Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1984, Blaðsíða 20
20
DV. MIÐVIKUDAGUR 23. MAl 1984.
Elton John
Tónskáldið og poppsöngvarinn Elton John
gat ekki faiið tárin, þegar úrslitaleikurinn í
ensku bikarkeppninni milli Everton og Wat-
ford var að hcfjast á Wembley-Ieikvanginum í
Lundúnum á laugardag. Það voru þó gleðitár,
tár stolts manns, þegar litla félagið hans, Wat-
ford, var allt í einu í sviðsijósi heimsins.
Félagið, sem hann hefur fylgt frá því bann var
smádrengur og er nú aðaleigandi þess og
stjórnarformaður, hefur lagt mikla peninga i
félagíð cnda af nógu að taka. Elton er marg-
faldur milljóna-mæringur í sterlingspundum
og peningar streyma stöðugt inn fyrir lög
hans. Watford var í 4. dcild í samnefndum bæ í
norðurjaðri Lundúnaborgar þegar Elton tók
þar við stjórnartaumunum. Eftir það lá leiðin
beint upp í 1. deild. I fyrravor varð Watford í
öðru sæti í 1. deild á eftlr meisturunum Liver-
pool og nú i úrslitum bikarsins. Von að Elton
John sé stoltur. Watford hóf keppni í 3. deild
þegar bún var stofnuð 1920 og rokkaði milli 3.
og 4. deildar þar til Elton breytti öllu.
hsim.
Irar hafa nú
sigurmöguleika
— f bresku meistarakeppn-
inni eftir jafntef ii f Swansea
Wales, mótherji Islands i heimsmeistara-
keppninni, gerði jafntefli við Norður-Irland
1— 1 í bresku meistarakeppninni í Swansea i
gærkvöld. Irar hafa nú möguleika á sigri í
keppninni, hinni síðustu sem báð verður. Ef
Skotland og England gera jafnteflí á Hamp-
den Park á la ugardag verður sigurinn Ira.
Mark Hughes, Man. Utd, skoraði mark
Wales á 52. mín. og skömmu síðar fékk Ian
Rush, Liverpool, tækifæri til að koma Wales t
2— 0. Spyrnti yfir maritiö af sex metra færi.
Gerry Armstrong, Majorka, jafnaði fyrir
Norður-lrland á 73. min. — skallaði i mark eft-
ir góöa fyrirgjöf Norman Whiteside, Man.
Utd. Fleiri uröu mörkin ekki.
Pat Jennings, Arsenal, — markvörður
Norður-Irlands, slasaöist í leiknum, rétt fyrir
leikhléiö eftir samstuö við Rush. Lék ekki
meira en allar likur eru á aö hinn 39 ára mark-
vöröur teiki meö N-Iriandi í HM-leiknum viö
Finnland á sunnudag.
hsim.
Di Stefano
látinn hætta
Alfredo di Stefano, einn snjallasti leikmað-
ur í sögu knattspyrnunnar, hefur látið af störf-
um sem þjálfari Real Madrid. Ekki rekínn en
samningur bans verður ekki endurnýjaður að
sögn formanns Real, Luis de Carlos. Di Stef-
ano tók við stjórninni hjá Real Madrid 1982 og
þetta fræga féiag hefur ekkert unnið á þeim
tíma sem hann hefur verið við stjórnvölinn.
Alfredo df Stefano er argentinskur og lék
aðalhlutverk í iiði Real Madrid, þegar það var
Evrópumeistari fimm sinnum í röð 1956—1960.
Lék 35 leiki i Evrópubikarnum og skoraði 36
mörk. Skoraði í öllum úrslitaleíkjunum, þar á
meðal þrcnnu, þegar Real slgraði Eintracht
Frankfurt 7-3 á Hampden Park 1960. Ung-
verjinn snjaUi, Ferene Puskas, skoraði hin
fjögur mörk Real. hsim.
