Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Qupperneq 40
40 DV. FlMMTUDAGUIt29. MARS1984. Andlát Anna Jónsdóttir lést 16. mars sl. Hún fæddist í Valdakoti í Flóa 15. septem- ber 1895. Foreldrar hennar voru Jón Þorsteinsson og Þuríöur Arnadóttir. Anna giftist Guöjóni Þórðarsyni og eignuöust þau þrjú börn. Utför hennar veröur gerö frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30 Sigurður Hannessou lést 22. mars sl. Hann fæddist 21. maí 1913 aö Malar- landi í Kálfshamarsvík. Foreidrar hans voru Hannes Jónsson og Sigur- borg Siguröardóttir. Lengst af stund- aöi Sigurður sjómennsku. Hann giftist Onnu Dagmar Lovísu Eyjólfsdóttur en hún lést áriö 1977. Þau hjónin ólu upp tvö fósturbörn. Utför Sigurðar verður gerð frá Garöakirkju í dag kl. 13.30. FÖTUR FYRIR ARINVIÐ Guöjón Einarsson lést 20. mars sl. Hann fæddist 18. júní 1904 að Holtahól- um á Mýrum, Austur-Skaftafellssýslu, sonur hjónanna Guðrúnar Eiríksdóttur og Einars Guöjónssonar. Guöjón var formaöur Verslunarmannafélags Reykjavíkur í 11 ár, frá 1945—1956. Hann var formaður Vikings og heiðursfélagi. Arin 1931—1938 átti hann sæti í Knattspyrnuraði Reykjavíkur, var formaöur þess í eitt ár. 1944—1948 sat hann í stjórn Iþróttabandalags Reykjavíkur. Árin 1951—1970 sat hann í stjórn Iþróttasambands Islands, þar af í 18 ár sem varaforseti. Hann var sæmdur heiðursorðu ISI árið 1964 og gerður aö heiöursfélaga 1970. Eftirlif- andi eiginkona hans er Hjördís Hjör- leifsdóttir. Utför Guðjóns verður gerö frá Dómkirkjunni í dag kl. 15. Ingibjörg Guðmundsdóttir, Ægisíöu 101, lést 18. mars. Jaröarförin hefur farið fram. Minningarathöfn um Brynjólf Einars- son frá Reyni í Mýrdal, til heimilis á Hrafnistu, sem lést í Landakotsspítala 23. þ.m., verður í Fossvogskirkju föstudaginn 30. mars kl. 15. Jarðsett verður frá Reyniskirkju laugardaginn 31. mars kl. 13.30. Ferð verður frá Um- ferðarmiðstöðinni kl. 9 árdegis sama dag. Margrét Jakobsdóttir frá Asbjamar- nesi verður jarðsungin frá Breiðaból- staðarkirkju föstudaginn 30. mars kl. 14. Aðalheiður Jóhannesdóttir, Stigahlíð 12, veröur jarðsungin föstudaginn 30. mars kl. 15 frá Hailgrímskirkju. Olafía Guðmundsdóttir, Þórufelli 4, áður Hólmgarði 10, verður jarðsungin í dag 29. mars, kl. 13.30 frá Fossvogs- kirkju. íþróttir Fyrirtækjakeppni Fram Fyrirtækjakeppni Fram í innanhússknatt- spyrnu verður haldin laugardag og sunnudag, 31. mars til 1. apríl. Þátttökugjald 1.800. Tilkynningar um þátttöku berist í síma 34792 milli kl. 13 og 15 virka daga, eigi síðar en miðvikudaginn 28. mars. Framkonur verða með tískusýningu í Framheimilinu mánudaginn 2. apríl kl. 20.30. Vonumst eftir að sjá sem flestar. Stjórnin. ' Fundir Styrktarfélag vangefinna Aðalfundur félagsins verður haldinn í Bjarkarási við Stjömugróf laugardaginn 31. mars nk. kl. 14. Venjuleg aðalfundarstörf. Kaffiveitingar. Stjórnin. Skrifstofur Verzlunarmannafélags Reykjavíkur veröa lokaðar í dag frá kl. 14.00 vegna jarðarfarar GUÐJONS EIIMARSSONAR, fyrrverandi formanns