Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1984, Síða 14
W TÆKNIFRÆÐINGUR:
i
Sauöárkrókskaupstaður óskar eftir að ráða tæknifræðing til
starfa frá 1. maí nk. Nánari upplýsingar veitir bæjartækni-
fræðingur í síma 95-5133.
Umsóknir sendist undirrituöum fyrir 20. apríl nk.
Bæjarstjórinn á Sauðárkróki.
HÖFUM FLUTT SKRIFSTOFUR
okkar úr Hafnarhúsinu i Ánanaust 15, Reykjavik. Simanúmer
okkar verður óbreytt
11570.
BERNH. PETERSEN.
FYLKIR -FRÚARLEIKFIMI
Fimleikadeild Fylkis býður upp á leikfimi og gufu í Árseli á
mánudögum kl. 20.00 og miðvikudögum kl. 20.00. 6 vikna
námskeið á kr. 600.00.
Gott fyrir þær sem vilja losna viö páskagrömmin og þær sem
vilja verða enn glæsilegri í sumar.
Innritun í síma 75130 og 21190, Vilborg.
Fimleikadeild Fylkis.
HAPPDRÆTTI
BLINDRAFÉLAGSINS
Dregið var 11. apríl.
Vinningsnúmer eru þessi:
34976, 396, 27830.
Blindrafélagið,
Samtök blindra og sjónskertra
- Hamrahlíð 17.
Smáaugiýsingadeiid
Ánægfu/ega
páskahe/gi
Miðvikudag 18. apríl kl. 9—18.
Skírdag til páskadags LOKAÐ.
Mánudag 23. apríl (2 . í páskum)
kl. 18-22.
Auglýsingin birtist þá í fyrsta blaði
eftir páska — þriðjudaginn 24. apríl.
verður opin um páskana
sem hér segir:
SMÁ -aug/ýsingadei/d,
Þverholti 11 - Sími 91-27022.
v W KJÖRINN FÉLAGI ■n
Urval
ÁSKRIFTARSÍMINN ER
27022
Menning
.1-861 JlHIA ,Vt HUOAOUt.QIHH ,VG
DV. ÞRIÐJUDAGUR17. APRIL1984.
Menning
Menning
LANDSLAG
OG HUNDALÍF
— um sýningu Baltasars
Nú stendur yfir að Kjarvalsstöðum
málverkasýning á myndum eftir
Baltasar. Sýningin er opin daglega frá
kl. 14—22 fram til 23. apríl.
Fiff og flinkheit
Baltasar er spænsk-íslenskur list-
málari sem verið hefur búsettur hér á
landi i fjöldamörg ár. Hann hefur þó
auðsýnilega hlotið listmennt sína í hin-
um spænska listheimi. Býr listamaður-
inn yfir þokkalegri tæknikunnáttu og
virkar oft flinkur í meðferð lita. En fiff
og flinkheit eru langt frá því að vera
nægileg til að skapa megi raunveru-
lega list.
Skipta má málverkunum að
Kjarvalsstöðum í einar þrjár mynd-
gerðir. Fyrst er um að ræða afbrigði af
landslagsabstraktion þar sem lista-
maðurinn dregur upp frumdrætti
náttúrufyrirbrigða og snýr síðan út úr
teikningunni með, aö er virðist, tilvilj-
unarkenndri pensilskrift. En í raun er
listamaðurinn aðeins aö sýsla með list-
sögulega skráðan stíl sem hann nær
ekki að gæða persónulegu inntaki.
Árangurinn er því afar yfirborðslegt
landslagsmálverk í abstraktbúningi. I
hinni raunverulegu landslagsabstrakt-
ion virkar málverkið hins vegar
þannig að landslagiö virðist vaxa út úr
abstraktmyndgerðinni meövitaö sem
ómeövitaö. Og aö áhorfandinn skynjar
samruna fyrirmyndarinnar og mynd-
skriftar listamannsins. Listaverkið
verður syntesa (samtenging) á
náttúrufyrirbærinu og upplifun lista-
mannsins.
