Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1984, Blaðsíða 8
8
DV. MIÐVIKUDAGUR15. ÁGOST1984.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Hleypur maraþonhlaup
með nýja hjartað
Fyrir hálfu ári var grætt annað
hjarta í Norðmanninn Kjell Scharer
á sjúkrahúsi í London eftir aö norskir
læknar neituðu að annast aðgerðina
því að útilokað þótti að Scharer lifði
aðgerðina af.
Núna, 1. september næstkomandi,
ætlar Scharer að taka þátt í 4200
metra Osló-maraþonhlaupinu, þvi að
honum líður eins og hann hafi aldrei
kennt sér meins og æfir þolhlaup sez
daga vikunnar. — Fyrr í sumar ók
hann á þriðja hundrað kílómetra
vegalengd til þess að heimsækja
bróður sinn sem býr norður í landi (í
Bodö).
Það var 29. janúar síðastliðinn,
sem enskir læknar græddu í Scharer
hjarta úr 17 ára stúlku. Um fimm ára
bil hafði hann lifað við þá vitneskju
að hann væri haldinn alvarlegum
hjartakrankleika og gæti ekki vænst
þess að eiga langt eftir ólifað. Áður
var hann flugmaður.
„Ég gat ekki gengiö tíu metra
öðruvísi en að stansa til að kasta
mæðinni og leið þó þrautir. Magn-
leysið var slíkt að ég gat varla borið
skjalatösku,” segir Scharer í blaða-
viðtali í vikunni. — Hann segist hafa
verið orðinn brotinn á sál sem á
likama af vitneskjunni um veikindin.
Læknamir gáfu honum fyrirmæli
eftir aðgerðina um að bíða með
þjálfunina í hálft ár. 1 páskavikunni
laumaðist hann á skíði og síöan hefur
endurhæfingin gengið afar vel og
vonum framar.
Scharer hefur hugmyndir um að
hóa saman fleiri hjartaþegum og
mæta með flokk fyrrum hjartasjúk-
linga við Holmenkollenmótið næsta
vor.
Kjell Scharer, fymim flugmaður (50
ára), fékk hjarta úr 17 ára stúlku og
hleypur nú þolhlaup. Hann á einnig
að fá flugmannsréttindin sin aftur.
Skaðræðisskepna
Þessi rúmlega fjögurra metra langi krókódíll (eða
alligator, eins og þeir heita í Flórída) sem lögreglan í
Port St. Lucie og vegfarendur eru að skoða upp í, vann
það sér til dauðasakar að verða ellefu ára dreng að bana.
Drengurinn hafði brugðið sér í sund í St. Lucie-ánni og
lenti í gini krókódílsins. Þótt brugðið vœri fljótt við og
skepnan drepin, þar sem hún reyndi að draga drenginn
með sér og synda með bráðina út á meira dýpi, var það
samt um seinan. Það mun ekki algengt að alligatorar
verði svona stórir.
Mondale og Jack-
son deila enn
Til deilna kom á nýjan leik milli
Walters Mondale, forsetafram-
bjóðanda Demókrataflokksins í
Bandaríkjunum, og Jesse Jackson í
gær.
Jackson sakaöi Mondale um að
hundsa blökkumenn og Mondale
svaraði því til að hann væri fær um að
ná kjöri í forsetakosningunum án
hjálpar Jacksons.
I lok flokksþings Demókrataflokks-
ins sem útnefndi Mondale sem forseta-
frambjóðanda lýsti Jackson því yfir að
hann mundi styðja Mondale. En síöar
kvaðst hann ekki hafa tekið ákvörðun
um hvort hann tæki þátt í baráttunni
fyrir Mondale.
Mondale var um borð í flugvél sinni á
kosningaferðalagi í gær þegar hann
sagöi viö blaðamann að hann þyrfti
ekki á hjálp Jacksons að halda. Hann
bætti því við að Jackson væri of dýru
verði keyptur. Hann hefði tilhneigingu
til að reyna að stjóma málefnabaráttu
sinni. Mondale kvaðst ekki tilbúinn til
að greiða það gjald. Síðdegis i gær
reyndi Mondale að draga ummæli sín
til baka og sagði að ágreiningur þeirra
Bandarískar
þyrlur leita
tundurdufla
íRauðahafi
Fjórar bandarískar þyrlur út-
búnar til tundurduflaleitar komu til
Egyptalands í gær. Munu þyrlumar
aðstoöa bresk og frönsk skip við
tundurduflaleit á Rauðahafinu.
