Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1984, Blaðsíða 19
DV. MIÐVIKUDAGUR15. ÁGUST1984.
19
Hið árlega stórmót sex sunn-
lenskra hestamannafélaga austan
Hellisheiöar var haldið á Gaddastaöa-
flötum á Rangárbökkum dagana 10.-
12. ágúst síöastliðinn. Mestallan tím-
ann rigndi eldi og brennisteini þó svo
aö uppstytta væri tvo síðustu klukku-
tímana á sunnudeginum. Rigningin
kom ekki í veg fyrir að gæðingamir
fengju góða dóma en kynbótahrossin
fengu ekki háar einkunnir. Einungis
ein hryssa hlaut 1. verðlaun, Kolfinna
frá Arnarstöðum, 8,01. Að vísu komust
82 af hundraði hryssna í ættbók en yfir-
leitt voru einkunnir lágar. Alls voru
kynbótahryssur fimmtíu og sex sem er
mjög mikið.
Kynbótahross
Keppt var í tveimur flokkum.
Fjögurra og fimm vetra merar og svo
sex vetra merar. I yngri flokki stóð
efst Ösk frá Svaðastöðum m. 7,73 í
einkunn. Eigandi Hilmar Jóhanns-
son. Þruma frá Enni var næst með
7,70. Eigandi Jóhannes Hauksson.
Sneggla frá Hraunbæ var þriðja með
7,66 í einkunn. Eigandi Guðjón Bergs-
son. 1 eldri flokki var efst Kolfinna frá
Arnarstöðum með 8,01 í einkunn. Eina
merin sem hlaut 1. verðlaun. Eigandi
Guðríður Valgeirsdóttir. Hremsa 5146
var önnur með 7,93 í einkunn. Eigandi
Ottar Æ. Baldursson. Þriðja var Snót
5340 frá Skálmholti með 7,91 í einkunn.
Eigandi Jónas R. Lilliendahl.
Gæðingar.
Tveir efstu gæðingar hvers félags
voru sendir til keppni, margir þeirra
stórglæsilegir. I A-flokki sigraöi Júní
(Sleipni) Björns Eiríkssonar sem
Einar Ö. Magnússon sat. Júní hlaut
8,50 í einkunn. Einar Öder hefur verið
víða á verðlaunapöllum undanfarnar
vikur og oftast í efsta sæti. I öðru sæti
var Hrafnhetta (Smára), sem Sigfús
Guðmundsson á og sat, með einkunn-
ina 8,23. Byr (Sleipni), sem Skúli
Steinsson á og sat, var í þriöja sæti
með8,15íeinkunn.
I B-flokki sigraði Snjall (Geysi) í
annað skipti í röð. Eigandi Guðni
Kristinsson en knapi Þórður Þorgeirs-
son. Einkunn 8,59. I öðru sæti Blesi
(Ljúf) sem Þórður sat einnig en
eigandi er Halldór Guðmundsson. Ein-
kunn 8,26. I þriðja sæti var Sómi
(Sindra), sem Anton Guðlaugsson á en
Guðlaugur Antonsson sat, með
einkunnina 8,16.
\V
<4 /■ > » ‘ -V.
c r ' ’*►*$#?***......' r: :
Geysileg keppni i350 metra stökki. Hylling fremst.
í''^ ,
* • *»»»s-aC'
Unglingar
Að venju var keppt í tveimur ung-
lingaflokkum. I yngri flokki stóð efst
Borghildur Kristinsdóttir (Geysi) á
Rökkva með 8,20 í einkunn. Steindór
Guðmundsson (Sleipni) var annar á ör
með 8,01 í einkunn. Ragna Gunnars-
dóttir (Sleipni) þriðja með 7,95 í ein-
kunn. Hesturinn heitir Hrafntinna.
I eldri flokki sigraöi Jóhannes
Hauksson (Háfeta) á Glæsi meö 8,23 í
einkunn. Lilja Þorvaldsdóttir var
önnur á Vin með 8,19 í einkunn og
Steinn Skúlason þriðji á Hlýju með 8,07
í einkunn.