Nektarmyndir
Onnur myndgeröin eru nektarmynd-
ir listamannsins sem minna óneitan-
lega á þann götuiðnaö sem er vel
þekktur meðal málara í Evrópu.
Modelið er dregið upp á léreftið eftir
settum reglum en fær að ööru leyti
enga umfjöllun hjá listamanninum.
Náskyld myndgerð eru svo hunda-
myndirnar, natúralískar myndir af
hinum viðkunnanlegustu seppum.
Góöar eftirhermur sem hafa þó ekkert
að gera með list. Þetta myndmál, eins
og það kemur okkur fyrir sjónir hér á
sýningunni, var búið að vinna til hlítar
um miöja 19. öld og er nú gjaman
notað í iðnaði, t.d. til aö skreyta
konfektkassa!
Þriðju myndgerðina hefur lista-
maöurinn svo fengið að láni hjá Goya.
Og er þaö vel til fundið að taka þann
merka listamann til fyrirmyndar en
því miður standast málverk Baltasars
á engan hátt nokkum samanburð við
málverk meistara Goya. Þessi tileink-
un vitnar fyrst og fremst um hug-
myndalega fátækt listamannsins. Og
Myndlist
GunnarB. Kvaran
þar erum við komin aö kjarna málsins.
Það sem listamanninn virðist skorta er
umfram allt hugmyndalegur grunnur,
einskonar gangverk í málverkiö sem
gæfi því um leið dýpri merkingu. Hér
er ekki tekist á við neinar list- og
myndrænar spumingar, hér gerist allt
á yfirborðinu, strigafletinum sem
málarinn verður að fylla út!
Hærri lágmarkskröfur
á Kjarvalsstaði
Það er langt um liðið síðan listunn-
endur hafa orðið vitni að jafnmikilli
lágkúru og meðalmennsku í sýningar-
sölum Kjarvalsstaöa. Myndverk
Baltasars falla á engan hátt undir
listræna sköpun, heldur fremur undir
faglega handmennt, fiff og flinkheit.
Hér skortir fullkomlega alla sjálfs-
gagnrýni og persónulega undirstööu til
að standa á í málverkinu. Það viröist
svo sannarlega vera kominn tími til að
aðstandendur Kjarvalsstaða taki upp
lágmarkskröfur um listrænt gildi
þeirra verka sem fara inn í sýningar-
salina.
GBK
VARUÐ!
Steypuframleiðendurbera
engaábyrgð
Það gladdi mig mjög þegar ég sá
kjallaragrein í DV miðvikudaginn 4.
apríl sl., skrifaða af Gísla Jónssyni
prófessor. Greinin var um bótarétt
steypukaupanda og þar fjallaði um
dóm sem kveöinn var upp í Hæstarétti
hinn 27. júní sl. Greinin gladdi mig
fyrst og fremst vegna þess að ég var
annar aðili þeirrar deilu. Hinn aðilinn
var Steypustööin hf. í Reykjavík. Það
urðu sem sagt öriög mín aö mestöll
steypa sú sem ég keypti frá þessu
fyrirtæki á árinu 1962 til aö steypa upp
hús mitt reyndist vera orðin gjörónýt
14 árum seinna, þ.e.a.s. galli steyp-
unnarkom ekki í ljós fyrr en þá.
Eins og allir lslendingar vita og
þekkja til, þá er húseign eða íbúö oftast
afrakstur heillar starfsævi hverrar
meöalfjölskyldu. Oftast er íbúöarhús-
næði fjölskyldunnar hennar eina eign
og haldreipi í tilverunni. Það er hlut-
skipti flestra Islendinga að basla árum
og áratugum saman til þess aö koma
yfir sig húsnæði. Menn geta því
ímyndað sér þá stööu mína og hvers
sem er þegar í ljós kemur aö sjálft
undirstööuefniö í húsinu, steinsteypan
sjálf, sem á að endast nokkra manns-
aldra í það minnsta, grotnar niður á
nokkrumárum.
