Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Síða 2
2
DV. MANUDAGUR 27. AGUST 1984.
Atvinnuleysið á Seyðisfirði:
Hefur áhrif hjá um 40% bæjarbúa
„TEUUM UPPSAGN-
IRNAR ÓLÖGLEGAR”
— segir Hallsteinn Friðþjófsson, formaður Verkamannafélagsins Fram
„Viö teljum þessar uppsagnir
Fiskvinnslunnar ólöglegar. Viö
stefndum fyrirtækinu fyrir hiö sama
áriö 1980 og unnum þaö mál í undir-
rétti. Því var síöan áfrýjað til Hæsta-
réttar þar sem þaö er enn. Núna eru
nákvæmlega sömu hlutir að gerast
og þá,” sagði HaUsteinn Friöþjófs-
son, formaöur Verkamannafélagsins
Fram á Seyðisfiröi, í samtali viö DV
en uppsagnir Fiskvinnslunnar hafa
eingöngu bitnað á félagsmönnum
Fram, tæplega 100 þeirra eru at-
vinnulausir nú og af þeim hafa tæp-
lega 70 látiö skrá sig sem slíka.
Mál þaö sem Hallsteinn á viö og
gerðist 1980 var aö skip Fiskvinnsl-
unnar voru látin sigla meö afla á er-
lenda markaöi á sama tíma og
starfsfólkinu var sagt upp störfum
vegna verkefnaskorts. Nú hafa skip-
in einnig verið látin sigla meö afla á
sama tíma og starfsfólkinu var sagt
upp.
Aö sögn Hallsteins hefur atvinnu-
leysið á Seyöisfiröi nú staöið í rúmar
þrjár vikur og er fók ekki bjartsýnt á
aö ástandið batni í bráö.
,,Menn eru enn ekki farnir aö tala
um aö flytja en þaö gerist ef ástandið
batnar ekki,” sagöi hann.
„Það hefur veriö talsvert af aö-
komufólki hér sem er á förum vegna
atvinnuleysisins enda ljóst að ekki
mun rætast úr á næstunni. Viö horf-
um fyrst og fremst til síldarinnar og
loðnunnar til aö örva atvinnulifið á
ný en þær veiðar fara ekki í gang
fy rr en seint í haust
Aðspuröur hvort Verkamanna-
félagið myndi stefna eigendum Fisk-
vinnslunnar aftur vegna uppsagn-
anna sagðist Hallsteinn gera ráö
fyrir því aö slíkt yrði undirbúiö.
„Þeir búa til þennan vanda sjálfir
meö því aö segja upp fólki vegna hrá-
efnisskorts á sama tíma og þeir sigla
meö aflann. Slíkt teljum við ólög-
legt,”sagöihann.
-FRI
Hallsteinn Friðþjófsson formaður
Verkamannafélagsins Fram.
DV-mynd: FRI
„Ástandið aldrei veríð verra"
— segir Olga Jónsdóttir
„Atvinnuástandiö hefur aldrei hafi verið sagt upp á ólöglegum for-
verið verra hér en nú og var þaö þó sendum.”
slæmt fyrir almennt séö,” sagði Olga Hjá Olgu kom fram aö heimili
Jónsdóttir í samtali viö DV en hún hennar kæmi ekki mjög illa út úr
var ein af þeim sem sagt var upp hjá þessu þar sem þaö hefði aðrar tekjur
Fiskvinnslunni. til aö hlaupa upp á......en þaö eru
ekki allir svo vel settir,” sagöi hún.
„Ég veit ekki hve langan tíma „Viö eigum hlut í 9 tonna bát og
þetta mun vara. I bréfinu til okkar síðustu tveir túramir á honum hafa
var sagt aö ástæöa uppsagnanna verið sæmilegir en báturinn er á
væri hráefnisskortur. Þaö er ekki línuveiðum.”
rétt. Skipin vom látin sigla með Dóttir Olgu, Ingibjörg Þorsteins-
aflann og því teljum viö að okkur dóttir, var einnig ein af þeim sem
Mæðgurnar Ingibjörg Þorsteinsdóttir og Olga Jónsdóttir. DV-mynd FRI.
sagt var upp. Hún er í skóla og sagði í
samtali viö DV aö hún ætti eftir eina
önn í Menntaskólanum á Egils-
stöðum. „Eg ætla mér aö klára þaö
nám þó ég verði að slá lán til þess.
Atvinnuleysisbætumar eru ekki upp
á marga fiska,” sagöi hún.
Atvinnuleysisbæturnar, sem þær
mæögur fá, nema hæst 75% af dag-
vinnutekjunum en fram kemur hjá
þeim aö ekki hefur verið um mikla
yfirvinnu að ræða hjá fyrirtækinu í
sumar . . . „hún var aðeins fyrst í
vor,”segja þær.
Þær hafa ekki oröið neitt varar viö
aö fólk ætli aö flytja af staönum
strax.......veðrið hefur veriö svo
gott en hins vegar vitum við ekki
hvenær vinna hefst á ný, þaö ganga
svo margar sögur um það, jafnvel aö
ekki verði byrjað fyrr en um jólin á
ný,”segja þær.
Olgu finnst persónulega allt í lagi
aö kæra þessar uppsagnir eins og
gert var síöast og jafnframt segir
hún að . . . „persónulega finnst mér
í lagi þótt ríkisstjórnin hlaupi ekki
undir bagga meö þessum mönnum,
þeir ættu aö geta leyst sín mál
sjálfir.”
-FRI.
