Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1984, Qupperneq 4
DV. MIÐVIKUDAGUR 9. MAl 1984.
4
er skýring Gísla Gestssonar á brottrekstri leikstjóra Enemy Mine
„Eg sagöi upp. Eg óskaöi eftir aö
hætta daglegum störfum meö þessu
fyrirtæki af ástæöum sem ég kæri mig
ekki um aö rekja í blöðum,” sagði Gísli
Gestsson kvikmyndageröarmaður er
DV spuröi hann um samstarfsslit
Víðsjár, fyrirtækis hans, og 20th
Century Fox.
lrAf persónulegum ástæöum, vildi ég
ekki starfa meö þeim lengur. Þaö var
djúpstæöur ágreiningur um ýmis mál.
Þetta var búiö aö hafa nokkurn
aðdraganda. En ég verö í tengslum viö
þá áfram. Eg er aö ganga frá ýmsum
málum.
Þaö er engin vonska á milli okkar.
Þetta fór ósköp friðsamlega fram. Þaö
varö enginn hasar, langt því frá.
Þarna bara skildu leiöir,” sagöi Gísli.
Hann var spurður hvort tengsl væru
á milli uppsagnar hans og brott-
reksturs leikstjórans:
„Það er ekki alveg óskylt. Viö leik-
stjórinn höföum svipaða afstööu. En ég
var búinn aö taka mína ákvöröun áöur
enhittkomuppá.”
Hvers vegna heldurðu aö leikstjór-
anum hafi veriö sagt upp?
„Eg held aö þetta hafi fyrst og
fremst verið spurning um þaö aö for-
ráðamenn fyrirtækisins vildu ööruvísi
mynd. Leikstjórinn vildi fara nýjar
leiöir. Eg held aö þeir hafi viljaö gera
þetta aö meiri bang-bang mynd.”
Gísli sagöi aö kostnaður viö gerö
myndarinnar hérlendis ætti engan þátt
í þeim sviptingum sem oröiö heföu.
„Þetta var alls ekki fjárhagsspurs-
mál,” sagöihann.
„Eg á ekki von á því að þeir komi
meira til Islands,” sagðiGísli.
„Það veröur staöiö við allar skuld-
bindingar sem 20th Century Fox hefur
gert. Eg er aö vinna í ýmsum frá-
gangsmálum. Þegar framleiöandi
myndarinnar, Stanley O’Toole, kvaddi
mig í gær ítrekaði hann það að félagið
myndi viröa alla samninga sem þaö
hefur gert hér á landi. Eg hef fengið
þaö loforð,” sagöi Gísli Gestsson.
-KMU.
Gísli Gestsson kvikmyndagerðar-
maður: „Ég á ekki von á þvi að þeir
komimeira ti! Íslands."
FOX VILDINIEIRI
BANG-BANG MYND
Aðalleikarar myndarinnar, Dennis Quiade og Lou Gossett jr. ásamt Pálma Lórenssyni, eiganda Gestgjaf- Þessi mynd var tekin i Prestvík á Heimaey þegar kvikmyndun var að Ijúka
ansiEyjum. DV-myndGS, Eyjum. þar fyrirhelgi. DV-myndGS.
í dag mælir Dagfari______________í dag mælir Dagfari______ 1 dag mælir Dagfari
MEÐLÖGIN BJARGA RÍKISSJÓÐI
26. gr. _
Félagsmálaráðherra f.h. Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga er heimilt að taka allt að 150
m. kr. lán eða jafngildi þeirrar fjárhæðar í erlendri mynt til að gera upp gjaldfallnar skuldir
Innheimtustofnunar sveitarfélaga við Tryggingastofnun ríkisins. Vexti og afborganir af láni
þessu greiðir Jöfnunarsjóðurinn af tekjum sínum óskiptum, sbr. ákvæði h-liðar 8. gr. og 1.
mgr. 13. gr. laga nr. 73/1980 um tekjustofna sveitarfélaga.
Fjármálaráðherra er heimilt fyrir hönd ríkissjóðs að ábyrgjast lántöku þessa með
sjálfskuldarábyrgð eða taka jafnhátt lán og endurlána það Jöfnunarsjóði.
