Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Síða 40
40
DV. FlMMTUDAGUIt29. MARS1984.
Andlát
Anna Jónsdóttir lést 16. mars sl. Hún
fæddist í Valdakoti í Flóa 15. septem-
ber 1895. Foreldrar hennar voru Jón
Þorsteinsson og Þuríöur Arnadóttir.
Anna giftist Guöjóni Þórðarsyni og
eignuöust þau þrjú börn. Utför hennar
veröur gerö frá Dómkirkjunni í dag kl.
13.30
Sigurður Hannessou lést 22. mars sl.
Hann fæddist 21. maí 1913 aö Malar-
landi í Kálfshamarsvík. Foreidrar
hans voru Hannes Jónsson og Sigur-
borg Siguröardóttir. Lengst af stund-
aöi Sigurður sjómennsku. Hann giftist
Onnu Dagmar Lovísu Eyjólfsdóttur en
hún lést áriö 1977. Þau hjónin ólu upp
tvö fósturbörn. Utför Sigurðar verður
gerð frá Garöakirkju í dag kl. 13.30.
FÖTUR FYRIR
ARINVIÐ
Guöjón Einarsson lést 20. mars sl.
Hann fæddist 18. júní 1904 að Holtahól-
um á Mýrum, Austur-Skaftafellssýslu,
sonur hjónanna Guðrúnar Eiríksdóttur
og Einars Guöjónssonar. Guöjón var
formaöur Verslunarmannafélags
Reykjavíkur í 11 ár, frá 1945—1956.
Hann var formaður Vikings og
heiðursfélagi. Arin 1931—1938 átti hann
sæti í Knattspyrnuraði Reykjavíkur,
var formaöur þess í eitt ár. 1944—1948
sat hann í stjórn Iþróttabandalags
Reykjavíkur. Árin 1951—1970 sat hann
í stjórn Iþróttasambands Islands, þar
af í 18 ár sem varaforseti. Hann var
sæmdur heiðursorðu ISI árið 1964 og
gerður aö heiöursfélaga 1970. Eftirlif-
andi eiginkona hans er Hjördís Hjör-
leifsdóttir. Utför Guðjóns verður gerö
frá Dómkirkjunni í dag kl. 15.
Ingibjörg Guðmundsdóttir, Ægisíöu
101, lést 18. mars. Jaröarförin hefur
farið fram.
Minningarathöfn um Brynjólf Einars-
son frá Reyni í Mýrdal, til heimilis á
Hrafnistu, sem lést í Landakotsspítala
23. þ.m., verður í Fossvogskirkju
föstudaginn 30. mars kl. 15. Jarðsett
verður frá Reyniskirkju laugardaginn
31. mars kl. 13.30. Ferð verður frá Um-
ferðarmiðstöðinni kl. 9 árdegis sama
dag.
Margrét Jakobsdóttir frá Asbjamar-
nesi verður jarðsungin frá Breiðaból-
staðarkirkju föstudaginn 30. mars kl.
14.
Aðalheiður Jóhannesdóttir, Stigahlíð
12, veröur jarðsungin föstudaginn 30.
mars kl. 15 frá Hailgrímskirkju.
Olafía Guðmundsdóttir, Þórufelli 4,
áður Hólmgarði 10, verður jarðsungin í
dag 29. mars, kl. 13.30 frá Fossvogs-
kirkju.
íþróttir
Fyrirtækjakeppni Fram
Fyrirtækjakeppni Fram í innanhússknatt-
spyrnu verður haldin laugardag og sunnudag,
31. mars til 1. apríl. Þátttökugjald 1.800.
Tilkynningar um þátttöku berist í síma 34792
milli kl. 13 og 15 virka daga, eigi síðar en
miðvikudaginn 28. mars.
Framkonur
verða með tískusýningu í Framheimilinu
mánudaginn 2. apríl kl. 20.30. Vonumst eftir
að sjá sem flestar. Stjórnin. '
Fundir
Styrktarfélag vangefinna
Aðalfundur félagsins verður haldinn í
Bjarkarási við Stjömugróf laugardaginn 31.
mars nk. kl. 14. Venjuleg aðalfundarstörf.
Kaffiveitingar.
Stjórnin.
