Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1984, Qupperneq 11
DV. MIÐVIKUDAGUR 9. MAl 1984,
11
VIÐTALJÐ:
Vilhjálmur Svan í Traffic,
DV-mynd Loftur.
„Hver og einn
fiskar eftir
því sem hann
langar tf/"
segir Vilhjálmur Svan, eigandi Traffic
,,Eg er búinn að vera í veitinga-
bransanum síðan ég var 16 ára og er
lærður þjónn, og í gegnum súrt og sætt
hafði ég ákveðið að eignast minn eigin
veitingastað,” sagði Vilhjálmur Svan í
viðtali við DV en hann er eigandi ungl-
ingastaðarins Traffic á Laugavegi.
Áður en hann opnaöi Traffic var hann
með unglingastaðinn D—14 í Kópa-
vogi, áöur rak hann Villta tryllta Villa
og þar áður var hann prógrammstjóri
hjáSAÁ.
„Hver og einn fiskar eftir því sem
hann langar til eða vill gera, og með
mig var það þannig að ég hef einu sinni
verið unglingur og hef starfað mikiö
með unglingum í áfengismálum og
langaöi til að takast á við þetta verk-
efni,”sagði Vilhjálmur.
I máli hans kom fram að staðir á
borð við Traffic hefðu vissulega verið
til er hann var unglingur sjálfur en
þeir eru ekki fyrirmynd Traffic ...
.Jf’yrirmyndin er sótt til Villta tryllta
Villa. Þessi staður er sniðinn fyrir full-
orðið fólk, það er það sem unglingarnir
kref jast í dag,” segir hann.
Hvað áhugamál hans sjáifs varðar
segir Vilhjálmur að lítið fari fyrir
þeim... ,,Eg er svoldið fyrir vatnaveið-
ar en geri að öðru leyti mest að því að
vinna og reyni að vera sem mest með
fjölskyldunni,” segirhann.
Hann telur að staður á borð við
Traffic eigi fulian rétt á sér og rúm-
lega það... ,,Er ég starfaði hjáSAA var
ég með fyrirlestra um áfengismál í
skólum. Síðar komst ég í betri tengsl
við ungt fólk í Villta Villa og það heill-
aði mig til að halda þessum rekstri
áfram,” segir hann.
Hvað viðbrögðin við Traffic varðaði
sagði hann aö hann hefði opnað á frek-
ar óheppilegum tíma þar sem próf
stæöu nú yfir... „Ætli þetta komist ekki
í fullan gang hjá okkur er kemur fram
á sumarið,” sagöi hann.
-FRI
Kiwanisfólkið íhrakningum á Breiðadalsheiði:
r r
YTTU RUTUNNI
ABLANKSKONUM
Einn af Kiwanismannahópnum sem
lenti í hrakningum á Breiðadalsheiði
um helgma hafði samband við DV og
vildi koma að athugasemd vegna frétt-
er DV af málinu. Alls ekki var um það
aö ræða aö fólkið hefði setiö inni í
rútunni, sötrað „nestið” og beðið
meöan hjálp barst þar sem „nestið”
var löngu búið, heldur brugðu karl-
mennirnir sér út úr rútunni, á blank-
skónum og í samkvæmisgallanum og
reyndu aö ýta rútunni þar sem hún sat
föst. Tókst þeim að ýta henni þannig
nokkra metra.
Hann vildi ennfremur taka það
fram að bílstjórinn, sem var stúlka,
heföi verið hörkudugleg og fær öku-
maður og að hópurinn heföi verið bæði
frá Isafirði og Bolungarvík auk fólks
frá Reykjavík. -FRI
OPIÐ
Mánud.-fimmtudaga 9-
Föstudaga kl. 9—20.
Laugardaga kl. 9—16.
19.
uia
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Simi 10600
NÝKOMIN BORÐSTOFUBORÐ
OG STÚLAR
FRÁ
HOLLANDI.
HUSGAGNAVERSLUN
REYKJAVÍKURVEGI64 S. 54499 GARÐASTRÆT117 S.15044