Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1984, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1984, Blaðsíða 31
DV. MIÐVIKUDAGUR 23. MAI1984. 31 Sandkorn Sandkorn Sandkorn Á Spáni er gott aö djamma og djúsa.... Ólafur Þórðarson. Þvælt um bjór Enn virðist langt í að bjór- inn blessaður nemi land hér á Fróni. Að vísu tókst mála- fylgjumönnum að nudda bjórfrumvarpi inn á Alþingi en þar hefur það verið að þvælast í nefndum og verður ekki afgreitt i þessari lotu. Allsherjamefnd fékk málið það ama til umfjöllunar á sínum tima og virðist svo sem hún hafi sest með öUum þunga á það. Sá í nefndinni sem mun hvað ákveðnastur í að svæfa frumvarpið er Olafur Þórðarson, fram- sóknarþingmaður og for- maður aUsherjamefndar. Segja kunnugir að Olafur sjái sér nú góðan leik á borði. Bjórfrumvarpið verði ekki afgreitt á þessu þingi vegna vasklegrar fram- göngu hans i svæfingarmál- um. Næsta ár verði tileinkað æskunni og þá komi því ekki tU greina að samþykkja frumvarpið. Svo sé Olafur að vona að þaraæsta ár verði bindindisár, helst aiþjóð- legt, og þar með sé bjórinn úr sögunni í bUi. Ball ársins Ekki hefur verið tíðkað mjög hér á landi að cfna til virðulegra snobbdansleikja. Þó hefur sUkt borið við, eða hver man ekki eftir pressu- böUunum frægu? En nú mun einn siíkur vera í uppsigUngu, nánar tU- tekið þann 1. júní næstkom- andi i LaugardalshöU. Þaraa er sumsé um að ræða Ragnhildur menntamála- ráðherra setur listahátið. opnunargUli iistahátíðar og mun það eiga að fara fram með glæsibrag. Samkvæmt áreiðanlegum heimUdum verður Höllin skreytt blómum og öðrum gróðri í tUefni opnunarinnar. Til dæmis verður komið fyrir heUum skógi i anddyrinu. Að sjálfsögðu verða ljúfar veitingar á boðstólum, svo sem japanskt saki og smá- réttir. Menntamálaráðherra, RagnhUdur Helgadóttir, mun setja hátíðina að afloknum lelk Sinfóníuhljómsveitar- innar. Hljómsveitin mun siðan taka tU við að flytja gestum dægurlög sem hafa verið vinsæl hér síðustu 20 árin. Þá mun Sinfóníuhljóm- sveitin einnig leUia fyrir dansi í upphafi gleðinnar. Fieira verður tU skemmt- unar þetta kvöld. Má þar' nefna ærsla- og tónUstarfóik frá London sem nefnir sig Bob Kerr’s Whoopee Band... Ekkert vor? Það er synd að segja að það vori vel. Mætti halda að allar spár annars veðurglöggra manna ætU að fara i hund og kött. Samkvæmt þeim átti nefnilega að vora vel, júní að verða þolanlegur, júlí heiiur og sólríkur en rigning í ágúst. En það hefur lítið sést tU sól- gyðjunnar og gæti jafnvel sá grunur læðst að manni aö hún sé í skæruverkföUum eins og símvirkjar. Það er því ekki nema von að landinn þeysi til sólar- landa. Mun vera mikU ásókn í slíkar ferðir um þessar mundir. Þannig bárust fregn- ir af því að 44 SeUyssingar hefðu á einu bretti drifiö sig í sólina á Spáni nú nýverið. Lætur nærri að það séu 1,2% Skondnar veiðar Stangveiðimenn á Blöndu- ósi og Sauðárkróki brugðust við reiðir þegar Blanda var leigð á dögunum. Málið var nefnUega það að veiðUéiögin á fyrrnefndum stöðum höföu boðið tiltekna upphæð í ána. Kváðust landeigendur ætla að íhuga tilboðið en munu þess í stað hafa þusast suður til Reykjavíkur tU viðræðna við StangaveiðUélag Reykja- víkur. Endirinn á málinu varð sá að síðasttalda félagið fékk ána á leigu og bauð enda nokkru hærra en stangveiði- íbúa á staðnum svo að líklega er bæjarbragurinn á SeUossi með rólegra móti um þessar mundir. félög Biönduóss og Sauðár- króks. Blauda er sem kunnugt er viðurkennd „húkká”. Dagur á Akureyri ræddi nýlega við Brynjar Pálsson hjá Stang- veiðUélagi Sauðárkróks og spurði hann m.a. hvort veiðarnar í Blöndu væru ekki bara húkk? „Nei, en laxinn i Blöndu tekur misjafnlega,” svaraði Brynjar. „Hann tckur stundum í síðurnar.” Umsjón: Jóhanna S. Sigþórsdóttir. Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir Dansað af þörf Heiti: Footloose. Leikstjóri: Herbert Ross. Handrit: Dean Pitchford. Kvikmyndun: Ric Waite. Aðalleikendur: Kevin Bucon, Lori Singer, John Litgow og Dianne Wiest. Fyrir nokkrum árum hefði sögu- þráður á borð viö þann sem boðið er upp á í Footlosse verið talinn vonlaus fjárfesting en meö tUkomu dans- myndanna skiptir söguþráðurinn litlu máli. Það er tónlistin og dans- arnir sem úrslitavaldið hafa um hvort áhorfendur flykkjast til að sjá myndina. Footloose er einmitt gott dæmi um þetta. Vel útfæröir dansar við lög sem hljóma í öUum útvarps- stöðvum í dag gera það að verkum aö áhorfendur láta sig litlu skipta um hvaðefniösnýst. Myndin gerist í smábæ einum, Bomont, þar sem siðferði ungling- anna skiptir ráðaménn bæjarins miklu máU og til aö allt sé nú í sóm- anum hefur bæjarstjórnin bannað alla dansleiki og á þetta einnig við um skóladansleiki. Ren (Kevin Bacon) er nýfluttur í bæinn úr stórborginni Chicago og á bágt með að skilja þennan hugsunar- hátt, sérstaklega þar sem dans er hans áhugamál og svo er einnig um fleiri innan skólans þótt leynt sé farið með þaö. Ren (Kevin Bacon) kennir félaga sinum danssporin. Ren kynnist Ariel (Lori Singer), dóttur prestsins, og feUa þau hugi saman föður hennar til mikUs angurs, en það er einmitt hann sem hvað mest berst gegn opinberum dansleikjum. Ren ákveöur samt aö reyna að koma á skólabalU og eftir nokkrar málalengingar tekst honum þaö og endar myndin í miklum dansi eins og búast mátti við. Eins og sjá má af ofangreindu er ekki um merkilegan söguþráð aö ræða en þó hafði ég búist við meiri dansi í myndinni fyrirfram. I raun eru dansatriðin ekki ýkjamörg en þau eru þvi betur gerö og sérstak- lega eru mér minnisstæð atriðin þegar Ren er að kenna vini sínum að dansa og þegar hann fær útrás fyrir reiði sína í sólódansi sem Ukist eins mikið leikfúni og dansi. Samt er það nú Uklega tónUstin sem er sterkasti hluti myndarinnar og koma þar ýmsir Ustamenn við sögu þótt þeir sjáist ekki og má þar nefna Kenny Loggins og Bonnie Tyler. Lögin eru í heild nokkuö góð og faUa vel að dönsunum og það kem- ur ekki á óvart hversu vinsæl lögin hafa orðiö. Þeim dansmyndum sem mesta at- hygU hafa vakið hefur verið stjórnað af ungum leikstjórum sem eru að ■ byrja ferU sinn en svo er ekki fariö um Footloose heldur er viö stjórnvöl- inn Herbert Ross, margreyndur leik- stjóri, bæði í Hollywood og Broad- way, og hefur honum tekist að koma myndinni frá sér án væmni, sem er afrek út af fyrir sig þegar sögu- þráðurinn er hafður í huga. Aðalhlutverkið er í höndum Kevin Bacon, sem vakti fy rst athygU í hinni ágætu mynd Diner, og gerir hann hlutverkinu virkilega góð skU. Einnig er John Litgow góður í hlut- verki prestsins en Lori Singer, sem dóttirin, er frekar ósannfærandi. Hilmar Karlsson. Útboð Hreppsnefnd Hvammstangahrepps óskar eftir tilboðum í þriðja hluta fyrsta áfanga viðbyggingar við Grunnskóla Hvammstanga. Verkiö felst í því að reisa þak á húsið og einangra það, klæöa húsið að utan og ganga frá þakköntum, útihurðum, guggum og glerjun ásamt öðru tréverki úti sam- kvæmt teikningum og verklýsingu Fjarhitunar hf. og Teikni- stofunnar Laugavegi 42. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist 20. júní nk. og verði lokið 1. okt. 1984. Útboðsgögn liggja frammi og verða afhent gegn 5000 kr. skila- ti'yggingu á skrifstofu Hvammstangahx-epps og Verkfræði- stofu Fjarhitunar hf., Borgartúni 17, Reykjavík. Tilboðum skal skilað á sömu staði fyrir kl. 11. föstudaginn 8. júní nk., þá verða tilboð opnuð að viðstöddum bjóðendum. SVEITARSTJÓRI HVAMMSTANGAHREPPS. BÍLAMARKAÐURINN Grettisgötu 12-18 Sm, Rétt fyrír innan Klapparstíg 25252 Opiö laugardaga kl. 10—5, komið og semjiö. Sýningarsvæöi yfirfullt af nýlegum bif- reiöum. M. Benz 280 E 1977, silfurgrár, 6 cyl., sjálfsk. sportfelgur o.fl. aukahlutir. Verö kr. 530 þús. Dodge Omni 0241980, hvitur og rauöur, ekinn 46 þús., sjálfskiptur m/öllu (4 cyl.). Verð 285 þús. Wf ^ f§ | Chevrolet Malibu Landau 1978, brúnn, m/víniltoppi, 8 cyl. (305) með öllu. Verö kr. 235 þús. Chevrolet Malibu Classic station 1981, drapp- litur, ekinn 34 þús., V-6 cyl. vól, sjólfskiptur, aflstýri, útvarp, segulband, snjó- og sumar- dekk. Verö 490 þús. Skipti ath. Volvo 245 GL station 1981, Ijósbrúnn, ekinn 35 þús., beinskiptur, m/overdrive. Verö kr. 390 þús. (Skipti). Yfirbyggður pickup, Suzuki Fox 1983 (4x4), hvitur.. Verð 320 þús. 5 dyra framdrifsbill, Honda Quintet 1981, grænn, ekinn aðeins 17 þús. km. Verö aöeins 270 þús. Scout Traveller 1976, rauöur og hvitur, ekinn 72 þús. km, 8 cyl., 304 vól, sjólfsk., aflstýri, útvarp. Verö 250 þús. Skipti ath. Mitsubishi Tredia 1983, blásanseraöur, ekinn 10 þús. km, beinskiptur (8 cyl.), aflstýrí, rafm. I rúöum o.fl. Verö kr. 325 þús. Sprækur sportbill, Mazda Rx7 turbo 1980, hvitur, ekinn 56 þús. km, útvarp + segulband, sportfelgur o.fl. aukahlutir. Verö kr. 380 þús. (Skipti). r

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.