Skrifstofur Verzlunarmannafélags Reykjavíkur
veröa lokaðar í dag frá kl. 14.00 vegna jarðarfarar
GUÐJONS EIIMARSSONAR,
fyrrverandi formanns félagsins.
Verzlunarmannafélag Reykjavikur,
Húsi verzlunarinnar.
í gærkvöldi ______ í gærkvöldi
Úr olíunni í kolanámur
Það merkilegasta við sjónvarps-
dagskrána í gærkvöldi var án efa
það að Dallas var ekki á dagskrá,
mörgum til ama og öðrum til mikill-
ar gleði. Annars var sjónvarpið í
gærkvöldi í daufara lagi og gætti þó
nokkurrar bölsýni í þeim tveim dag-
skrárliöum er vöktu athygli mína.
Eftir fréttir var sýnd kanadísk
fræðslumynd um ofnæmissjúkdóma
og vakti það athygli mína hversu víð-,
tækur þessi sjúkdómur getur orðið.
Það er varla til sá hlutur sem fólk
með mjög viðkvæma húð getur ekki
fengið ofnæmi fyrir og lækning gegn
ofnæmi á háu stigi er bæði seinleg og
flókin. Svo er ekkert víst að sjúkling-
urinn læknist að fullu nokkurn tím-
ann. Læknar virðast ekki vera á eitt
sáttir hvemig skuli lækna þennan
óþægilega sjúkdóm sem í sumum
tilfellum getur leitt til dauða sjúkl-
ings og sýnist sitt hverjum.
Synir og elskhugar (Sons And
Lovers) eftir D.H. Lawrence hefur
nú tekið við af Dallas og mun sumum
þykja það heldur dauf skipti. Er
nokkur stigsmunur á miili glæsilífs-,
ins í Dallas og lifnaðarháttum fá-
tækra námumannaf jölskyldna í smá-
bæ í Englandi á seinni hluta nítjándu
aldar. Synir og elskhugar eru
bemskuminningar skáldsins og
gengur hann undir nafninu Paul,
sem kom að vísu frekar lítið við sögu
í gærkvöldi.
I fyrsta þættinum var aöallega
lýst þeirri erfiðu ævi sem móðir hans
átti meðan bömin fjögur voru lítil.
Þetta em greinilega vel gerðir þættir
og leikur allur til fyrirmyndar. En
þó verð ég að segja að ég hafði búist
við léttari þáttaröð í stað Dallas og
var að vonast eftir einhverju frá
Bandarikjunum, því þó að Dallas
komi þaöan er ekki þar meö sagt að
allt sé sama niðurlægingin við sjón-'
varpsáhorfendur.
Það er mikið um góða framhalds-
þætti er gerðir hafa verið á undan-
förnum árum í ameríska sjónvarp-
inu og væri hægt að nefna meðal ann-
arra Winds Of War og Shogun seni
em miniseríur og svo lögreglu-
myndaflokkinn Hill Street Blues sem
sallar að sér sjónvarpsverðlaunun-
um bandarísku ár eftir ár.
Það hefur verið vaninn að enda
sjónvarpsdagskrána á miðvikudags-
kvöldum á endurteknu innlendu efni
og hefur vakið nokkra furðu að
undanfömu að vera að endursýna
illa gerða þætti um gamla búskapar-
hætti. Það er af mörgu betra að taka
og örugglega er flest sem sjónvarpið'
hefur gert merkilegra en þessir þætt-
ir.
Hilmar Karlsson.
Kvenfélag Háteigssóknar
heldur fund þriðjudaginn 3. apríl kl. 20.30 í
Sjómannaskólanum. Gestur fundarins verður
sr. BernharðurGuðmundsson. Mætiðvel.
Golf
Æfingatímar
Golfklúbbur Reykjavíkur hefur fengið að-
stöðu til inniæfinga í Tranavogi 1. Hefur þar
verið komið fyrir netum til að slá í og sett upp
lítil púttbraut.
Aðgangur verður ókeypis en kylfingar
þurfa sjálfir aö koma með bolta og kylfur.
Opið verður þriðjudaga og fimmtudaga frá kl.
16—22,laugardaga kl. 10—16 ogsunnudagakl.
13-19.
