Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1984, Side 36
36
DV. ÞRIÐJUDAGUR17. APRÍL1984.
DæMALAUS VeRÖLD DæMALAUS 'VeRÖLD Dæmalaus 'V’eröld
LEIÐARLJÓS
Hjóla-
göng
Lífið er hringur, kúluhús í
sókn og það er staðreynd að
íslenska þjóðin vill ferðast um
á reiðhjólum.
Strax árið 1933 fékk biskup-
inn yfir íslandi hjól í
fermingargjöf vestur á Isafirði
og eins og sjá má annars
staðar á síðunni var MarUyn
Monroe líka einlægur aðdáandi
hjólhestsins.
Vandamál íslendinga hefur
aftur á móti legið í því að okkar
fjöllum skrýdda land, með
hæðum sinum og hoitum, hefurj
verið slæmt yfirferðar fyrir'
hjólreiðamenn — og rokið
hjálpar ekki til nema í aðra átt-
ina. i
10 gíra hjólin hafa bætt stöðu
reiðhjólamanna töluvert en þá
er kuldinn eftir, þriðji aöal-
óvinur þeirra sem vilja ferðast
á tveim hringlóttum.
En lausnin er í sjónmáli ef
vel er að gáð. Leggjumst á eitt
og krefjumst þess að byggð
verði göng í gegnum allar
hæðir og misfellur þannig að
aldrei þurfi að fara upp brekku
né niður hana. Og göngin gætu
verið upphituð með jarðvarma
— Island getur þrátt fyrir aUt
orðið paradís hjólreiðamanna. ,
Kostnaðurinn?
Vegaskattur, þungaskattur,
bensíngjald og öll hin 100!
gjöldin sem tengjast bílaum-
ferð á tslandi mundu standaj
undir kostnaði slikra ganga og
gott betur.
Það yrði jafnvel gróði á
göngunum og hjólhesturinn
yrði þarfasti þjónninn. Tveir
hringir undir hvern íslenskan
rass. Megi þeir tímar koma. i
Fermingá
ísafirði 1933
Biskup
fékk
hjól í
ferming
argjöf
Þegar biskupinrt yfir islandi,
herra Pétur Sigurgeirsson, var
fermdur á ísafirði á hvita-
sunnudag árið 1933 voru timarnir
aðrir en i dag.
,,Eg man þennan dag vel Það
voru aðeins nánustu ættingjar og
vinir sem komu i kaffi á heimili
foreldra minna i Tungötu 3 á Isa-
firði en þar leigðu þau hjá Grimi
rakara, föður Olafs Ragnars. Það
var ekki um neitt gjafaflóð að
ræða en samt fékk ég peninga-
upphæð sem nægði fyrir kaupum
á reiðhjóli sem ég festi mér strax
daginn eftir," sagði herra Pétur i
samtali við Dæ Ve.
Reiðhjólið var grænt að lit og
hét CONVINCIBLE Isannfær■
anlegur skv. orðahókl. . . ,,þetta
var fyrsta orðið sem ég lærði i
ensku og hjólið græna átti ég
lengi. Annað sem mér er minnis-
stætt frá þessum degi er að Pétur
Sigurðsson, þá sjóliðaefni á
danska varðskipinu Hvide Björn
og siðar forstjóri Landhelgis-
gæslunnar, var á Isafirði og
hjálpaði mér að klæðast
fermingarfötunum. "
EIR.
Pétur Sigurgeirsson 1933.
Monroe
r
t
shógar-
ferö
Nýlega haf a fundist ljósmyndir
af MarUyn Monroe sem enginn
vissi að væru til. Bandaríski
ljósmyndarinn Andrew Grens-
haw fann nokkrar 25 ára
gamlar filmur í pússi sínu,
fUmur sem hann var búinn að
steingleyma. Og sjá, þegar
myndirnar voru settar á
pappír kom á daginn að þar fór
enginn önnur en sjálf Marilyn
Monroe, draumur hvers karl-
manns á sjötta áratugnum.
Á myndunum situr leikkonan
látna fyrir í hinum ýmsu
gervum fyrirrennara sinna á
listabrautinni. Á einni mynd er
hún Theda Bara, ein af stjörn-
um þöglu kvikmyndanna, á
annarri Jean Harlow, þá Clara
Bowl í charlestonebúningi og
loks sem LUlian Russel á hjóli í
skógarferð — frekar léttklædd.
Myndirnar voru teknar 1958 og
eru nú tU sýnis í New York. Þá
hafa verið framleidd vegg-
spjöld með myndunum handa
hinum fjölmörgu aðdáendum
leikkonunnar sem enn muna
hana og dá þó 22 ár séu liðin frá
dauðahennar.