Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1984, Blaðsíða 7
DV. ÞRIÐJUDAGUR17. APRIL1984.
7
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Albert vinur litlu bamanna
„Þaö er hreint okur á kékómjólk-
inni,” hefur verið haft eftir fjórmála-
ráðherra, Albert Guðmundssyni, hér í
DV. Það hefur einnig komið fram i
fréttum að 1 peli af kókómjólk kostar í
smásölu 12.35 kr. Fjórir pelar kosta því
49.40 krónur en í lítrafernu kostar
kókómjólkurlítrinn 37.6O kr. Þessl verð-
munur felst meðal annars í pökkunar-
vinnu. Kókómjólk sem framleidd er
hjá Mjólkurbúi Flóamanna á Selfossi
eingöngu er seld um allt land. t þessu
verði er dreifingar- og flutningskostn-
aöur. Þannig að sama verð er á elnum
pela á kókómjólk á Selfossi, i Reykja-
vik og á Reyðarfirði. Farið hefur verið
fram á athugun reikninga á verömynd-
un þessarar framleiðsluvöru. Þessi
athugun hefur farið fram samkvsmt
upplýsingum Odds Helgasonar, sölu-
stjóra Mjólkursamsölunnar.
Kókómjólkin hefur komist í sviðs-
ljósið vegna reglugerðarbreytingar
um vörugjaldsálagningu og upptöku
söluskatts á þessa vöru og nokkrar
aðrar drykkjarvörur.
I lok síðasta mánaðar ákvað fjár-
málaráðherra að beita lagaheimildum
til að samræma gjaldtöku á ákveðnum
flokkum drykkjarvara. Sem ástæðu
fyrir þeirri ákvörðun ráðherra er sagt í
bréfi frá ráðuneytinu: Um langt skeið
hefur mikið ósamræmi verið ríkjandi
hérlendis í skattlagningu á ýmsum
skyldum drykkjarvörum sem eiga í
innbyrðis samkeppni á drykkjarvöru-
markaðnum. Hefur af þessu ósam-
ræmi orsakast óeðlileg stýring á
neysluvenjum almennings af hálfu
ríkisins og jafnvel mismunun milli ein-
stakra framleiðslugreina og jafnvel
fyrirtækja.
Meginefni reglugerðarinnar er að
fellt er niður sérstakt 24% vörug jald af
hreinum og blönduðum ávaxtasafa,
gosdrykkjum og öli. En áður greiddu
gosdrykkjaframleiðendur auk þessa
gjalds einnigl7%vörugjald.
I stað niðurfellingar 24% vörugjalds-
ins kemur að innheimt verðúr 17%
vörugjald og söluskattur af blönduðum
ávaxtasafa og drykkjarvörum með
bragðefnum eins og nú er innheimt af
gosdrykkjum og öli. Tollar á innflutt-
um drykkjarvörum voru einnig felldir
niður eða lækkaðir til samræmingar.
I kjölfar þessarar reglugerðar hafa
gosdrykkir og öl lækkaö. En blandaðir
ávaxtasafar og hliðstæðir drykkir
hækka eitthvað.
Mikill styr stendur þessa dagana um álögur á þessa drykki.
Heimilisgos og
hollustudrykkir
,JIeimilisgosdrykkir”, þaö eru þeir
sem blandaðir eru í sérstökum vélum
með sérstökum efnum í drykkjarvatn
eru til dæmis skattlagðir eins og aðrir
gosdrykkir en það var ekki áður.
Svo hafa augu manna beinst að svo-
kölluðum „hollustudrykkjum” og
landbúnaðarafuröum, ems og kókó-
mjólk, mangó-sopa og jóga. Avaxta-
drykkir eru margir á boðstólum,
sumir hreinir og teljast þeir vafalítið
hollustudrykkir. En svo eru aðrir
ávaxtadrykkir sem innihalda mikið
sykurmagn og fer lítið fyrir hollust-
unni þá.
Umræðunni ekki lokið
En umræðunni um kókómjólk, mysu-
drykkina mangó-sopa og jóga er ekki
lokiö. Menn hafa sagt að betra sé fyrir
börnin að drekka kókómjólk en kók —
og því séu hér óréttlátar breytingar á
ferðinni. I einni stórverslun í Reykja-
vík fengum við þær upplýsingar að
sala á kókómjólk, mangó-sopa og jóga
sé um 2 1/2% af mjólkursölunni (létt-
mjólk, nýmjólk og undanrennu)
mangó-sopi og jógi eru svo innan við
10% af sölu kókómjólkur. Þessar tölur
miðast við mánaðarsölu. I annarri
verslun fengum við þær upplýsingar aö
mangó-sopi og jógiséu innan viö 5% af
sölu kókómjólkur. Af smákönnun sem
við gerðum meöal skólabama var
samdóma álit aðspurðra að mysu-
drykkimir tveir væru miður góðir. Svo
hvað þá tvo drykkina snertir er ekki
verið að koma viö „hagsmuni” barna
þó að þeir hækki í veröi.
„Vinur litlu barnanna"
Og hvað kókómjólkina varðar gæti
hugsanlega komið í ljós að f ramleiðslu-
DV-mynd: Bj.Bj.
kostnaöur lækki eitthvaö, þannig að
ekki er víst að vöragjalds- eða sölu-
skattshækkunin verði hækkun eftir
allt. Það hefur áður komið í ljós að
framleiðslukostnaður mjólkurafurðar
hef ur verið of hár, til dæmis á jógúrt.
Eins og maðurinn sagði: „Þaöendar
með því að Albert verður ekki bara
vinur litla mannsins. — Hann verður
líka vinurlitlubarnanna”. -ÞG
Tilboösverö
|Ö Q Dl
Q Q
0 0 Q4
Q 0 0
Svalahuröir úr oregonpine með
lœsingu, húnum og þéttilistum.
Verð írá kr. 5.654,-
Útihurðir úr oregonpine.
Verð írá kr. 6.390,-
Bílskúrshurðir,
gluggar og gluggaíög.
Gildir til 1.05.84.
TRESMIÐJAN MOSFELL H.F-
HAMRATÖN 1 MOSFELLSSVEIT SÍMI 6 66 06
SANITÆS
5VKURIITILL
EASKADRYKKUR
Má ekkí bjóða þér að prófa nýjan, sykurlítínn
páskadrykk frá Sanítas h/f?
Gættu að línunum fyrír páskahátíðína og drekktu
sykurlítínn Sanítas-drykk með hátíðarmatnum.
Þú léttist en pyngjan ekki!
1 lækkun á öllu öli og gosí frá Sanítas h/f!