Tilkynningar
Frá Breiðfirðingafélaginu
Síðasta spilakvöld vetrarins verður í Domus
Medica laugardaginn 31. mars kl. 20.30. Dans
á eftir.
„Nýlöguð borgfirsk blanda"
Leikdeild UMF Skallagríms Borgamesi hefur
að undanförnu sýnt skemmtunarleikinn
Dúfnaveisluna eftir Halldór Laxness í sam-
komuhúsinu í Borgamesi. Leikstjóri er Kári
HaUdór. Leikritið hefur verið sýnt 13 sinnum
og hefur aðsókn sjaldan veriö betri. Síðasta
sýning á leikritinu verður laugardaginn 31.
mars og verður ekki farið með verkið til
sýninga annars staðar.
I samráði við Hótel Borgames býður leik-
deildin upp á helgarreisur frá Reykjavík upp í
Borgarnes. Nefnist þetta tilboð „Nýlöguð
borgfirsk blanda” og sér Ferðaskrifstofa
ríkisins um sölu á blöndunni.
Vorfagnaður Borgfirðinga-
félagsins
Borgfirðingafélagið í Reykjavík verður með
vorfagnað í Síðumúla 35 laugardaginn 31.
mars kl. 21.00. Mætiö vel og takiö með ykkur
gesti.
Flóamarkaður
Kattavinafélagsins
Flóamarkaður verður á HaUveigarstöðum
sunnudaginn 1. aprU kl. 14. Góðar vömr, gott
verö. Kattavinafélagið.
Kattaeigendur
Merkiðkettiykkar.
Kattavinafélagið.
Breytingar á akstri SVR
Hinn 1. aprU næstkomandi verða gerðar eftir-
farandi breytingar á akstri hjá Strætis-
vögnum Reykjavíkur:
Leið 1 — Lækjartorg-Norðurmýri — verður
breytt þannig að framvegis veröur aðeins
ekið á hálftíma fresti mánudaga til föstudaga
kl. 07 til 19 um sömu götur og áður, þó þannig
að ekið verður af Njálsgötu um EgUsgötu
(Heilsuverndarstöð) og Snorrabraut á
Hlemm og síðan áfram sömu leið og hingað til
á Lækjartorg. I stað þeirra ferða, sem þannig
falla niður, svo og öll kvöld, aUa laugardaga
og helgidaga, verður ekið á hálftíma fresti á
nýrri leið.
Leið 17 — Lækjartorg-öskjuhlíð — Ekið
verður úr Læjargötu sömu leið og að ofan er
lýst um austurbæ, Hlemm, Norðurmýri og
Hlíðar — en í bakaleið á Lækjartorg verður
ekið af Mikiubraut um Lönguhlið niður að
Loftleiðahóteli á Reykjavíkurflugvelli en
síðan hjá Umferðarmiðstöð og um Sóleyjar-
götu í Lækjargötu. Farþegar úr Norðurmýri
og Hlíðum munu því eftir sem áður geta notað
þennan vagn i stað leiðar 1 niöur í miðbæ og er
ekki gert ráð fyrir verulegri tímatöf á hinni
nýju leið frá því sem áður var. Farþegum,
sem ætla úr neðanverðum Hlíðum og af
Landspítalasvæði niður í miðbæ, er bent á
leiðir 6 og 7 (og eftir atvikum leið 1). Með
þessari breytingu er stefnt að betri tengingu
flugvallarsvæðisins við leiðakerfi SVR en
verið hefur án þess að önnur þjónusta SVR sé
rýrð um of. Er gert ráð fyrir þessari tilhögun í
sumar til reynslu.
Leið 18 — Breiðholt-Arbær — A þessari leið
hafa verið farnar tvær ferðir í upphafi
vinnutíma að morgni á virkum dögum að
undanförnu. Nú verður tveimur ferðum bætt
við síðdegis í lok almenns vinnutíma á virkum
dögum og ekið því sem næst öfugt við það sem
gert er að morgni. Auk þess hefur þessari leið
nú verið gefið númer 18. Er þess vænst aö
þessi þjónusta komi að góðum notum í ört
vaxandi byggð í þessum hverf um.
Rækjuvinnsla fer á fulla ferö hjá
Sigló h/f á Siglufirði í næstu viku.
