Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1984, Blaðsíða 20
20
DV. MIÐVIKUDAGUR15. ÁGUST1984.
ígjróttir
Kenny Hibbitt.
Fimm nýir
til Coventry
Bobby Gould, framkvæmdastjóri
Coventry, er nú byrjaður að safna liði
að nýju. Hann hefur fenglð fimm nýja
leikmenn að undanförnu. Gamla kapp-
ann Kenny Hibbitt fró Wolves og Bob
Latchford, sem lék með Breda í Holl-
andi. Þá keypti hann Steven Ogrizovic
frá Shrewsbury á 72.500 pund, Brian
Kllclain frá Notts County á 60 þús.
pund. Einnig befur Martin Jol gengið
til liðs við Coventry - Frá WBA. -SOS
Blair og
Chapman til
Sheff. Wed.
NýUðar Sheffield Wednesday í
ensku 1. deildarkeppninni hafa fengið
tvo sterka leikmenn til liðs við sig.
Andy Blair, sem Newcastle keypti fró
Aston Villa á 50 þús. pund, og Lee
Chapman, fyrrum lelkmann Stoke,
Arsenal og Sunderland. Newcastle
borgaði Sunderland 100 þús. pund fyrir
Chapman. Notaði peningana sem
félagið fékk fyrir Tony Cunningham
sem var seldur til Manchester City.
-SOS
Souness
bjargaði
„buddunni”
Sala Liverpool á Graeme Souness
tii Sampdoria á Italíu og peningarnir
sem félagið fékk fyrir úrslitaleik
Evrópukeppni meistaraUða björguðu
„buddu” félagsins sem var farið að
skulda mikla peninga. Ein aðal-
ástæðan fyrir því að Liverpool var
komið í skuld var að áhorfendum
fækkaði á helmaleikjum Uðsins sl.
keppnistimabU. MeðaltaUð á leik var
31.972 enóriðáður 34.758. -SOS
Húsvíkingar
sigursælir
— á opna golfmótinu
á Húsavík um helgina
Húsvíkingar voru mjög sigursæUr á
opna goUmótinu sem háð var á goU-
veUinum við Húsavík um helgina. Það
hafa þeir yfirleitt verið gegnum árln
enda tekur tima að venjast erfiðum
veUinum.
Keppt var í þremur flokkum, leikn-
ar 36 holur með og án forgjafar. Úrslit:
Karlaflokkur
1. Skúli Skúlason, GH 159
2. Þórhallur Pálsson, GA 161
3, Kristinn Hjálmarsson, GH 161
Kvennaflokkur
1. Slgriönr Ölafsdóttir, GH 203
2. Sóiveig Skúladóttir, GH 226
3. Pat Jónsson, GA 231
Unglingaflokkur
1. Ólafur Inghnarsson, GH 152
2. Ragnar Ragnarsson, GH 152
3. Aðalbjöra Pálsson, GA 197
-hsim.
íþrótt
íþróttir
íþróttir
Auðveldur sigur
Þórsara og þrjú
stig í sarpinn
— Þór vann Fram 3:0 á Akureyri í gærkvöldi
Frá Sölva Sölvasyni, fréttamanni DV á
Akureyrl:
„Þetta var mjög sanngjarn sigur hjá
okkur. Við vorum mUilu grimmari og
áhugasamari og það kom mér mjög á
óvart hversu Framaramir voru áhuga-
lausir þar sem þeir standa í fallbar-
áttu,” sagði HaUdór Áskelsson, Þór,
eftir að Þór hafði sigraö Fram í leik lið-
anna í 1. deUd íslandsmótsins í knatt-
spyrnu með þremur mörkum gegn
engu.
„Það var mjög góð barátta í þessu
hjá okkur og við vorum betri aUan tím-
ann. Nú tökum við hvern leik fyrir sig
og stefnum að því að halda okkur í
deildinni,” sagði Halldór ennfremur en
hann átti mjög góöan leik í gærkvöldi.
Þaö er skemmst frá því að segja að
Þórsarar voru einir um það að hafa
áhuga á sigri í þessum leik. Þeir voru
miklu ákveðnari og uppskáru eftir því.
Þórsarar skoruðu fyrsta mark.sitt
úr vítaspymu á 25. mínútu leiksins.