Ríkisstjórnin hefur undanfarnar
vikur gert sig að viöundri meö fárán-
legum skoöanaskiptum um svonefnt
f járlagagat. Hefur þar kennt ýmissa
grasa í dauöaleit stjórnarliöa að
tekjulindum sem fyllt gætu gatið
góða. Endaði sú eyðimerkurganga
meö því aö stjórnin ákvaö aö slá lán
að hætti braskara og bruölara undir
kjörorðinu: drekkum í dag, iðrumst
á morgun. Með nýrri erlendri lán-
töku lætur nærrí aö sex af hverjum tíu
krónum, sem þjóðin aflar, farí tii
greiðsiu á skuldasúpunni sem
þjóðarbúiö hefur slegið sér í út-
löndum. Er hér óneitanlega vel að
verki staðið, enda má svo sem segja
að ráðherrar á efri árum hafi minni
áhyggjur af afborgunum heldur en
lántökum. Næsta kynslóð fær reikn-
inginn og stoðar þá lítið að kaila til
ábyrgöar einhverja ráöherraskussa
sem þá veröa löngu gleymdir og
grafnir.
Því verður hins vegar ekki neitað aö
lántökurnar eru byggðar á frumlegu
ímyndunarafli. Langsóttasta lán-
takan er tvímælalaust sú að heimila
fjármálaráöherra fyrir hönd
jöfnunarsjóðs sveitarféiaga að taka
hundrað og fimmtíu milljón króna
lán til að gera upp gjaldfallin
meðlög'. Mun það ekki áöur hafa
þekkst í gjörvallri fjármálasögu
iandsmanna að stoppaö sé upp í göt á
fjárlögum með ógreiddum meðlög-
um. Kalla þó fjármáiaspekúlantar
rikisins ekki allt ömmu sína.
Verður manni til þess hugsaö aö
með fleiri bameignum og vanskilum
í meðlagsgreiðslum hefði veriö hægt
að leysa fjárlagavanda stjómvalda
með næsta auðveldum hætti. Því
fleiri meðlög í vanskilum, því hærri
lán, því meiri peningar til að stoppa í
gatið góöa.
Barasfeöur hafa satt aö segja gert
ríkissjóði hinn versta greiða með
skilvísi sinni sem dregur úr þeim
rnöguleika að hafa meðlagslánið
hærra.
Rikissjóður, sem byggir afkomu
sína á ógreiddum meölögum og nær
endum saman á erfiðum tímum með
Iántökum út á bameignir, er ekki á
flæðiskeri staddur. Þjóöin er kynrík
og frjósöm og með hæfilegri hvatn-
...................■■■.... .........
ingu og fyrirgreiðslu af hálfu hins
opinbera til ástaleikja og samfara
má gera bjartsýnar spár um tímgun
í þjóðfélaginu, sem gefur svo og svo
mikið af sér í meðlögum. Barneignir
í lausaleik, skilnaðarbörn og óskil-
getin afkvæmi ástaleikja geta flokk-
ast undir þjóðarframleiðslu með
veralegum tekjuafgangi ef rétt
vérður á málum haldið. Stjórnmála-
flokkar og rikisstjórair geta gert
stjóramálaályktanir og áætlauir um
þróun þessarar framleiðslu og spá-
nefnd forsætisráðherra ætti að taka
meðlagsskyldar baraeignir með í
reikninginn þegar hún mótar sér
framtíðarsýn. Aldrei er heldur að
vita nema fleiri göt kynnu að mynd-
ast í fjárlögum næstu ára og þá er
gott til þess að vita að meðlags-
greiðslur séu tiltækar, sérstaklega
þegar þær era ógreiddar. Baras-
feður mega og vita að í hvert skipti
sem þeir láta hjá líða að inna meðlög
sín af hendi eru þeir að stuðla að
sterkari stöðu rikissjóðs. Lánamögu-
leikarnir aukast og fjárlög styrkjast
við hverja vanskilaskuld hjá Trygg-
ingarstofnuninni.
Hlýtur það að vera uppörvandi
staðreynd fyrir skuldseiga kvenna-
menn sem hafa dritað niður böraum
út og suður. Þeir eru skyndilega
orðnir bjargvættir þjóðarbúsins,
sverð þess og skjöldur.
Það góða við þessa aðferð er einn-
ig sú staðreynd að erlendar lántökur
era yfirleitt til langs tíma og mun
það því væntanlega standast á end-
um að þegar kemur að gjalddaga eru
blessuð börain, sem til meðlaganna
hafa stofnaö, orðin borgunarmenn
fyrir sínum eigin meðlögum. Segi
menn svo að göt séu fyllt til einskis.
Dagfari