Aftur dregið
f riðla á OL
Það verður að öUum likindum dregið
aftur i riðla í handknatUeikskeppninni á
OL í Los Angeles. Fimm af þjóðunum
sem áttu að keppa á OL hafa hætt við
þátttöku — Rússar, A-Þjóðverjar,
Tékkar, Pólverjar og Ungverjar.
Riölaskiptingin átti aö vera þannig:
A-riðUl: Rússland, PóUand,
Rúmenía, Tékkóslóvakía, Ameríka
(Kúpa) og Afríka (Túnis).
B-riðiU: Júgóslavía, Danmörk, A-
Þýskaland, Bandaríkin, Ungverjaland
og Asía (Japan).
V-Þjóðverjar, Svíar og Islendingar
taka sæti á OL og Spánverjar og Sviss-
lendingar eiga rétt á sæti. Spánverjar
veröa örugglega með en óvíst er um
Svisslendinga, sem þurfa ekki aö berj-
ast um rétt tU aö leika í A-keppninni
1986 í Sviss. Frakkar, sem eru nú
þegar byrjaöir að undirbúa sig, taka
þá sæti Svisslendinga.
Sex efstu Evrópuþjóöir af átta sem
keppa á OL komast beint í A-keppni
HM í Sviss 1986 en tvær þær neðstu
fara i B-keppnina í Noregi.
Islendingar eiga góða möguleika á
aö tryggja sér farseðUinn til Sviss á OL
í Los Angeles.
-sos
Webster orðinn
Eslendingur
— Leikur með Haukum næsta vetur og er einnig
löglegur í íslenska landsliðið — Einar Bollason
hef ur skrifað undir eins árs samning við Hauka
Dakarsta Webster körfuknattleiks-
maður, sem dvaUð hefur hér á landi
um árabU, mun leika með Haukum i
úrvalsdeUdinni í körfuknattleik næsta
vetur.
Alþingi það sem nú hefur nýlokið
störfum veitti Webster islenskan rikis-
borgararétt i vikunni og þar með er
ekkert því til fyrirstöðu að hann geti
Dakarsta Webst- Einar Bollason
er. Mlkfll styrkur hefur skrifað und-
| fyrir Hauka og is- ir eins árs samn-
lenska landsliðið. ingviðHauka.
tekið þátt i slagnum næsta vetur.
Webster gat ekkert leikið með Haukum
á sl. keppnistimabUi þar sem félögum
var ekki heimUt að nota erlenda Ieik-
menn. Þetta eru ekki aðeins gleðitíð-
indi fyrir Hauka. Þetta þýðir það
einnig að kappinn verður löglegur með
íslenska landsUðinu og mun örugglega
styrkja það mikiö.
„Eg er auðvitaö í skýjunum yfir
þessu og get sagt þér aö við stefnum að
því aö vinna IslandsmeiStaratitilinn
næsta vetur. Viö erum byrjaöir aö æfa
og Webster veröur okkur mikill
styrkur,” sagöi Einar Bollason, sem
fyrir nokkrum dögum var endurráöinn
þjálfari meistaraflokks félagsins fyrir
næsta vetur. Einar þjálfaði Haukana
sl. vetur sem kunnugt er og náði mjög
góðum árangri meö liðið. „Fyrsta árið
sem ég þjálfaði Haukana setti ég mér
þaö takmark aö vinna 1. deUd. Þaö
tókst. Annað árið, í fyrra settum viö
okkur það takmark að halda okkur í
Urvalsdeildinni. Það tókst. Næsta
vetur ætlum við okkur aö vinna úrvals-
deUdina,” sagöi Einar. -SK.
Hvert ætlar boltinn? — Kristinn Guðmundsson, tU vinstri, en hann skoraði s
auðvitað Valsmaður, í leiknum i gær.
