Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Side 9
DV. MANUDAGUR 27. AGUST1984. 9 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Sovéskir flóttamenn reknir til baka Amnesty Intemational hefur ásakaö Finnland um að reka flóttamenn frá Sovétríkjunum til baka. Aö sögn Bjom Sundell, starfsmanns mannréttinda- samtakanna í Finnlandi, gera Finnar flóttamönnum ekki kleift aö sækja um hæli sem pólitískir flóttamenn heldur réka þá beint til baka. Sundell segir Amnesty hafa til með- feröar mál allt aö 10 manna sem eru í sovéskum fangelsum eftir að hafa ver- ið sendir til baka frá Finnlandi. „Svo viröist vera, í reynd, aö þessu fólki sé ekki gefinn sá möguleiki aö sækja um hæli,” sagði Sundell. segir Amnesty International Hann sagöi einn hinna sovésku flóttamanna vera Vyacheslav Chere- panov. Finnskir landamæraveröir heföu haldiö honum í þrjá daga, í júlí- mánuöi 1980, og síðan sent hann til baka. Aö sögn finnska dagblaðsins Hufvudsstadbladet var Cherepanov dæmdur til 12 ára þrælkunarvinnu og þriggja ára útlegðar. „Mér finnst þaö furðulegt aö fólk skuli flýja til þessa lands frá ýmsum stöðum í heiminum en sækja svo sjald- an um hæli,” sagöi Sundell. „Þess vegna datt okkur helst í hug að það væri gert svo erfitt aö útlendingar gætu hreinlega ekki gert þaö.” Eistlenski flóttamaðurinn Valdo Randpere sagöi blaöamönnum aö hann heföi flúið til Svíþjóöar en ekki Finn- lands vegna þess aö hann hefði vitaö aö Finnar sendu flóttamenn til baka til síns heima. Fulltrúi í utanríkisráðuneytinu finnska, Eero Kekomaki, neitaöi þess- um ásökunum. Hann sagöi aö sam- kvæmt landamærasamningi frá 1960 væru Sovétríkin og Finnland einungis skuldbundin til aö skila fólki sem færi óvart inn á svæði hins. Truman Capote í himneskum félagsskap. Truman Capote látinn Truman Capote, 59 ára gamall bandarískur metsölurithöfundur, lést á laugardag. Að sögn lögreglu er ekkert sem bendir til að hann hafi dáiö af óeðlilegum orsökum. Hann dó í höll vina sinna í Los Angeles. Capote var þekktastur fyrir bækur sínar Breakfast at Tiffany’s og In Cold Blood. Sú síðari var sönn saga fjolskyldumorðingja. Hann var einn launahæsti rit- höfundurinn í Bandaríkjunum. Einu sinni þegar hann var spurður hvort hann væri hamingjusamur, svaraði hann: Eg get bara sagt aö ég er ekki óhamingjusamur. Einungis vitleysingar og saklausir bjánar eru hamingjusamir. ” Wallace styð- ur Ferraro $$ a n nprb aú erö lun tn Snorrabraut 44. Sími14290 VÆRÐARVOÐIR George Wallace lýsti yfir stuön- ingi sínum viö Geraldine Ferraro, varaforsetaefni Demókrataflokks- ins í Bandaríkjunum, á laugardag. Wallace er nú fylkisstjóri Alabama. Hann breytti skoöunum sínum á kynþáttamálum fyrir nokkrum árum og þaö voru svert- ingjar fylkisins sem komu honum í fylkisstjórastólinn. Hann og Ferraro hittust á laugardag og skiptust á a .nælisheillaóskum. Wallace varð 65 ára þann dag og Ferraro varö 49 ára á sunnudag. Nr. 1. 150x200 cm, kr. 1.012,- Nr. 2. 150x200 cm, kr. 1.012,- Nr. 3. 220 x 240 cm, kr. 1.790,- Nr. 4. 180x220 cm, kr. 1.340,- i EINSTAKUR VIÐBURÐUR - FRIEDMAN /TlÍsLANDÍf I Hinn heimskunni hagfræðingur og nóbelsverðiaunahafi Milton I Friedman heldur fyrirlestur í Súlnasal HÚTEL SÖGU ! LAUGARDAGINN 1. SEPTEMBER KL. 12. I Heiíi fyrirlestursins er: „Eru aukin ríkisumsvif óhjákvæmiieg?" Aðgöngumiðar fást í bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar, Austurstræti 18. | Miðaverð kr. 1.200,- (hádegisverður innifalinn). Viðskiptadeild Háskóla Islands, Stofnun Jóns Þorlákssonar. L. ........... ....

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.