Mikiö atvinnuleysi á Seyöisfiröi
hefur vakiö umræður að undanförnu
en í þessum 1000 manna bæ eru nú
tæplega 100 manns atvinnulausir,
þar af tæplega 70 á skrá, og aö sögn
bæjarstjórans hefur þetta áhrif á um
40% bæjarbúa.
Atvinnuleysið er tilkomiö vegna
uppsagna hjá stærsta atvinnu-
veitanda bæjarins, Fiskvinnslunni,
en fyrirtækið sagöi upp starfsfólki
vegna hráefnisskorts á sama tíma og
þaö lét skip sín sigla meö afla á er-
lenda markaöi.
Miklir rekstrarerfiðleikar hrjá nú
Fiskvinnsluna og hefur viöskipta-
banki fyrirtækisins neitaö því um
frekari fjármagnsfyrirgreiðslu þó
svo aö boðin hafi verið bæjarábyrgð
fyrir slíku en forráðamenn vildu lítiö
ræða viö DV um þau mál fyrir viku,
sögöu þau aöeins vera í athugun.
Verkalýðsforustan á staönum
telur uppsagnirnar ólöglegar og
undirbýr nú aö kæra þær.
-FRI
.. Við erum
ekki að
deyja hér,f
— segir Þorvaldur Jóhannsson bæjarstjóri
„Þaö er ljost að fiskvinnslan og
togaraútgeröin hafa verið reknar
meö tapi í fleiri ár. Landsbankinn er
ekki tilbúinn aö setja f jármagn leng-
ur í þennan taprekstur og eigendum-
ir hafa ekki bolmagn til þess sjálfir,”
sagði Þorvaldur Jóhannsson, bæjar-
stjóri á Seyöisfiröi, í samtali viö DV.
Hann kvaö þetta síður en svo vera
sérseyðfirskt fyrirbæri, þeir hefðu
einfaldlega veriö hinir fyrstu sem
allt stöðvaöist hjá.
„Þaö er ljóst aö ef ekki rætist úr
málunum hjá okkur með haustinu
má búast viö þvíaðfólkfariaöhugsa
til aö fara héöan en ég trúi því ekki
aö ráöamenn þjóöarinnar standi aö-
geröalausir og láti þetta koöna niður
hjá okkur.”
Aöspuröur hvort einhver lausn á
þessum málum væri í sjónmáli sagöi
Þorvaldur aö viöræöur heföu verið á
milli eigenda Fiskvinnslunnar og
viöskiptabanka þeirra sem bæjar-
stjórn heföi fylgst meö. „Þetta geng-
ur seint en mjakast þó áfram og fyrir
okkur skiptir þaö öllu máli aö þetta
atvinnuástand leysist sem fyrst,”
segirhann.
„Hrikalegt kjaftshögg"
„Við erum ekki aö deyja hér en
þaö er hrikalegt kjaftshögg fyrir
bæjarfélagiö aö vera með tæplega
hundraö manns atvinnulausa. Þaö
kemur beint og óbeint viö yfir 40%
bæjarbúa, til dæmis eru hér nemend-
ur sem stunda nám víös vegar um
landiö og ljóst að þeirra fjáröflun
hefur brugöist að hluta til. F ólkið hér
trúir því hinsvegar og treystir aö at-
vinnulífinu verði hleypt í gang á ný,”
sagöi Þorvaldur.
„Annað sem kemur inn í þetta er
að tekjur bæjanns riölast skugga-
lega við svona ástand. Þaö er ljóst aö
eitt bæjarfélag stenst það ekki lengi
aö missa af þessum tekjum án þess
aö nokkuð komi í staöinn og ef ekki
fer aö birta til hjá okkur í byrjun
næsta mánaöar þá er virkilega farið
aö syrta í álinn hjá okkur.”
Fjármagn er til
„Þaö er enginn hér sem trúir því
aö ekki sé til f jármagn til lausnar á
vanda útgerðarinnar, viö höfum
bæöi augu og eyru og sjáum til dæm-
is uppbygginguna á SV-horninu, hún
hlýtur aö kosta peninga. Sjávarút-
vegurinn aftur á móti aflar okkur um
75% gjaldeyristekna okkar og ef
hann lamast þá stöövast allt,” sagöi
Þorvaldur.
Hann var ekki hrifinn af umfjöllun
fjölmiðla um sjávarútveginn al-
mennt... „þar hefur maöur séö talað
um aö útvegurinn sé baggi á þjóöfé-
laginu. Þaö er slæmt að sjá sÚkt því
útvegurinn umfram annaö heldur í
okkur lífinu”.
Síld og loðna
Horfurnar i atvinnumálum á
Seyðisfirði eru allt annað en bjartar
eins og aö framan greinir. Fisk-
vinnslan var það stór aðili í atvinnu-
lífinu að önnur fyrirtæki og atvinnu-
greinar geta ekki tekiö viö nánuar
nærri öllum þeim mannafla sem
missti vinnu sína og helst horfa
menn á staðnum nú til síldar- og
loönuveiöa til aö bjarga einhverju.
Þar er staðan þó óljós og ljóst að erf-
iðlega mun ganga aö afla sölusamn-
inga fyrir síldarafuröir okkar vegna
mikils offramboös á henni á erlend-
um mörkuðum. .pRj
Þorvaldur Jóhannssou bæjarstjóri við fallbyssu þá sem gerð var upp í vetur
og skotiö var af 17. júní en hún prýðir nú anddyri bæjarskrifstofunnar.
DV-mynd: FRI