Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1984, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1984, Blaðsíða 18
18 DV. MIÐVIKUDAGUR15. ÁGUST1984. SKIPPER CS112 - LIT-DÝPTARMÆLAR 2ja ára ábyrgð Friórik A. Jónsson h.f. Skipholti 7, Reykjavik. Símar 14135 — 14340. VÖRUBÍLAR MEÐ FARM Vörubílstjórar sem aka meö óvarinn farm á palli, s.s. jaröefni, fiskslóg eöa rusl og dreifa því á akbrautir - valda stórhættu og óþægindum, - spilla umhverfi. Þeir - ættu þar af leiðandi að leita sér aö annarri atvinnu, - eða breyta til og hafa ávallt gafl á pallinum, og yfir- breiðslu ef þörf krefur. iias™ dhILJUTI Viftureimar, platínur, kveikju- hamar og þéttir, bremsuvökvi, varahjólbarði, tjakkur og nokkur verkfæri. Sjúkrakassi og slökkvitæki hafa hjálpað mörgum á neyðarstundum. ||XF FERÐAR Bfstu hestar í B-flokki. F. v. Snjall og Þórður Þorgeirsson, Blesi og Einar ö. Magnússon, Sómi og Guðlaugur Antonsson. Helingur og Eyþór Óskarsson og Dan og SkúliSteinsson. (DV-myndE.J.) Eldur og brenni- steinn á stórmóti Dúf narækt á Húsavík: Kolfinna frá Arnarstöðum, eina 1. verðlauna hryssan. Knapi Halldór Vilhjálmsson. „Afslappandi sport” Frá Ingibjörgu Magnúsdóttur, frétta- rltara DV á Húsavik: Bréfadúfufélag Húsavíkur hefur starfað í þrjú ár, í því eru 13 félagar á aldrinum 10—40 ára og eiga þeir um 100 fugla, þar af um 50 keppnisfugla. Húsavíkurbær hefur léð félaginu aö- stöðu í gömlu íbúðarhúsi, Skógargerði. Að sögn Odds örvars Magnússonar eru félagarnir mjög ánægðir meö þessa að- stöðu sem gerir þeimkleift að búa vel segir einn dúf naræktarmaðurinn aö fuglum sínum. Segir hann að vísu skipta miklu máli að hafa góð kyn keppnisfugla en aðbúnaður, aöstaða og umhugsun fuglsins ráði mestu um hverjum árangri hann nái í keppni. Oddur ætti að vita nokkuð um þessi mál því í sumar hafa verið haldin tvö Norðurlandsmót í bréfdúfuflugi, dúf- um frá Akureyri og Húsavík hefur þá verið sleppt við Reykjahlíð í Mývatns- sveit og í báöum keppnunum hafa dúf- ur sem Oddur á sigrað. Fyrri keppnina vann Spútnik, sem flaug 1014 metra á mín. og seinni keppnina vann Stúka sem náði 845 m á mín. Sigurvegararnir úr Norðurlandsmótunum. Næsta Nóröurlandsmót verður 18. ágúst og verður dúfunum þá sleppt í Grimsey. Fjórða mótið verður haldið í sept. og þá verður farið að Möðrudal á Fjöllum tii að sleppa fuglunum. Islandsmót verður haldið 25. ágúst og fuglum þá sleppt í Grímsey. Taldi Oddur Húsvíkinga eiga góða sigur- möguieika á því móti. Oddur hefur átt dúfur síðan hann var smástrákur og er hann var spurður hvaö honum fyndist gaman við dúfnarækt sagði hann að þetta væri afslappandi sport frá daglegu amstri. Síðan farið væri að keppa í bréfdúfu- flugi væri komin samkeppni um að eiga bestu dúfurnar og árangur þeirra væri svo mikiö undir eigandanum kom- inn. Fuglar Odds sem best hefur geng- ið í keppnum eru aðeins þriggja til sjö mánaða. Hákon H. Sigurösson, 10 ára, var að sinna tveim dúfum sem hann á og hugsar vel um. Hann sagði skemmti- legt að vera með dúfur og hugsa um þær. Hann væri byrjaður að þjálfa þær aðeins i flugi og heföu þær komið frá Laxamýri á fjórtán minútum. Auk bréfdúfnanna er Sigfús Jóns- son, einn áhugasamasti dúfnaræktand- inn á Húsavík, með nokkrar mjög fallegar skrautdúfur uppi við Skógar- gerði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.