Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Síða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Síða 44
44 DV. FIMMTUDAGUR 29. MARS1984. Dæmalaus Veröld Dæmalaus Veröld Dæmalaus Veröld LEIÐARLJÚS Kúluþjóðin Loksins! Lausn húsnæðisvandans í sjónmáli, staðhæfing scm enginn hefði trúað í gær, og lausnin felst í kúlu. Lengi hefur verið vitað að lífið er hringur en að hús- næðisvandann mætti leysa með kúlu eru ný sannindi. Ef satt reynist ættu Islendingar, sú þjóð scm af öllum öðrurn þjóöum helur átt i hvað mest- iun vandræðum með að koma sér þaki yfir höfuðið, að taka ofan fyrir öllu því sem kúlu- laga er — og taka svo kúlu- hattinn upp í stað þjóðbún- ingsins. Ef satt er að kúluhúsin ieysi húsnæðisvandann ættu fornar vættir að víkja af skjaldarmerki tslendinga og kúla að koma i staðinn. Enn um sinn mætti búa i þeim hefðbundnu húsum sem þeir duglegustu meðal vor hafa komið sér upp með ómældu erfiði, en skipta þcim út við fyrsta tækifæri og reisa kúluhús. Þau eru til í öllum stærðum og þjóðin getur sett þau saman sjálf. Og svo ku þau vera hiýrri en önnur venjulegri hús. Kúluhugmyndin myndi breiðast út og ekki láta nokkurt svið þjóölífsins ósnortið. Konur gætu hætt að vera í megrun. Kúlulaga kvenfólk kæmist í tísku og það sama á við um karlmenuina. Börnin yndu sæl á kúlulaga þökunum, veltu sér í hringi og blés" yggjókúlur án af- láts, tákn uýrrar velferðar og farsældar í framtíð. Þegar öll hús á íslandi eru orðin kúlulaga getum við lifað á erlendum gjaldeyri sem vafalítið myndi streyma inn í landið sem tekjur af erlendum ferðamönnum sem kæmu hingað til lands til þess eins að skoða stóra, feita fólkið sem býr í hlýju kúlu- húsunum sinum og elur börnin á kúlutyggjói. Við yrðum kölluð kúlu- þjóðin í norðri (The Ball of the North), skipuleggjendur stærstu golfmóta í veröldinni og tækjum aldrei kúluhatt- ana ofan. Lausnin liggur í kúlunni. Hvolfhúsið i Vestmannaeyjum, eitt hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi, ernú nærþvi fullfrágengið. Tværhæðir, samtals 430 fermetrar. DV-mynd GVA. Lausn húsnæðisvandans í sjónmáli: Hvolfhús í einum pakka — helgarnámskeið í samsetningarf ræðum ,4 byrjun næsta mánaðar byrjum við að bjóða upp á hvolfhús í einingum, allt í einum pakka, og samhliöa fylgir helgamámskeiö í samsetningu hús- anna. Fólk fer með pakkann heim og byrjar svo að byggja sjálft,” sagði Einar Þorsteinn Asgeirsson arkitekt, hönnuður kúluhúsanna svonefndu sem allt í einu heita hvolfhús að ráði íslenskumanna. „Islenskufræðingamir voru ekki sáttir við orðið kúluhús því þá heföu húsin átt að vera heil kúla. Var þá annaðhvort að kalla þau hálfkúluhús eða hvolfhús og varð hið síðamefnda fyrirvalinu.” Einar Þorsteinn og Samvinnufélag hvolfþaksbyggjenda hafa í hyggju að bjóða upp á hvolfhús frá 16 fermetrum og upp í 2000 fermetra sem væru þá annars vegar gróðurhús og hins vegar sýningarhallir. Ibúðarhúsin verða aftur á móti af stærðargráðunni 120 m2—190 m2. Þessi hús verða ódýrari en önnur og venjulegri,” sagði Einar Þorsteinn, „og kemur þar margt til. Efnis- kotnaður er minni, fólk getur lagt eigin vinnu í bygginguna og svo er hitunar- kostnaður snöggtum lægri en tíðkast.” Fyrsta hvolfhúsið sem fullgert verður sem íbúðarhús er nú næstum fullfrágengið í Vestmannaeyjum. Þar ætlar Kristján Bogason að flytja inn með rafmagnsvöruverslun sína, búðin verður á fyrstu hæð og íbúð á annarri. Hvolfhúsið í Eyjum er alls 430 fermetrar að stærð og lofthæð tæpir 9 metrar sem skiptist á tvær hæðir. „Eg er ákaflega ánægður með þetta hús og er sannfærður um að það- reynist ódýrara en ef ég hefði byggt eftir hefðbundnum aðferðum,” sagði Kristján Bogason sem ráögerir að flytja inn 1. apríl. Og það er ekkert gabb. -EIR. Alltí steik hjá Bobby Moore og Tinu — einn frægasti knattspyrnumaður heims skilinn við konu sína eftir 21 árs hjónaband Bobby og Tina á meðan allt lók í lyndi. Það þykir ekki tíðindum sæta þegar Jón og Gunna skilja aö skiptum en þegar frægt fólk á í hlut ætlar allt vit- laust að verða. Nýjasta dæmið um það er skilnaður þeirra Bobby Moore og Tinu nokkurrar í Englandinu en þar hefur stórblaðiö Daily Mirror velt sér upp úr þessu veseni kappans tvo síðustu daga. Verið aðalfrétt blaðsins og stórar myndir af þeim hjónum. „Ástæðumar fyrir þessum skilnaði mínum og Tinu eru eingöngu persónulegar og mitt einkamál,” sagði Bobby Moore aðspuröur um ástæðurnar fyrir uppátækinu. Bobby Moore var fyrirliði enska knattspymu- landsliðsins sem varð heimsmeistari 1966 eins og margir muna. Hann gerði garðinn frægastan hjá West Ham þar sem hann lék mörg hundmð leiki fyrir félagið og kappinn á að baki 106 lands- leiki fyrirEngland. Bobby og Tina hafa verið gift í 21 ár en upp á síðkastið hafa þau búið sitt í hvoru lagi. Og nýja konan hans Bobby heitir Susan Parlane-Moore og er flug- freyja. En það sem Tina hafði að seg ja Daily Mirror um málið var þetta: „Ég hef ekki talað við hann í nokkuö langan tíma en ég veit hverjar fyrirætlanir hans eru.” -SK. . . . á skólaskemmtun iÁlftamýrarskóla. Þeir heita Bgillog Brjánn. 1 DV-mynd GVA.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.