félagsins. Verzlunarmannafélag Reykjavikur, Húsi verzlunarinnar. í gærkvöldi ______ í gærkvöldi Úr olíunni í kolanámur Það merkilegasta við sjónvarps- dagskrána í gærkvöldi var án efa það að Dallas var ekki á dagskrá, mörgum til ama og öðrum til mikill- ar gleði. Annars var sjónvarpið í gærkvöldi í daufara lagi og gætti þó nokkurrar bölsýni í þeim tveim dag- skrárliöum er vöktu athygli mína. Eftir fréttir var sýnd kanadísk fræðslumynd um ofnæmissjúkdóma og vakti það athygli mína hversu víð-, tækur þessi sjúkdómur getur orðið. Það er varla til sá hlutur sem fólk með mjög viðkvæma húð getur ekki fengið ofnæmi fyrir og lækning gegn ofnæmi á háu stigi er bæði seinleg og flókin. Svo er ekkert víst að sjúkling- urinn læknist að fullu nokkurn tím- ann. Læknar virðast ekki vera á eitt sáttir hvemig skuli lækna þennan óþægilega sjúkdóm sem í sumum tilfellum getur leitt til dauða sjúkl- ings og sýnist sitt hverjum. Synir og elskhugar (Sons And Lovers) eftir D.H. Lawrence hefur nú tekið við af Dallas og mun sumum þykja það heldur dauf skipti. Er nokkur stigsmunur á miili glæsilífs-, ins í Dallas og lifnaðarháttum fá- tækra námumannaf jölskyldna í smá- bæ í Englandi á seinni hluta nítjándu aldar. Synir og elskhugar eru bemskuminningar skáldsins og gengur hann undir nafninu Paul, sem kom að vísu frekar lítið við sögu í gærkvöldi. I fyrsta þættinum var aöallega lýst þeirri erfiðu ævi sem móðir hans átti meðan bömin fjögur voru lítil. Þetta em greinilega vel gerðir þættir og leikur allur til fyrirmyndar. En þó verð ég að segja að ég hafði búist við léttari þáttaröð í stað Dallas og var að vonast eftir einhverju frá Bandarikjunum, því þó að Dallas komi þaöan er ekki þar meö sagt að allt sé sama niðurlægingin við sjón-' varpsáhorfendur. Það er mikið um góða framhalds- þætti er gerðir hafa verið á undan- förnum árum í ameríska sjónvarp- inu og væri hægt að nefna meðal ann- arra Winds Of War og Shogun seni em miniseríur og svo lögreglu- myndaflokkinn Hill Street Blues sem sallar að sér sjónvarpsverðlaunun- um bandarísku ár eftir ár. Það hefur verið vaninn að enda sjónvarpsdagskrána á miðvikudags- kvöldum á endurteknu innlendu efni og hefur vakið nokkra furðu að undanfömu að vera að endursýna illa gerða þætti um gamla búskapar- hætti. Það er af mörgu betra að taka og örugglega er flest sem sjónvarpið' hefur gert merkilegra en þessir þætt- ir. Hilmar Karlsson. Kvenfélag Háteigssóknar heldur fund þriðjudaginn 3. apríl kl. 20.30 í Sjómannaskólanum. Gestur fundarins verður sr. BernharðurGuðmundsson. Mætiðvel. Golf Æfingatímar Golfklúbbur Reykjavíkur hefur fengið að- stöðu til inniæfinga í Tranavogi 1. Hefur þar verið komið fyrir netum til að slá í og sett upp lítil púttbraut. Aðgangur verður ókeypis en kylfingar þurfa sjálfir aö koma með bolta og kylfur. Opið verður þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 16—22,laugardaga kl. 10—16 ogsunnudagakl. 