Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Blaðsíða 11
DV. MANUDAGUR 27. ÁGUST1984.
11
Verði norðurljós á Mánárbakka...
ísland tíkt
fjallahéruö-
unum í Japan
— segja japönsku vísindamennirnir sem fá
nýbakaðar vöfflur með rjóma í kaffitímum
Japönsku vísindamennirnir og Garðar Mýrdal eðlisfræðingur í kaffi hjá Elísabetu, húsfreyju á Mánárbakka.
DV-mynd: Ingibjörg Magnúsdóttir, Húsavík.
Frá Ingibjörgu Magnúsdóttur, frétta-
ritara DV á Húsavík:
Þessa dagana vinna fimm
vísindamenn, fjórir Japanir og einn Is-
lendingur, viö að setja upp rannsókna-
stöð við Mánárbakka á Tjörnesi.
Stöðin verður ein af sex sam-
verkandi sem notaðar eru til að rann-
saka hvað gerist samtímis á mót-
lægum stöðum á jarðsegulsviði.
Þr jár af stöðvunum verða á Islandi.
Aðalstööin á Islandi sem var reist
við Húsafell í fyrra, stöðin sem verið er
aö reisa viö Mánárbakka, og stöð sem
reist verður síðar í sumar á Isafirði.
Mótlægu stöðvamar eru á suður-
skautinu. Tvær japanskar stöðvar,
Syova og Mighuho, og ein rússnesk,
Molodeghnaya, búin japönskum rann-
sóknatækjum.
Rannsóknir sem þessar fara nú
mjög vaxandi hjá mörgum þjóðum
sem reisa stöðvar á jörðu niðri og einn-
ig fara fram rannsóknir með gervi-
tunglum.
Fjórir japanskir vísindamenn frá
National Institute of Polar Research
vinna við uppsetningu stöðvarinnar á
Mánárbakka ásamt Garðari Mýrdal
eðlisfræðingi.
Japönsk stjórnvöld greiða kostnað
af þessum rannsóknum. Stööin mun
starfa næsta ár og lengur ef frekari
fjárveiting fæst.
Ástæðan til aö Island varð fyrir
valinu við uppsetningu stöðvanna er að
þaö liggur mjög vel viö norðurljósa-
beltinu þar sem segullínur þéttast inn
aö segulpóli.
Þess má geta að á Mánárbakka eru
danskar og norskar athugunarstöðvar
á sama sviði er hafa verið starfræktar
síðan 1977. Garðar vann einnig við
uppsetningu þeirrar norsku.
Er ég kom við á Mánárbakka á
þriðjudag fannst mér við hæfi að
forvitnast um hvemig svo langt að
komnum mönnum sem Japönum litist
á ísland og Islendinga. Sýndist mér
þeir hafa allt gott aö segja um land og
lýö og ekki kvörtuðu þeir yfir veður-
farinu hér á landi. Þeir sögðu að í raun
væri Island ekki svo ólíkt fjallahéruð-
um Japans.
Ég var svo heppin að vera á ferðinni
á kaffitíma og þáði nýbakaðar vöfflur
með rjóma hjá Elísabetu húsfreyju.
Ekki virtist undarlegt þótt kostgangar-
ar hennar væru ánægðir með lífið og
tilveruna.
Eg gæti vel hugsað mér að skreppa í
kaffi á Mánárbakka aftur fljótlega.
-JGH
Eimskip
leigir nýtt
gámaskip
Eimskip hefur tekið á eins árs
þurrleigu gámaskip frá breska
fyrirtækinu Ellerman City og hefur
Eimskip kauprétt á skipinu.
Skipið, sem gefið veröur nafnið
Laxfoss, er systurskip Bakkafoss og
City of Perth sem Eimskip hefur
einnig á leigu frá sama fyrirtæki.
A Laxfossi verður íslensk áhöfn,
eins og á Bakkafossi, og verður skipið
afhent Eimskip í byrjun september.
Skipstjóri á Laxfossi verður
Amgrímur Guðjónsson og yfirvélstjóri
Halldór E. Ágústsson.
ÍTAT JA-SVTSS
SjÖ
QTæntir
ankada
í sól og alvöru sumri 9.-15. sept
Við fljúgum beint til Rimini þar sem gist verður á
glæsilegu fyrsta flokks hóteli. Eftir að hafa sleikt sólina
þar í 5 daga, kannað víðfræga veitingastaðina og kíkt
í verslanir ökum við stórkostlega fjallaleið til Sviss og
Yfir Alpafjöllin til Zurich - með viðkomu á nokkrum
fallegustu stöðunum. I Zurich erdvalist í viðburðaríkan
sólarhring, fullum af heimsóknum á allt það skemmti -
legasta sem þessi fallega borg hefur upp á að bjóða.
Nú skín sólin glatt á (talíu og allar verslanirorðnarfullar
af glæsilegum vetrarfatnaði. Við efnum til óvæntrar
aukaferðar í sól og alvörusumar dagana 9.-15.
september og nú er um að gera að taka snarlega
ákvörðun og skella sér með í hressilega ferð sem
sameinar Ijúfa lífið á sólarströndum og eldfjörugt
stórborgarlífið.
Verð aðeins
Er.12.700
Innlfalið Flug til Rimini, gisting á fyrsta flokks hóteli
m/morgunverði, íslensk fararstjórn, akstur til Zurich,
gisting þar á glæsilegu hóteli m/morgunverði, akstur
til og frá flugvöllum erlendis og flug frá Zurich og heim.
Með þessari ferð kveðjum við
sólarferðir sumarsins með
þakklæti fyrir frábæra þátttöku
og setjum punktinn yfir i-ið með
ferð og verðlagningu sem á sér
fáar hliðstæður!
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SÍMAR 21400 & 23727