Brotið var á einum Þórsara og góöur
dómari leiksins, Guömundur Haralds-
son.benti samstundis á vítapunktinn.
Jónas Róbertsson tók vítaspyrnuna og
fannst mörgum hún í tæpara lagi. En
inn fór knötturinn og Þórsarar náðu
forystunni.
Annað mark skoruðu Þórsarar sex
Njarðvíkingar
í annað sætið
—eftir 3:0 sigur á Einherja í gærkvöldi
Njarövíkingar komnir í annað sæti
annarrar deildar en annars er staðan
þannig í 2. deild eftir leikinn í gær-
kvöldi:
Frá Magnúsi Gíslasyni, fréttamanni
DV á Suðurnesjum:
í Njarðvíkingar áttu ekki i teljandi
erfiðleikum með að leggja lið Einherja
frá Vopnafirði að velli er liðin mættust.
í 2. deild íslandsmótsins í knattspymu
i Njarðvík í gærkvöldi. Njarðvíkingar
skoruðu þrjú mörk en andstæðingarnir
ekkert.
Jón Halldórsson kom mikiö við sögu í
þessum leik hjá Njarövikingum. Hann
skoraði síðasta markið og lagði hin tvö
upp eins og sagt er á íþróttamáli.
Mörkin tvö skoraði Kristinn
Guðbjartsson. Með þessum sigri eru
FH
Njarðvík
Víðir
Völsungur
Skallagrímur
Isafjörður
Vestmannaeyjar
Siglufjörður
i Tindastóll
Einherji
12 8 3 1 25-10 27
13 6 3 4 16-12 21
12 6 3 3 22-17 21
12 6 2 4 18-17 20
12 5 2 5 19-16 17
12 4 5 3 19-17 17
11 4 4 3 15-16 16
11 4 4 4 14-13 16
12 2 2 8 13-26 8
13 0 2 11 8—25 2
-SK.
mínútum síðar. Kristján Kristjánsson
fékk þá góða sendingu við vítateigs-
línu, tók knöttinn niður og þrumuskot
hans réði Guðmundur Baldursson ekki
við. Staöan var 2—0 í leikhléi.
Síðari hálfleikur var nánast endur-
tekning á hinum fyrri. Framarar
áhugalausir með öllu og áhugi á að
vinna leikinn ekki fyrir hendi. Þórsar-
ar héldu hins vegar áfram að berjast
og náðu aö bæta einu marki við í síöari
hálfleik. Það var á 40. mínútu. Einar
Arason átti þá þrumuskot af 25 metra
færi. Guömundur hálfvarði en náði
ekki að halda knettinum sem sigldi í
netið og stórsigur norðanmanna var í
höfn.
Þessi sigur var afar dýrmætur fyrir
Þórsara sem uppskáru eins og til var
sáð. Ef sami baráttuvilji og kraftur
verður fyrir hendi hjá liðinu i næstu
leikjum munu Þórsarar líklega halda
sæti sínu í 1. deild. Þeir léku oft á tíöum
vel og Halldór Áskelsson var þeirra
besti maður. Vann vel allan leikinn.
Allt var steindautt hjá Fram í
þessum leik og verður það aö teljast
furðulegt að liö sem er að berjast um
aö halda sæti sínu í 1. deild skuli ekki
sýna lit.
Liðin. Baldvin, Sigurbjörn, Jónas,
Nói, Oskar, Einar, Kristján, Guðjón,
Bjarni, Arni og Halldór.
Fram: Guömundur, Þorsteinn V.,
Trausti, Hafþór (Gísli Hjálmtýsson),
Sverrir Kristinn, Omar (Bragi
Björnsson), Guðmundur St., Guð-
mundur T., Jón Sveinsson, örn.
Leikinn dæmdi Guðmundur
Haraldsson og gerði það vel. Áhorf-
endur voru um 400. Nói Björnsson fékk
gult spjald.
Maður leiksins: Halldór Áskelsson,
Þór. -SK.
gera grín að Tompson
Breski tugþrautarmaðurinn
Daily Thompson, sem vann sem
kunnugt er gullverðlaunin á ólym-
píuleikunum í Los Angeles, hefur
vakið mikla athygli að undanförnu
vegna ýmissa ummæla sinna og
þá ekki hvað minnst í Los Angeles
á meðan leikarnir stóðu yfir.
