Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Side 44
44
DV. FIMMTUDAGUR 29. MARS1984.
Dæmalaus Veröld Dæmalaus Veröld Dæmalaus Veröld
LEIÐARLJÚS
Kúluþjóðin
Loksins!
Lausn húsnæðisvandans í
sjónmáli, staðhæfing scm
enginn hefði trúað í gær, og
lausnin felst í kúlu.
Lengi hefur verið vitað að
lífið er hringur en að hús-
næðisvandann mætti leysa
með kúlu eru ný sannindi. Ef
satt reynist ættu Islendingar,
sú þjóð scm af öllum öðrurn
þjóöum helur átt i hvað mest-
iun vandræðum með að koma
sér þaki yfir höfuðið, að taka
ofan fyrir öllu því sem kúlu-
laga er — og taka svo kúlu-
hattinn upp í stað þjóðbún-
ingsins.
Ef satt er að kúluhúsin
ieysi húsnæðisvandann ættu
fornar vættir að víkja af
skjaldarmerki tslendinga og
kúla að koma i staðinn.
Enn um sinn mætti búa i
þeim hefðbundnu húsum sem
þeir duglegustu meðal vor
hafa komið sér upp með
ómældu erfiði, en skipta þcim
út við fyrsta tækifæri og reisa
kúluhús. Þau eru til í öllum
stærðum og þjóðin getur sett
þau saman sjálf. Og svo ku
þau vera hiýrri en önnur
venjulegri hús.
Kúluhugmyndin myndi
breiðast út og ekki láta
nokkurt svið þjóölífsins
ósnortið. Konur gætu hætt að
vera í megrun. Kúlulaga
kvenfólk kæmist í tísku og
það sama á við um
karlmenuina.
Börnin yndu sæl á kúlulaga
þökunum, veltu sér í hringi
og blés" yggjókúlur án af-
láts, tákn uýrrar velferðar og
farsældar í framtíð.
Þegar öll hús á íslandi eru
orðin kúlulaga getum við
lifað á erlendum gjaldeyri
sem vafalítið myndi streyma
inn í landið sem tekjur af
erlendum ferðamönnum sem
kæmu hingað til lands til þess
eins að skoða stóra, feita
fólkið sem býr í hlýju kúlu-
húsunum sinum og elur
börnin á kúlutyggjói.
Við yrðum kölluð kúlu-
þjóðin í norðri (The Ball of
the North), skipuleggjendur
stærstu golfmóta í veröldinni
og tækjum aldrei kúluhatt-
ana ofan.
Lausnin liggur í kúlunni.
Hvolfhúsið i Vestmannaeyjum, eitt hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi, ernú nærþvi fullfrágengið. Tværhæðir, samtals 430 fermetrar. DV-mynd GVA.
Lausn húsnæðisvandans í sjónmáli:
Hvolfhús í einum pakka
— helgarnámskeið í samsetningarf ræðum
,4 byrjun næsta mánaðar byrjum
við að bjóða upp á hvolfhús í einingum,
allt í einum pakka, og samhliöa fylgir
helgamámskeiö í samsetningu hús-
anna. Fólk fer með pakkann heim og
byrjar svo að byggja sjálft,” sagði
Einar Þorsteinn Asgeirsson arkitekt,
hönnuður kúluhúsanna svonefndu sem
allt í einu heita hvolfhús að ráði
íslenskumanna.
„Islenskufræðingamir voru ekki
sáttir við orðið kúluhús því þá heföu
húsin átt að vera heil kúla. Var þá
annaðhvort að kalla þau hálfkúluhús
eða hvolfhús og varð hið síðamefnda
fyrirvalinu.”
Einar Þorsteinn og Samvinnufélag
hvolfþaksbyggjenda hafa í hyggju að
bjóða upp á hvolfhús frá 16 fermetrum
og upp í 2000 fermetra sem væru þá
annars vegar gróðurhús og hins vegar
sýningarhallir. Ibúðarhúsin verða
aftur á móti af stærðargráðunni 120
m2—190 m2.
Þessi hús verða ódýrari en önnur og
venjulegri,” sagði Einar Þorsteinn,
„og kemur þar margt til. Efnis-
kotnaður er minni, fólk getur lagt eigin
vinnu í bygginguna og svo er hitunar-
kostnaður snöggtum lægri en tíðkast.”
Fyrsta hvolfhúsið sem fullgert
verður sem íbúðarhús er nú næstum
fullfrágengið í Vestmannaeyjum. Þar
ætlar Kristján Bogason að flytja inn
með rafmagnsvöruverslun sína, búðin
verður á fyrstu hæð og íbúð á annarri.
Hvolfhúsið í Eyjum er alls 430
fermetrar að stærð og lofthæð tæpir 9
metrar sem skiptist á tvær hæðir.
„Eg er ákaflega ánægður með þetta
hús og er sannfærður um að það-
reynist ódýrara en ef ég hefði byggt
eftir hefðbundnum aðferðum,” sagði
Kristján Bogason sem ráögerir að
flytja inn 1. apríl. Og það er ekkert
gabb.
-EIR.
Alltí
steik
hjá
Bobby
Moore
og Tinu
— einn frægasti knattspyrnumaður heims skilinn
við konu sína eftir 21 árs hjónaband
Bobby og Tina á meðan allt lók í
lyndi.
Það þykir ekki tíðindum sæta þegar
Jón og Gunna skilja aö skiptum en
þegar frægt fólk á í hlut ætlar allt vit-
laust að verða. Nýjasta dæmið um það
er skilnaður þeirra Bobby Moore og
Tinu nokkurrar í Englandinu en þar
hefur stórblaðiö Daily Mirror velt sér
upp úr þessu veseni kappans tvo
síðustu daga. Verið aðalfrétt blaðsins
og stórar myndir af þeim hjónum.
„Ástæðumar fyrir þessum skilnaði
mínum og Tinu eru eingöngu
persónulegar og mitt einkamál,” sagði
Bobby Moore aðspuröur um
ástæðurnar fyrir uppátækinu. Bobby
Moore var fyrirliði enska knattspymu-
landsliðsins sem varð heimsmeistari
1966 eins og margir muna. Hann gerði
garðinn frægastan hjá West Ham þar
sem hann lék mörg hundmð leiki fyrir
félagið og kappinn á að baki 106 lands-
leiki fyrirEngland.
Bobby og Tina hafa verið gift í 21 ár
en upp á síðkastið hafa þau búið sitt í
hvoru lagi. Og nýja konan hans Bobby
heitir Susan Parlane-Moore og er flug-
freyja. En það sem Tina hafði að seg ja
Daily Mirror um málið var þetta: „Ég
hef ekki talað við hann í nokkuö langan
tíma en ég veit hverjar fyrirætlanir
hans eru.”
-SK.
. . . á skólaskemmtun iÁlftamýrarskóla. Þeir heita Bgillog Brjánn.
1 DV-mynd GVA.