Kappreiðar
Keppni í skeipi og stökkum er
alltaf að harðna. Ekki er óalgengt að
mörg hross komi í mark á sama tíma
og þá erfitt aö dæma um sjónarmun. 1
150 metra skeiði voru þrír fljótustu
hestamir á sama tíma 16,0 sek. Sam-
kvæmt reglum um skeiðkeþpni var úr-
skurðaö að Júní Björns Eiríkssonar
hefði sigrað. Knapi Einar öder
Magnússon. Tvistur Antons Guðlaugs-
sonar, sem Guðlaugur Antonsson sat,
var annar og Funi Ásdísar Kristins-
dóttur, sem Karl Björnsson sat, var
þriðji.
Leistur virðist vera að fara að upp-
fylla þær vonir sem við hann voru
bundnar í 250 metra skeiðinu. Hann
sigraði í 250 metra skeiði á 23,0 sek.
Eigandi Hörður G. Albertsson en knapi
Sigurbjöm Bárðarson. Villingur var
annar eftir hörkukeppni við Leist á 23,5
sek. Eigandi Hörður G. Albertsson en
knapi Eiríkur Guðmundsson. Hnall-
þóra Þorkels Bjamasonar var þriðja á
24,2 sek. Knapi Þorkell Þorkelsson.
Engin óvænt tíðindi úr 250 metra
stökkinu. Ui sigraði að vanda. Knapi
var Róbert Jónsson, eigandi Guðni
* í?SSæ*-'
Kristinsson en tími 19,0 sek. Mót-
vindur. Gola Olafs Sigurbjörnssonar
var önnur á 19,4 sek. Knapi Jón Ol.
Jóhannesson. Ljósbrá var þriðja á 19,7
sek. Eigandi Jóhannes Þ. Jónsson en
knapi Benjamín Markússon. Keppni í
350 metra stökki var geysihörð. Að
vísu sigraði Hylling nokkuð örugglega
á 25,3 sek. Eigandi Jóhannes Þ. Jóns-
son en knapi Jón 01. Jóhannesson. En
þrír hestar komu í mark á sama tíma í
annað til fjórða sæti. Dæmdur á
sjónarmun var Loftur annar á 25,5 sek.
Eigandi Jóhannes Þ. Jónsson en knapi
Benjamin Markússon. Þriðji var
Kristur Guöna Kristinssonar en knapi
Róbert Jónsson. Fjórða var Sjöfn
Huga Einarssonar. Knapi var Ragn-
heiður Samúelsdóttir. Sjöfn kom alla
leið frá Lambleiksstöðum á Austur-
landi til keppni.
Trítill sigraði að venju í 300 metra
brokkinu. Tími 36,0 sek. Eigandi
Jóhannes Þ. Jónsson en knapi Jón 01.
Jóhannesson. Annar var Brymur
Sævars Leifssonar, sem Sigurður
Markússon sat, á 41,1 sek. Þriðji var
Flugar á 41,7 sek. en eigandi og knapi
var Margrét Hjartardóttir.
Geysileg keppni var í 800 metra
stökki. Aðstæður voru frekar slæmar,
vatn á brautinni, hún þung og mót-
vindur. örn Guðmundar og Ingu
Harðarbama sigraði á 61,9 sek. en
Erlingur Erlingsson sat örn. Tvistur
Harðar G. Albertssonar var annar á
62,0 sek. og Eldur Guðna Kristinssonar
þriðji á 62,5 sek. Knapi Róbert Jóns-
son.
Þetta var síðasta stórmótið í langan
tíma. Það næsta verður haldið árið
1987. Fjórðungsmót næsta ár og lands-
mót það þar næsta. Handhafar farand-
bikara hafa því nóg að gera að pússa
þá næstu árin.
E.J.
Myndir: Ingibjörg Magnúsdóttir, Húsavik.
Skrautdúfur Sigfúsar Jónssonar.
Oddur Magnússon meö sigurvogarana úr IVorðurlandsmótunum. Spútnik
tilhægri, Stúka til vinstri. Oddur er eigandiþeirra. Hákon með skrautdúfu, meffikana sem Sigfús á.
. ^ "
í i.