Þegar keppnin í kúluvarpinu stóð
sem hæst tóku nokkrir áhorfendur sig
til og hrópuðu ókvæðisorð að Thomp-
son. Snillingurinn lét það ekki á sig fá
Ekki „djamm”
Liverpool manna
— leiðrétting á Liverpool-f rétt
A íþróttasíðu blaðsins þann 13.
ágúst sl. var birt frétt undlr fyrir-
sögninni „Liverpool fékk góða upp-
hitun” og er þar greint frá því að
leikmenn Liverpool hafi skemmt sér
meira en góðu hófi gegnir kvöldið
fyrir leikinn gegn KR.
Blaðamaður sá sem skrifaði um-
rædda frétt taldi sig hafa áreiðan-
legar heimildir fyrir henni og birti
hanaígóðritrú.
Nú hefur komið í ljós að þær
heimildir voru að mestu rangar.
Liverpool liðið tröllreið ekki
skemmtistöðunum Broadway og
Hollywood á laugardagskvöldið.
Liverpool liðið „djammaði” ekki
fram á morgun í partíum á Hótel
Esju.
Þess er hins vega skylt að geta að
þrír leikmanna Liverpool sóttu
Hollywood þetta kvöld og tveir
þeirra dvöldu til loka dansleiksins og
lágu ekki á því að sumir félaga
þeirra væru á öðrum veitingahúsum.
Þeir buðu í partý að Hótel Esju en
ekki varð úr því þar. Kvitt um nætur-
líf Liverpoolmanna má því að ein-
hverju leyti rekja til þeirra sjálfra.
Það breytir hins vegar ekki því að
láðumefnd frétt er í öllum aðal-
: atriðum tilhæfulaus og eru hlutaðeig-
endur beðnir velvirðingar á henni.
Ritstj.
en sýndi þeim engu að síður óæðri end-
ann á sér svona í vanþóknunarskyni.
Er ekki að orðlengja það að ekki heyrð-
ist orð af neikvæðari tegundinni eftir
þessa óvæntu sýningu Daily Thomp-
sons. -SK.
Það var ekki oft i leiknum í gærkvöldi að 1
gegn
„Þetta var frábær sigur. Stigin þrjú
sem við fengum eru gifurlega
mikilvæg og ég hef trú á að þetta sé allt
að smella saman hjá okkur,” sagði
Valur Valsson, knattspymumaður i
Val, eftir að Valur hafði tekið tslands-
meistara Ákraness í kennslustund á
Valsvelli i gærkvöldi i leik liðanna i 1.
deild.
Valsmenn léku oft stórskemmtilega
og Skagamenn áttu ekkert svar við
beittum leik andstæðinganna. Áðeins
fyrstu mínúturaar sem eitthvað sást til
Islandsmeistaranna. Ekki þeirra
dagur en Valsmenn léku hins vegar á
als oddi. Og þegar fyrri hálfleik var
lokið höfðu Valsmenn skorað fjögur
mörk en Skagamenn ekkert.
Skagamenn áttu tvö hættuleg mark-
tækifæri í byrjun leiksins og vom
óheppnir að skora ekki. Tvisvar kom-
ust þeir innfyrir vöm Valsmanna og
reyndu í bæði skiptin að vippa knettin-
um yfir Stefán Valsmarkvörð. I bæði
skiptin hafnaði knötturinn i stönginni.
Þeir sem þar voru að verki voru Karl
Þórðarson og Arni Sveinsson. Og það
var ekki fyrr en eftir þessi tvö færi að
Valsmenn byrjuðu aö leika knatt-
spymu. Og fyrsta markið kom á 10.
mínútu. Gefið var fyrir mark IA og
vömin svaf illa á verðinum. Knött-
urinn barst til Ingvars Guðmunds-
sonar og hann gerði engin mistök,
heldur skaut knettinum af öryggi í
markið.
Annað markið kom stuttu síðar. Og
enn var gefið fyrir mark Islandsmeist-
aranna. Þar var fyrir Valur Valsson.
Hann skaut en Bjarni varði vel.
Knötturinn hrökk aftur til Vals og nú
náði hann að skora meö góðu skoti úr
vítateig. Þriðja markið kom um
miöjan hálfleikinn. Ingvar Guðmunds-
son gaf vel fyrir markið á Bergþór