Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Qupperneq 39

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Qupperneq 39
39 hOnrocTAA/r OO CTTTr>/rrTrn'*T<r»«-Tcr ',rrr DV. FIMMTUDAGUE 29. MARS1984. Sandkorn Sandkorn Sandkorn ... 'V \v V#- Einkonnisbúningar starfsmanna i Landsbankanum. Júníform í bönkunum Landsbankinn hefur fariö aðra leiö til að tryggja smekkiegan klæðnað starfs- manna sinna. Hefur hann látið sauma einkennis- búninga handa þeim öllum. Þetta gerir tvennt að verkum; starfsfólk er skikk- anlega klætt og búningarnir koma í veg fyrir að einhverjir óviðkomandi séu að valsa um bankann. í því sambandi segja spaugararnir að líklega verði Iðnaöarbankinn næstur til að taka upp einkennisbúninga. Verði það léttir strigaskór, skíðagleraugu og lambhús- hcttur. Allir vildu vera með Sá ágæti félagsskapur, Blaksamband tsiands, hélt árshátíö sina nú nýlega. Voru meðal annars veitt verðlaun fyrir Islandsmeistaratitilinn á hátíöinni og var það kvennalið Völsungs sem hreppti þau að þessu sinni. Stúlkurnar voru kallaðar upp á svið til að veita verðlaunapeningunum viðtöku. Gengu forráðamenn Blaksambandsins á róðina, afhentu verðlaunin og kysstu stúlkurnar til-hamíngju-koss á kinnina. Þegar afhcndingin stóð sem hæst varð ailt í einu uppi fótur og fit í sainum. Risu karlmennirnir þar úr sætum sinum og hópuðust upp á sviðið til að kyssa verðlauna- hafa. Stóðu þeir í langri biðröð til að komast að og vakti þetta mikla kátínu gesta. Gerir sama gagn Eldri borgarar sóttu mikinn gleðskap í veitinga- húsinu Brciðvangi á dögunum. Voru þar bornar fram gómsætar vcitingar, svo sem þjóðlegur matur af mörgum gerðum. Þótti vel til takast og voru menn hlnir hressustu. Þegar borðhaidinu var að ljúka sneri einn gestanna, eldri maður sér að þjóni, benti á tannstöngla, sem voru á borðinu og sagði: „Segðu mér, hvað er þetta?” „Þetta eru tannstönglar,” svaraöi þjónninn. „Og hvað gerir maður við þá?” spurði maðurinn. „Maður hreinsar úr tönn- unum með þeim,” svaraði þjónninn. „Iss,” sagði gamli maöurinn þá hressilega. „Við erum nú vön að taka út úr okkur tönnurnar og verka þær þannig.” Fatakaup Klæðnaður á vinnustöðum er mjög margvíslegur, enda misjafnar kröfur gerðar þar að lútandi. I Verslunar- bankanum mun starfsfólk tíl dæmis hafa átt það tU að mæta í gaUabuxum, stjórn- endum bankans til nokk- urrar brellingar. Banka- yfirvöld fóru því fram á að starfsfólkiö mætti snyrtilegar tU fara. Þcim var aftur svar- aö þvi tU að laun bankastarf s- manna gæfu ekki svigrúm til mikUIa fatakaupa og sæi starfsfólk því enga möguleika á að mæta uppá- klætt til vinnu sinnar. Stjórnendur hugsuðu nú ráð sitt og buöu síðan starfs- mönnum að kaupa föt fyrir allt að 10.000 króna hver út í reikning bankans. Bankinn myndi síðan draga sömu upphæð af launum viðkomandi smám saman. Segir sagan að kostaboði þessu hafi veriö tekið með fögnuði og heimUdbt nýtt óspart. Umsjón: Jóhanna S. Sigþórsd. Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir Regnboginn — Frances Öriög kvSanyndastjömu Heiti: Frances. Leikstjóri: Graeme Clifford. Handrit: Eric Bergren, Christopher DeVore og Nicholas Kazan. Kvikmyndun: Lazlo Kovacs Tónlist: John Barry. Aðalleikendur: Jessica Lange, Sam Shepard og Kim Stanley. Frances Farmer hefur að líkind- um verið ágæt leUckona, en skap- brestir hennar og þær aðstæður sem leikarar í Hollywood á fjórða ára- tugnum urðu aö búa við gerðu það að verkum að saga hennar er mikil harmasaga af þekktri persónu og um leið enn einn ljótur blettur á höfuð- borg kvikmyndanna, Hollywood. Vafasamt er hvort Frances Farmer hefði vegnaö betur í lífinu heföi hún farið inn á aðra braut í atvinnu- lífinu því þrátt fyrir þá illu meðferð sem hún fékk hjá flestum þeim persónum sem koma við sögu eru þaö þó hennar eigin gallar sem valda því aö hún lætur ekki að stjórn hvort sem er í einkalífinu eða í leikUstinni. Myndin byrjar á því að sýna okk- ur bráðþroska 16 ára stúlku sem hefur fengið fyrstu verðlaun í rit- gerðasamkeppni. Ritgerðin sem er afneitun á guði vekur hneykslun en Frances Farmer lætur það ekki á sig fá og heldur höfði þrátt fyrir