Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1984, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1984, Qupperneq 9
DV. MIÐVIKUDAGUR15. ÁGUST1984. 9 DEILT UM VINNSLU NÁMA Á HAFSBOTNI 77 þróunarríki hafa tekiö sig saman og mótmælt samkomulagi sem átta vestræn iönaðarríki hafa gert um námuvinnslu á hafsbotni. Kalla þau samkomulagiö „fullkomlega ólöglegt” og í andstöðu við hafréttarsáttmála Sameinuöu þjóöanna. Samkomulag þetta var undirritaö 3. ágúst af Bandaríkjunum, Bretiandi, Frakklandi, ttalíu, Hollandi, Belgiu, Vestur-Þýskalandi og Japan og ætti aö fyrirbyggja deilur út af kröfum fyrir- tækja til námuréttinda á hafsbotnin- um. — Það kom í kjölfar annars sam- komulags, sem sex alþjóöleg fyrirtæki höfðu gert í desember um að troöa ekki hvert öröu um tær við námuvinnslu á manganíðkúlum í Norður-Kyrrahafi. Þróunarríkin 77 lýsa yfir þeirri af- stööu sinni aö hafréttarráðstefna Sam- einuðu þjóöanna og hafréttarsáttmál- inn séu eini rétti vettvangurinn til að gera alþjóöareglur um nýtingu hafs- botnsins. Hafréttarráðstefnunni lauk 1982 og drögin aö hafréttarsáttmálanum hafa síðan beðið undirritunar og staðfest- ingar rík janna sem aöild áttu að þeim. Ólympíuleikarnir: Rúmenskur blaðamað- ur baðst hælis Rúmenskum fréttamanni sem staddur var í Bandaríkjunum vegna ólympíuleikanna var í gær veitt hæli sem pólitískum flóttamanni í Banda- ríkjunum. Flóttamaðurinn, Vladimir Moraru, var i yfirheyrslum hjá bandarískum yfirvöldum í gær og að þeim loknum var honum veitt hæli sem póiitískum flóttamanni. Starfsmaður bandaríska útlend- ingaeftirlitsins sagði að ákveðið heföi verið að flýta afgreiöslu málsins en venjulega tekur þaö mun lengri tíma aö fá hæli i Bandaríkjunum. Moraru er 38 ára gamall og starfaöi fyrir rúmenska blaðið Sportul. Hann á konu og fimm mánaða gamla dóttur í Rúmeníu. A meðan á ólympíuleikun- um stóð starfaði Moraru einnig fyrir Umsjón Guðmundur Pétursson og Gunnlaugur S. Gunnlaugsson bandarískt blað — The San Diego Union — og var nokkurs konar tengilið- ur blaðsins viö rúmensku keppenduma. Rúmenía var eina austantjaldsríkið sem sendi keppendur til ólympíuleik- anna. Hin fylgdu öll fordæmi Sovétríkj- annaogsátuheima. Það var bandaríska blaðið sem greiddi ferðakostnaö Morarus til Bandaríkjanna og höfðu rúmensk stjómvöld fallist á það fyrirkomulag. John De Lorean, bQaframleiðandinn sem ætlaði að bjarga verksmiðju sinni frá gjaldþroti með kókaín- gróða. Geta ekki ákveðiö sig hvort Lorean er sekur Eftir að hafa legið fimm daga undir feldi gat kviðdómurinn í réttarhöldun- um í máli John de Lorean ekki komist að niðurstööu um hvort bílaframleið- andinn væri sekur um aðild að sam- særi til smygls á eiturlyfjum til Banda- ríkjanna. Sex karlar og sex konur eiga sæti í kviðdómnum sem verður að skila ein- róma niöurstööu. Ákæruvaldið telur að de Lorean hafi leitað eftir því að hagnast á eiturlyfja- smygli til Bandaríkjanna til þess að bjarga bílaverksmiðju sinni í Belfast á N-lrlandi frá gjaldþroti. — Leynierind- rekar fíkniefnalögreglunnar í Banda- ríkjunum veiddu de Lorean í gildru og hljóðrituðu samtöl þar sem hann hélt sig vera að undirbúa og fjármagna smygl á 100 kg af kókaíni. Nái kviðdómurinn ekki samstööu verður hið opinbera að ákveða hvort málið skuli látið niður falla eða höfðað að nýju. Verði de Lorean fundinn sekur á hann yfir höfði sér allt að 67 ára fang- elsi. — Hann er 59 ára að aldri. an^oA9,arVnn,ber,sín 'l"nar '*Ue/^ '9ð(Ur,r>nur,:"'rned Sneyt'sins ^/e Um nánari kosti OROBIS, getur þú lesið í ítarlegum upplýsingabæklingi, sem liggurframmi á OLÍS stööum um allt land.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.