„Alltaf ganu
skora fyrsta
sagði Kristinn Guðmundsson sem skoraði s
„Það er alltaf gaman að skora sitt fyrsta
mark fyrir nýtt félag og sitt fyrsta í 1. deild,”
sagði Kristinn Guðmundsson, Víkingur og
áður Fylkismaður, en hann skoraði sigur-
markið í Laugardal í gærkvöldi.
„Skot mitt var ekki fast en nokkuð utarlega
þannig að það var ekki mjög auðvelt að verja
það. Það var yndislegt að ná í þrjú stig og
alveg nauðsynlegt fyrir okkur að vinna,”
sagði Kristinn.
„Sanngjarn sigur hjá okkur"
„Þetta er góö byrjun hjá liði sem spáö var
10. sæti fyrir mótið. Leikurinn var ekki góður
en miðað við marktækifæri áttum við að
vinna jafnvel stærri sigur. Eg er virkilega
ánægður með þessi stig og sigurinn,” sagði
Bjöm Amason, þjálfari Víkings.
„Lögðum okkur ekki fram"
„Við lögðum ekki nægilega hart að okkur í
þessum leik. Það var alveg hrikalegt að tapa
þessu. Við áttum að skora tvö mörk. Þetta
kemur hjá okkur í næstu leikjum,” sagði
Hilmar Sighvatsson, Val.
„Áttum að skora
fleiri mörk"
„Það var gaman að sjá strákana ná í þrjú
stig. Þetta var mikilvægur sigur og þeir sem
spáðu Víkingi 10. sæti fyrir mótið geta farið að
endurskoða þá afstöðu sína. Það em margir
nýir leikmenn i Vikingsliðinu og þeir stóðu sig
allir vel í þessum leik,” sagði Magnús Þor-
valdsson, bakvörðurinn snjalli, sem nú hefur
lagtskónaáhilluna.
„Verður gaman
að mæta í vinnuna"
, JEg er sérlega ánægður með þennan sigur.
Við áttum skilið að sigra. Það verður gaman
ST
Islenska óly mpíunefndin valdi fimm nýja keppendur í gær í einstaklinf
Islenska ólympíunefndin valdi fimm
nýja þátttakendur á ólympíuleikana í
Los Angeles á fundi sínum í gær. Þeir
eru Haraldur Olafsson, Iyftingamaður
frá Akureyri, Ingi Þór Jónsson, sund-
maður frá Akranesi, og þrír
frjálsíþróttamenn, Kristján Harðar-
son, langstökkvari í Armanni, Oskar
Jakobsson, kúluvarpari i IR og
Haraldur Olafsson, Akureyri.
Sigurður Einarsson, spjótkastari í
Armanni. Þar með hefur ólympíu-
nefndin valið 13 keppendur í
einstaklingsgreinar á leikunum. Aður
hafði nefndin valið frjálsíþróttafólkið
Einar Vilhjálmsson, Odd Sigurðsson,
Véstein Hafsteinsson og Þórdísi Gísla-
dóttur, júdómennina Bjarna Friðriks-
son og Kolbein Gíslason og sundfólkið
Ingi Þór Jónsson, Akranesi.
Guðrúnu Femu Agústsdóttur og
Tryggva Helgason.
Nokkuð kemur á óvart að Iris Grön-
feldt úr Borgarnesi hefur enn ekki
fundið náð fyrir augum nefndarmanna
islensku ólympíunefndarinnar. Hana
vantar aðeins 20 sentimetra á lág-
marksafrek alþjóða-ólympíunefndar-
Kristján Harðarson, Armannl.
innar í spjótkasti kvenna. Hefur
tvibætt Islandsmet sitt í vor — iþrótta-
kona í mikilli framför. Stundar nám í
Aiabama. Ef austantjaidsþjóðirnar
hætta við þátttöku á ólympíuleikunum,
eins og fimm hafa þegar tilkynnt,
aukast mjög möguleikar annarra að
ná góðu sæti í spjótkasti kvenna þvi
flestar bestu konurnar i þessari
Oskar Jakobsson, tR.