13-19. Tilkynningar Frá Breiðfirðingafélaginu Síðasta spilakvöld vetrarins verður í Domus Medica laugardaginn 31. mars kl. 20.30. Dans á eftir. „Nýlöguð borgfirsk blanda" Leikdeild UMF Skallagríms Borgamesi hefur að undanförnu sýnt skemmtunarleikinn Dúfnaveisluna eftir Halldór Laxness í sam- komuhúsinu í Borgamesi. Leikstjóri er Kári HaUdór. Leikritið hefur verið sýnt 13 sinnum og hefur aðsókn sjaldan veriö betri. Síðasta sýning á leikritinu verður laugardaginn 31. mars og verður ekki farið með verkið til sýninga annars staðar. I samráði við Hótel Borgames býður leik- deildin upp á helgarreisur frá Reykjavík upp í Borgarnes. Nefnist þetta tilboð „Nýlöguð borgfirsk blanda” og sér Ferðaskrifstofa ríkisins um sölu á blöndunni. Vorfagnaður Borgfirðinga- félagsins Borgfirðingafélagið í Reykjavík verður með vorfagnað í Síðumúla 35 laugardaginn 31. mars kl. 21.00. Mætiö vel og takiö með ykkur gesti. Flóamarkaður Kattavinafélagsins Flóamarkaður verður á HaUveigarstöðum sunnudaginn 1. aprU kl. 14. Góðar vömr, gott verö. Kattavinafélagið. Kattaeigendur Merkiðkettiykkar. Kattavinafélagið. Breytingar á akstri SVR Hinn 1. aprU næstkomandi verða gerðar eftir- farandi breytingar á akstri hjá Strætis- vögnum Reykjavíkur: Leið 1 — Lækjartorg-Norðurmýri — verður breytt þannig að framvegis veröur aðeins ekið á hálftíma fresti mánudaga til föstudaga kl. 07 til 19 um sömu götur og áður, þó þannig að ekið verður af Njálsgötu um EgUsgötu (Heilsuverndarstöð) og Snorrabraut á Hlemm og síðan áfram sömu leið og hingað til á Lækjartorg. I stað þeirra ferða, sem þannig falla niður, svo og öll kvöld, aUa laugardaga og helgidaga, verður ekið á hálftíma fresti á nýrri leið. Leið 17 — Lækjartorg-öskjuhlíð — Ekið verður úr Læjargötu sömu leið og að ofan er lýst um austurbæ, Hlemm, Norðurmýri og Hlíðar — en í bakaleið á Lækjartorg verður ekið af Mikiubraut um Lönguhlið niður að Loftleiðahóteli á Reykjavíkurflugvelli en síðan hjá Umferðarmiðstöð og um Sóleyjar- götu í Lækjargötu. Farþegar úr Norðurmýri og Hlíðum munu því eftir sem áður geta notað þennan vagn i stað leiðar 1 niöur í miðbæ og er ekki gert ráð fyrir verulegri tímatöf á hinni nýju leið frá því sem áður var. Farþegum, sem ætla úr neðanverðum Hlíðum og af Landspítalasvæði niður í miðbæ, er bent á leiðir 6 og 7 (og eftir atvikum leið 1). Með þessari breytingu er stefnt að betri tengingu flugvallarsvæðisins við leiðakerfi SVR en verið hefur án þess að önnur þjónusta SVR sé rýrð um of. Er gert ráð fyrir þessari tilhögun í sumar til reynslu. Leið 18 — Breiðholt-Arbær — A þessari leið hafa verið farnar tvær ferðir í upphafi vinnutíma að morgni á virkum dögum að undanförnu. Nú verður tveimur ferðum bætt við síðdegis í lok almenns vinnutíma á virkum dögum og ekið því sem næst öfugt við það sem gert er að morgni. Auk þess hefur þessari leið nú verið gefið númer 18. Er þess vænst aö þessi þjónusta komi að góðum notum í ört vaxandi byggð í þessum hverf um. Rækjuvinnsla fer á fulla ferö hjá Sigló h/f á Siglufirði í næstu viku. Miklar breytingar hafa staðiö