant er hafa þeir
gaman af að sýna hver öðrum hvað
þeir hafa milli handanna. Hesta-
mannafélagið Fákur stóð fyrir keppni í
tölti og skeiði á velli félagsins á Víði-
völlum sunnudaginn 25. mars í blíð-
skapar veðri. Keppt var í tölti í
unglinga-, kvenna- og karlaflokki.
Einnig runnu um það bil 15 hestar 150
metra skeiðsprett.
Fyrirkomulag í töltinu var á eflir-
farandi vegu. Keppendur riðu tvo
hringi á hægu tjlti og greiðu. Þrír dóm-
arar sáu um að velja nokkra einstakl-
inga í úrslit og að lokum var raðað í
sæti.
Urslit urðu þessi.
Unglingaflokkur:
1. Hinrik Bragason á Erli
2. Sólveig Asgeirsdóttir á Neista
3. Dagný Ragnarsdóttir á Hervari
Kvennaflokkur:
1. Kristbjörg Eyvindsdóttir áStefni
2. Þóra Þrastardóttir á Soldáni
3. Ester Harðardóttir á Fjaiari.
Karla/lokkur:
1. Sigurbjörn Bárðarson á Hildu
2. Þórir Om Grétarsson á Gáska
3. Trausti ÞórGuðmundssoná Janúar.
Líklegt er að þau hross sem urðu hér
í verðlaunasætum eigi eftir að sjást í
sumar í gæðingakeppni og einnig —
keppni í hestaíþróttum. Alls voru
keppendurí tölti um það bil sjötíu.
I skeiöinu tóku þátt um það bil 15
hestar. Þar varð fyrstur Hildingur,
sem Sigurbjöm Bárðarson sat, á 15,3
sek. Máni, sem Sævar Haraldsson sat,
var annar á 17,0 sek. en Jagger sem
Erling Sigurðsson sat, þriðjiál7,lsek.
E.J.
Umboð og þjónusta
G. Þorsteinsson & Johnson
Ármúla 1 - Simi 85533