Sannfærður um bótaskyldu
Eg var svo sannfærður um bóta-
skyldu Steypustöðvarinnar hf. í þessu
máli aö ég var staöráðinn í því frá upp-
hafi að krefjast bóta, með aöstoö dóm-
stóla ef ekki vildi betur. Þess vegna
var frá upphafi lögð gífurleg vinna í
athuganir og rannsóknir á ástandi
steypunnar. Steypan var send til efna-
greiningar erlendis. Hún var skoðuð og
metin af dómkvöddum sérfræðingum
og Rannsóknarstofnun byggingar-
iðnaðarins rannsakaöi hana eftir bestu
getu. Niðurstaða allra þessara aðila
var sú að umrædd steypa væri stórlega
gölluð frá hendi seljanda og framleið-
anda steypunnar, Steypustöðinni hf.
Mál þetta vannst fyrir undirrétti. Þar
var Steypustöðin hf. dæmd til að greiða
mér háar skaðabætur byggðar á mati
hinna dómkvöddu matsmanna. En
málinu var áfrýjað og Hæstiréttur Is-
lands komst að annarri niðurstöðu.
Niðurstöðu sem þýddi fyrir mig sjálfan
að ég yrði að bera hið gífurlega tjón
sjálfur en fyrir alla aðra húsbyggj-
endur þýddi hún þann boðskap aö
steypuframleiðendur á Islandi þyrftu
ekki að hafa áhyggjur af því hvað þeir
settu í steypuna. Hæstiréttur Islands
komst sem sagt að þeirri niðurstöðu að
steypan væri stóriega gölluð frá hendi
framleiðanda hennar og seljanda en
vegna ákvæðis 54. gr. kauplaganna
bæri steypuframleiöandi ekki ábyrgð
lengureníeitt ár.
Þessi niðurstaða er auðvitað alger-
lega óviðunandi. Hún er að minu áliti
röng. Hún er háskaleg og hún er ekki í
nokkru samræmi viö eðli máls og þá
gíf urlegu hagsmuni sem hér eru í spili.
Eins og þeir þekkja sem nálægt hús-
byggingum hafa komið, þá er alger-
lega útilokað að steypugalli komi fram
innan árs. Steypa er jafnvel ekki þorn-
uð almennilega á þeim tíma og þess
vegna útilokaö að hægt sé að koma við
kvörtun eða veröa galla yfirleitt var á
þeim tíma. En það er einmitt uppistaö-
an í lausafjárkaupalögunum, eins og
mér telst til að lögfræöingar skilji þau
almennt, að gera þá kröfu til kaupanda
JÓN SIGVALDASON
BIFREIÐASMIÐUR
lausafjár að hann skoði vöruna sem
hann er að kaupa og beri fram kvörtun
án ástæðulausrar tafar, verði hann
þess var að vörunni er áfátt. I síöasta
lagi ber honum að kvarta innan árs.
Þetta getur átt viö um flestallt lausafé
og er eðlileg og sjálfsögð regla. En
þetta getur ekki átt viö um steypu.
Hverjar eru afleiðingar
hæstaréttardómsins?
Eg átti satt að segja von á því að
Hæstiréttur Islands tæki tillit til þessa
sérstaka eðlis steypu og hengdi sig
ekki í afgamlar og augljóslega rangar
lagareglur. Eg átti satt aö segja von á
því aö sanngimin og réttlætið sigraði í
þessu máli. Eg trúöi því að svo augljós-
lega gölluð steypa og hið vítaverða
kæruleysi sem fram kom við gerð
hennar af hálfu steypusalans yrði mér
nægjanlegt til að koma ábyrgðinni á
hendur Steypustöðinni hf. Aðeins einn
af dómendum Hæstaréttar komst að
þeirri niðurstöðu að ársfresturinn í
kaupalögunum gæti ekki átt viö I
steypukaupum. Allir aörir hengdu sig í
umrædda lagagrein. Afleiðingamar
eru hrikalegar. Þær eru svo alvarlegar
fyrir alla íslenska húsbyggjendur sem
á annað borð treysta sér eftir þetta til
þess aö nota steinsteypu að ég reiknaði