Miklar breytingar hafa staðiö yfir á
húsnæði Siglósíldar undanfarið. Sem
kunnugt er var það fyrirtæki selt
nýjum aðilum í fyrra. Var húsið bók-
staflega allt endurbyggt, sagði
Sæmundur Árelíusson framkvæmda-
stjóri í samtali við DV í morgun.
Aðeins útveggirnir stóðu eftir þegar
búið var að rífa. Enn er ekki vitaö
hver kostnaður við þessar breytingar
verður.
Eftir niundu umferö skákmótsins á
Neskaupstað heldur Helgi Olafsson
enn góðum möguleika á að ná stór-
meistaraáfanga eftir sigur yfir
McCambridge en Margeir Pétursson
virðist hafa misst af lestinni því þegar
skák hans við Lombardy fór í bið var
staða hans talin töpuð. Annar keppandi
á einnig möguleika á stórmeistara-
áfanga, það er Svíinn Wedberg, sem
þarf aö vinna þær tvær skákir sem
eftir eru og er önnur þeirra á móti
Helga. Helgi þarf einn vinning í tveim
umferðum til þess að ná áfanganum.
Málflutningur í Skaftamálinu svo-
kallaða lauk í gær meö því aö lögmenn
ákærðu, þeir Jón Oddsson hrl. og
Guðni Haraldsson hdl., fluttu mál sitt.
Kröfðust þeir sýknu fyrir hönd
Okeypis viðbætir við leiðabók varöandi
þessar leiðir verður afhentur þeim sem óska á
miðasölustöðum SVR og einnig í vögnunum á
ofangreindum leiðum.
Strætisvagnar Reykjavíkur.
Fyrirlestur í
bændaskólanum
á Hvanneyri
í kvöld fimmtudaginn 29. mars næstkomandi
mun Gunnar Ríkharðsson flytja opinberan
fyrirlestur um efniö: Samanburður á nýrri og
eldri aðferðum við mat á próteini í fóðri
jórturdýra.
Fyrirlesturinn verður haldinn í setustofu
Bændaskólans á Hvanneyri og hefst klukkan'
15.
Fyrirlesturinn er lokaáfangi í fjórða árs
námi Gunnars við Búvísindadeild Bændaskól-
ans á HvanneyrL Rannsóknaverkefni hans
var á sviði fóðurfræði og var unnið á tilrauna-
stöð Búnaðarsambands Suðurlands í Laugar-
dælum og Rannsóknastofnun landbúnaðarins.
Sæmundur sagði að afkastagetan í
rækjuvinnslunni yrði tonn á tímann og
gæti orðið um að ræða vinnu allan
sólarhringinn. Tvær nýjar rækjuvélar
voru keyptar en sú gamla er áfram,
samstæöurnar verða því þrjár. Miðað
við vaktavinnu verða 35 starfsmenn í
rækjunni og þegar framleiðsla á
gaffalbitum hefst um miðjan apríl
mun álíka margt fólk vinna þar.
Ekki er enn farið aö ráða starfs-
menn sagði Sæmundur, en það kæmi til
með að vanta f ólk frekar en hitt.
-JBH/Akureyri
Urslit í gær urðu þau að Helgi vann
McCambridge og Wedberg vann
Róbert Harðarson. Knesevic og Hans-
son og Schussler og Guðmundur
Sigurjónsson gerður jafntefli og skák
Margeirs og Lombardy fór í bið, er hún
talin unnin Lombardy. Þá voru tefldar
biðskákir og gerðu þá Jóhann Hjartar-
son og Guðmundur Sigurjónsson jafn-
tefli en McCambridge vann Róbert
Harðarson.
Staðan á mótinu nú, þegar tvær um-
ferðir eru eftir, er sú aö Helgi er efstur
enn meö 6,5 vinninga. ógb
skjólstæðinga sinna af öllum refsi- og
bótakröfum.
Ekki er vitað hvenær dóms er að
vænta í málinu en dómari er Sverrir
Einarsson. 'sl,s
Sigló á fullt
i næstu viku
EINN VINNINGUR í
ÁFANGA HJÁ HELGA
Skaftamálið:
Málflutningi lokið