Sjö breskir og franskir tundurdufla-
slæðarar sigldu um Suezskurðinn i gær
og vom þyrlumar um borð í aðstoðar-
skipinu Shrevesport.
Tundurdufl af ókunnum uppruna
hafa skemmt aö minnsta kosti 16 skip
frá því að fyrsta sprengjan sprakk
þann 9. júlí síðastliðinn. I fyrstu var
talið að Iranir eða Líbýumenn hefðu
lagt duflin en leiðtogar beggja ríkj-
anna hafa neitað þeim ásökunum.
félaganna væri aöeins smávægilegur.
Jackson haföi sakað Mondale um aö
beina öllum kröftum sínum í kosninga-
baráttunni að hvítum miðstéttar-
kjósendum og fyrir að láta sem blökku-
menn væru ekki í hópi kjósenda.
I forkosningum Demókrataflokks-
ins vom þeir Jackson og Mondale
keppinautar. Þá voru harðar deilur
þeirra á milli daglegt brauð. Á flokks-
þinginu var gerð tilraun til að sameina
baráttu flokksins og var þá látið líta
svo út sem það hefði tekist. Stjóm-
málaskýrendur telja að ef Jackson
styddi Mondale af hörku þá gæti sá
stuðningur haft mikið að segja í kosn-
ingabaráttunni gegn Ronald Reagan
forseta.
Kom sprengju fyr-
ir hjá íþróttafólki
LÖgreglumaðurinn, sem í gær þótti
hafa staðið sig sem hetja þegar hann
Tigran Petrosjan
skákmeistari látinn
Tigran Petrosjan, fyrram
heimsmeistari í skák, er látinn eft-
ir langvarandi veikindi, að sögn
Tass-fréttastofunnar sovésku.
Hann var aðeins 55 ára að aldri.
Petrosjan var heimsmeistari á
árunum 1963 til ’69. Hreppti hann
titilinn af Botvinnik í einvígi og
varði hann í einvígi við Spassky
1966 sem vann þó titilinn af honum í
einvígi 1969.
kom auga á tímasprengju í farangri
tyrknesku íþróttamannanna sem vom
á leið frá ólympíuleikunum í Los
Angeles — og fjarlægði hana, er nú
gmnaður um að hafa komið henni fyrir
sjálfur.
Þessi fertugi lögregluþjónn, sem
hefur verið 9 ár í lögregluliði LA og
hefur margsinnis unniö til viðurkenn-
inga, er sagður hafa verið eitthvaö upp
á kant við yfirmenn sína. Er talið aö
hann hafi viljað vekja á sér athygli.
I fyrstu héldu menn að öfgasamtök
Dóttir
Reagans
giftist
Patti Reagan, dóttir Reagans
Bandarikjaforseta, gekk í það heilaga í
gær. Hún giftist Paul Grilley sem er
leiðbeinandi á yoganámskeiðum.
Athöfnin var látlaus. Rúmlega 130
manns var boöiö til brúðkaupsveisl-
unnar sem fram fór í hóteli í Los
Angeles. Fréttamönnum var meinaður
aðgangur að athöfninni og veislunni.
Patti er 31 árs og starfar sem leik-
kona í Kalifomíu. Eiginmaðurinn er 25
ára.
Armena, sem sitja um Tyrki, heföu
komið sprengjunni fyrir í einni af þrem
rútum sem flytja áttu tyrkneska í-
þróttafólkið á flugvöllinn.
Lögregluþjónninn kom auga á tíma-
sprengjuna, reif hana af bílnum, og
hljóp út á bersvæði um leið og hann
bægði vegfarendum frá þar til sér-
fræðingar komu á staðinn til að gera
sprengjuna óvirka. — Kom til greina
að heiðra hann sérstaklega fyrir snar-
ræöið.
En illur grunur læddist að starfs-
félögum hans sem örfáum mínútum
fyrr höföu einmitt leitað af sér allan
grun að vítisvélum í rútunum því að
sérlega ströng öryggisgæsla var höfð
um tyrkneska íþróttafólkið.