yfir á húsnæði Siglósíldar undanfarið. Sem kunnugt er var það fyrirtæki selt nýjum aðilum í fyrra. Var húsið bók- staflega allt endurbyggt, sagði Sæmundur Árelíusson framkvæmda- stjóri í samtali við DV í morgun. Aðeins útveggirnir stóðu eftir þegar búið var að rífa. Enn er ekki vitaö hver kostnaður við þessar breytingar verður. Eftir niundu umferö skákmótsins á Neskaupstað heldur Helgi Olafsson enn góðum möguleika á að ná stór- meistaraáfanga eftir sigur yfir McCambridge en Margeir Pétursson virðist hafa misst af lestinni því þegar skák hans við Lombardy fór í bið var staða hans talin töpuð. Annar keppandi á einnig möguleika á stórmeistara- áfanga, það er Svíinn Wedberg, sem þarf aö vinna þær tvær skákir sem eftir eru og er önnur þeirra á móti Helga. Helgi þarf einn vinning í tveim umferðum til þess að ná áfanganum. Málflutningur í Skaftamálinu svo- kallaða lauk í gær meö því aö lögmenn ákærðu, þeir Jón Oddsson hrl. og Guðni Haraldsson hdl., fluttu mál sitt. Kröfðust þeir sýknu fyrir hönd Okeypis viðbætir við leiðabók varöandi þessar leiðir verður afhentur þeim sem óska á miðasölustöðum SVR og einnig í vögnunum á ofangreindum leiðum. Strætisvagnar Reykjavíkur. Fyrirlestur í bændaskólanum á Hvanneyri í kvöld fimmtudaginn 29. mars næstkomandi mun Gunnar Ríkharðsson flytja opinberan fyrirlestur um efniö: Samanburður á nýrri og eldri aðferðum við mat á próteini í fóðri jórturdýra. Fyrirlesturinn verður haldinn í setustofu Bændaskólans á Hvanneyri og hefst klukkan' 15. Fyrirlesturinn er lokaáfangi í fjórða árs námi Gunnars við Búvísindadeild Bændaskól- ans á HvanneyrL Rannsóknaverkefni hans var á sviði fóðurfræði og var unnið á tilrauna- stöð Búnaðarsambands Suðurlands í Laugar- dælum og Rannsóknastofnun landbúnaðarins. Sæmundur sagði að afkastagetan í rækjuvinnslunni yrði tonn á tímann og gæti orðið um að ræða vinnu allan sólarhringinn. Tvær nýjar rækjuvélar voru keyptar en sú gamla er áfram, samstæöurnar verða því þrjár. Miðað við vaktavinnu verða 35 starfsmenn í rækjunni og þegar framleiðsla á gaffalbitum hefst um miðjan apríl mun álíka margt fólk vinna þar. Ekki er enn farið aö ráða starfs- menn sagði Sæmundur, en það kæmi til með að vanta f ólk frekar en hitt. -JBH/Akureyri Urslit í gær urðu þau að Helgi vann McCambridge og Wedberg vann Róbert Harðarson. Knesevic og Hans- son og Schussler og Guðmundur Sigurjónsson gerður jafntefli og skák Margeirs og Lombardy fór í bið, er hún talin unnin Lombardy. Þá voru tefldar biðskákir og gerðu þá Jóhann Hjartar- son og Guðmundur Sigurjónsson jafn- tefli en McCambridge vann Róbert Harðarson. Staðan á mótinu nú, þegar tvær um- ferðir eru eftir, er sú aö Helgi er efstur enn meö 6,5 vinninga. ógb skjólstæðinga sinna af öllum refsi- og bótakröfum. Ekki er vitað hvenær dóms er að vænta í málinu en dómari er Sverrir Einarsson. 'sl,s Sigló á fullt i næstu viku EINN VINNINGUR í ÁFANGA HJÁ HELGA Skaftamálið: Málflutningi lokið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.