árásir, sérstaklega kynsystra sinna. Hugur hennar stefnir til leUdistar og þegar hún fær boð um að ferðast með leikflokk til Moskvu þiggur hún það samstundis, meðal annars vegna þess aö með því móti kemst hún ókeypis til New York. Fljótlega á leikferli sínum vekur Frances Farmer athygli kvikmynda- framleiðenda vegna glæsUeika síns og hún skrifar undir sjö ára samn- ing. En strax við sína fyrstu kvik- myndauppptöku verður henni ljóst að heimur kvikmyndanna á ekki við hana og veldur hún leikstjórum fljót- lega erfiðleikum. Leið hennar liggur tU New York þar sem hún þiggur fegins hendi aðalhlutverk í leikriti eftir Clifford Oates og verður um leiö ástfangin af þessu þekkta leikritaskáldi. En hann yfirgefur hana um leiö og hann hefur ekki not fyrir hana og við þetta áfall veröa kaflaskipti í líf i hennar. Hún snýr aftur að kvikmyndun- um. En hvert hneykslismálið af öðru verður tU þess að enginn vUl ráða hana og í stað þess aö láta hana dúsa í fangelsi, eftir handtöku lætur móðir hennar setja hana á geðveikrahæli. Dvelur hún þar alheilbrigð á geðs- Eini vinurinn sem Frances átti orðið var blaðamaðurinn Harry York. Jessica Lange og Sam Shepard i hlutverkum sínum. munum, að því er séð verður, næstu árin og verður enginn tU að hjálpa henni nema vinur frá æskuárunum, blaðamaðurinn Harry York, sem alltaf hefur haldið tryggð við hana. En þrátt fyrir að hann í tvígang hjálpi henni út af hælinu er það móðir hennar sem lætur setja hana þangað aftur, aðallega vegna þess að hún þolir ekki aö dóttir hennar vUji afneita kvUcmyndastjömutitlinum og reyna frekar að finna sjálfa sig og hvern tilgang líf hennar hafi. I lokin sleppur hún þó út en líf hennar er eyðUagt og vitað er.þótt myndin sýni það ekki, að líf hennar fram í andlátið var enginn dans á rósum þótt hún slyppi að því er virt- ist ósködduð af geðveikrahæli. Þaö er óhætt að segja þaö að Frances er ein af fáum kvikmyndum er gerðar hafa verið eftir lífsferli þekktra persóna sem heppnast full- komlega. Bæði er það aö handrita- höfundar og leikstjóri hafa lagt mikla alúð við viðfangsefnið og svo hitt að þeir hafa valið réttu leikkon- una í hlutverkiö. Jessica Lange er hreint út sagt stórkostleg og tekst aö koma manneskjunni Frances Farm- er svo vel tU skila að áhorfandinn hrífst mjög af þessari þjökuðu konu og fyrirgefur henni þá skapbresti sem er undirstaða hegðunar hennar. Jessica Lange fékk óskarsverð- launin fyrir aukahlutverk í Tootsie og eftir að hafa séð hana í báöum þessum hlutverkum get ég ekki var- ist þeirri hugsun að óskarinn fyrir Tootsie hafi verið sárabót fyrir aö fá þau ekki fyrir leik sinn í Frances. Aðrir leikarar gera hlutverkum sínum ágæt skil, sérstaklega er Kim Stanley áhrifamUcU í hlutverki móðurinnar, manneskju sem hafði þann æösta draum að dóttir hennar yröi fræg og dáð. Þótt líf og leikferUl Frances Farmer hafi næstum veriö fallinn í gleymsku hefur með þessari kvik- mynd verið það rækUega minnt á öriög hennar að þau gleymast ekki í náinni framtið. HUmar Karlsson. Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir •YF,R 9000 • ERU MEÐ BÍLAR Lumenition Eina transistorkveikjan sem slegið hefur í gegn á íslandi. PÓSTSENDUM. E f , hábkbchf : • Skeifunnii sa — Simi 8*47*88: TOPPURINN í DAG OKKAR VERÐ Nr. 6097. Drengjaskór, reimaðir og óreimaðir. Litur: svartur. Stærðir: 27 — 39. Verð frá kr. 579,- 84294 Nr. 84294. Leðurskór með kvarthæl. Litir: hvítur, svartur, grár og rauður Verð kr. 874,- Nr. 2025. Breiðar og mjúkar mokkasínur. Litir: svartur, hvitur, blár og natur. Verð kr. 655,- Nr. 5102. Fermingarmokkasinur úr mjúku leðri á drengi. Litir: svartur, grár, hvítur og blár. Verð kr. 897,- Nr. 2026. Breiðar og mjúkar mokkasínur. Litir: svartur, hvítur, blár og natur. Verð kr. 655 - Nr. 5105. Leðurskór á herra, mjúkir og léttir. Litur: natur. Verð kr. 954,- Ný gerð: Leðurskór á dömur. Litir: blár, hvitur og brúnn. Verð kr. 688,- Ein af fimmtán nýjum gerðum. PÓSTSEIMDUM SAMDÆGURS. KREDITKORT. Nr. 2027. Mjúkir leðurskór á dömur. Litur: drapp. _ Verð Itr. 640,- d!S7 TOPP 21212 ® m SK0RINN VELTUSUND11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.