Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1984, Blaðsíða 11
DV: MIÐVTKUDAGUR 23/MAI1984.
11
Pálmi Lorensson ásamt kokkum á Skansinum við sjávarréttaborðid.
DV-mynd E.J.
Rómantískar kvöld-
ferðir til Eyja
Pálmi Lorensson, veitingamaöur
Vestmannaeyjum, mun í sumar
standa fyrir nýstárlegum ferðum til
Vestmannaeyja ásamt Páli Helgasyni
og Leiguflugi Sverris Þóroddssonar.
Um er aö ræöa kvöldferðir meö
skemmtilegri dagskrá. Fariö veröur
frá Reykjavík klukkan 18 og tekur
flugiö um 30 mínútur. Farið veröur
með Páli Helgasyni, ferðakóngi í Vest-
mannaeyjum, í skoðunarferö um eyj-
una og mun kímnigáfa hans eflaust
njóta sín þar. Einnig veröur hægt aö
fara í bátsferðir og ef menn vilja,
renna fyrir þorsk eöa ýsu. Aö lokum
veröur fariö í veitingahúsiö Skansinn
og snædd þar dýrleg máltíö sjávar-
rétta, en allur fiskur sem notaður er í
matinn veiðist í kringum Heimaey.
Einnig verður stiginn dans ef menn
óska. Aætlað er aö komiö veröi aftur til
Reykjavíkur um eitt um nóttina.
Auk þessara stuttu kvöldferöa verö-
ur hægt aö taka á móti fólki til lengri
dvalar, en Pálmi rekur einmitt eina
hóteliö í Vestmannaeyjum, Hótel Gest-
gjafann, sem er meö pláss fyrir um
þrjátíu manns og býður upp á öll helstu
þægindi auk síma, sjónvarps og
videos. Einnig getur fólk gist í tveimur
gistiheimilum sem eru í Vestmanna-
eyjum.
Aö sögn Páls Helgasonar ferða-
kóngs koma tæplega fimmtíu þúsund
manns til Vestmannaeyja á sumri en
hæglega er hægt aö taka á móti fleiri
ferðamönnum. Náttúrulífiö þar er sér-
stætt og fagurt og miklar andstæður.
-EJ.
FACE
OF
THE 80'S
úrslitakvöldið
með pomp
og prakt.
— Glæsilegar litmyndir af
stúlkunum sem komust i
úrslit og gestunum á
Hótel Sögu.
Það er alltaf ein-
hver við hiiðina
á mér sem vísar
veginn.
Hreinskilið og hressilegt
viðtal við hina landsþekktu
Soffíu Pálma.
ISLENSKA
SKJALDARMERKIÐ
— íslenska skjaldarmerkið
hefur lengi verið vinsælt til
útsaums, en mynstrið þvi
miður ófáanlegt um langt
skeið. Við bætum úr þvi i
þessari VIKU.
IMú drögum við út
TOYOTA TERCEL
— / þessari VIKU hefst lokaáfangi afmælisget-
raunar VIKUNNAR og tilmikils erað vinna.
VIKAN reynsluók Toyotu Tercel inokkra daga
og frá þvi segjum við nánar.
Námskeið f táknmáli
fyrir almenning
Gísli Sigurbjörnsson, forstjóri Elli-
heimilisins Grundar, hefur veitt kirkju
heyrnarlausra styrk til aö standa fyrir
námskeiði í táknmáli fyrir almenning.
Markmiðið meö þessu er aö koma á
tengslum milli heyrandi og heymar-
lausra. Hófst fyrsta námskeiöið í tákn-
máli 8. maí síðastliðinn. Er kennt
tvisvar í viku og stendur hvert nám-
skeiöítværvikur. -KÞ
STJÖRNULEITIIM
— Allar stúlkurnar
á einni opnu og at-
kvæðaseðillinn fylgir.
ÁSKRIFTARSÍMINN ER 27022
„EKKIMINNA
EN MILUÓN”
— segir fasteignasali um lóðaverðið í Stigahlíðinni
,,Eg held að ein til tvær milljónir sé
ekki fjarri lagi fyrir lóð á þessum
stað í bænum,” sagöi fasteignasali
sem DV ræddi viö um lóðaverð í
Stigahlíð í Reykjavík.
Eins og kunnugt er ákvað borgar-
ráö á fundi sínum aö auglýsa eftir
tilboöum í 21 einbýlishúsalóö við
Stigahiíö. Er hér um að ræða eignar-
lóðir og verða gatnagerðargjöld
innifalin í veröi þeirra. Verða lóöir
þessar seldar hæstbjóöanda.
„Þessar lóöir fara ekki fyrir
minna en milljón,” sagöi annar fast-
eignasali og fleiri tóku í sama streng.
I þessum tölum eru gatnageröar-
gjöld innifalin.
En hvað kosta einbýlishús í Hliöun-
um, til dæmis miðað viö sambærileg
hús í Seljahverfi í Breiöholti?
Fasteignasalarnir, sem blaðiö ræddi
við, sögöu, aömeöalhús, fullfrágeng-
iö, í Seljahverfi seldist á bilinu fjórar
til sex milljónir. Sams konar hús í
Hlíðunum væri aö minnsta kosti
milljón krónum dýrara.
„Lóðaverö fer eftir staösetningu,”
sagöi einn fasteignasalanna. „I Mos-
fellssveit, Arnamési og á Álftanesi
er hægt aö fá lóðir fyrir um 600
þúsund og þá eru gatnagerðargjöld
innifalin. Á Seltjamarnesi kosta lóö-
ir um eina milljón og í Skerjafiröi
háttítværmilljónir. -KÞ
Ráðinn fram-
kvæmdastjóri
Borgarspítala
Jóhannes Pálmason var á fundi
borgarráös 15. þessa mánaðar ráöinn
framkvæmdastjóri Borgarspítalans
frá 1. júní næstkomandi. Jóhannes,
sem er lögfræöingur aö mennt, hefur
veriö aöstoöarframkvæmdastjóri
spítalans frá 1978. Þar áöur var hann
skrifstofustjóri.
Jóhannes er fæddur 12. júlí 1944 á
Akureyri. Eiginkona hans er Jó-
hanna Amadóttir. Þau eiga þrjár
dætur.
-KMU.
Jóhannes Pálmason, hinn nýi
framk væmdastjóri Borgar
spitalans. DV-mynd: GVA.
A OLLUM BLAÐSOLUSTOÐUM A MORGUN
flLMUPJÖNUSTA MEÐ
LITMYNDIR
Á TVEIMUR TÍMUM
mnmnr
LJOSMYNDAÞJONUSTAN HF
í NÝJA HÚSINU VIÐ LÆKJARTORG/Í HÚSI MÍNUTUiyiYNDA.
i ■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■■■niimir