Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Page 12
12 DV. MÁNUDAGUR 27. AGUST1984. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aóstoöarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍDUMÚLA 12—14. SÍMI 686611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI '27022. Afgreiðsla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI11. SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 686611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA 12. Prentun: Árvakur hf„ Skeifunni 19. Áskriftarverðá mánuði 275 kr. Verð í lausasölu 25 kr. Helgarblað 28,kr. • Staöa Þorsteins Miklar umræöur viröast vera í gangi innan stjórnar- flokkanna um nýjan stjórnarsáttmála sem framsóknar- menn kalla reyndar verkefnalista. Sá orðaleikur skiptir ekki máli heldur innihald og stefna sem fram kann að koma í nýjum stjórnarsamningi. Annars er það óneitan- lega seint í rassinn gripið að þrefa um það nú á haustdög- um hvernig ríkisstjórn landsins eigi að halda á málum í vetur og út kjörtímabilið. Strax í vor var formaður Sjálf- stæöisflokksins og sjálfsagt fleiri innanbúðarmenn þar þeirrar skoðunar að semja þyrfti nýjan stjórnarsáttmála. Strax þá, fyrir nær hálfu ári, töldu þessir aöilar aö upp- haflegur stjórnarsáttmáli þyrfti endurskoðunar við. Hvers vegna í ósköpunum var þá ekki strax hafist handa um bættan og breyttan stjórnarsamning? Eftir hverju var að bíða? I staðinn er þjóðinni boðiö upp á þá óvissu hvort þeir flokkar, sem komu sér saman um í júní á síðasta ári aö stjórna landinu í fjögur ár, hefðu úthald og vilja til að endast út annað áriö. Það er bæði nýtt og áö- ur óþekkt að ríkisstjórnarflokkar þurfi aö setjast niður ári eftir stjórnarmyndun og semja upp á nýtt stefnuna í landsmálum. Ekki er það traustvekjandi og beinlínis háskalegt ef viðræðurnar dragast á langinn. Fjöll hafa áður tekið jóðsótt. Vonandi fæðist ekki lítil mús í þetta skipti. Staða formanns Sjálfstæðisflokksins, Þorsteins Páls- sonar, hefur mjög veriö í sviðsljósinu í tengslum við við- ræður stjórnarflokkanna. Aftur og aftur er spurt hvort Þorsteinn taki sæti í ríkisstjórninni. Rétt eins og það ráði öllum úrslitum. Vitaskuld er það sérkennileg staöa að formaður annars stjórnarflokksins og þess sem stærri er skuli ekki sitja í ríkisstjórninni. Það hlýtur að vera óþægilegt, bæði fyrir hann, flokk hans og stjórnina sem slíka. Ur því sem komið er hlýtur það hins vegar að vera mik- ið matsatriði fyrir Þorstein sjálfan hvort hann tekur sæti í ríkisstjórninni. Það á hvorki að vera frágangssök af hans hálfu né heldur hégómamál hvort hann fær ráðherratitil. Formennska í Sjálfstæðisflokknum er nægjanleg völd og ígildi ráðherradóms ef hann svo kýs. Staða hans og seta í ríkisstjórn breytir heldur engu hvort stjórnin stendur sig vel eða illa því áhrif getur hann haft, þau sem skipta máli, hvort heldur hann er utan eða innan dyra í stjórnar- ráöinu. Það sem skiptir máli fyrir Þorstein Pálsson, sem nýjan formann í Sjálfstæðisflokknum, er hvort sú ríkisstjórn, sem flokkur hans á aðild að, og þá um leið flokkarnir, sem aö henni standa, geti mannaö sig upp í samkomulag og samstarf sem skilar árangri. Það yrði heimskuleg tiltekt að setjast í ríkisstjórnina meðan ekki er vitað hvort hún lafir deginum lengur eða hvort er vitað að hún geti komið sér saman um þær kerfisbreytingar og endurreisn sem þjóðin þarf á að halda. Ef nýr stjórnarsáttmáli verður útvötnuð málamiðlun, ef stjórnarflokkarnir eru að treina líftóruna í stjórninni fyrir siðasakir, þá á Þorsteinn Pálsson að láta það vera að sækjast eftir ráðherrastól. Viðræðurnar, sem nú eru í gangi, ráða úrslitum. Ef stjórnarflokkarnir vilja bretta upp ermarnar og ráðast til atlögu gegn stóru vandamálunum þá á Þorsteinn að vera með. Ef ekki þá á hann að undirbúa jarðarför þessarar ríkisstjórnar. Þá þarf að stokka upp spilin í nýjum kosn- ingum. ebs Hagfræðileg lit- blindaeða ómerkilegheit? — nokkrar línur til hagfræðings hinna opinberu Yfirleitt stend ég ekki í því aö svara þeim er telja sig þurfa aö gera athugasemdir viö vikulegar greinar mínar hér í DV, enda nenni ég illa aö standa í karpi viö menn. Eg hefi mínar skoðanir og þeir sínar og þar sem viö lifum í lýðræðisþjóöfélagi eru þar báöir jafnréttháir. Hins vegar er mér meinilla viö þaö þegar menn gera mér upp skoöanir og rífast síöan við mig fyrir eitthvaö allt annaö en ég hefi haldiö fram. Björn Arnórsson, hagfræðingur hjá BSRB, sendi mér grein í DV þriöjudaginn 7. ágúst. Fyrstu viö- brögö mín eftir lestur þeirrar greinar var aö þakka mínum sæla fyrir þaö aö maðurinn skuli þó vera hagfræðingur en ekki sagnfræö- ingur. Þeir sem lesiö hafa grein hans en ekki þá grein mina sem hann þykist vera aö svara hljóta aö hafa fengiö skrýtnar hugmyndir um hana. Grein hagfræöings þessa fjallar nefnilega öll um einhverjar árásir á BSRB í minni grein. Nú er þaö svo aö í henni var BSRB ekki einu sinni nefnt á nafn. Einu sinni er minnst á opinbera starfs- menn og þá að ég held þeim ekki til miska. Kannski hefur myndbirting DV meö greininni eitthvaö fariö fyrir brjóstiö á hagfræöingnum þar sem mér skilst á hans grein að hún hafi veriö frá einhverri ráöstefnu BSRB. En mér er grein hagfræöingsins óskiljanleg. Verður hann því aö fyrirgefa þótt ég noti enn spurnar- formiö. Fékk einhver smákast yfir því aö ég deildi á fámennisstjórn verkalýöshreyfingarinnar? Baö Flokkurinn meö stórum staf skó- svein sinn að rífast svolítiö svo aö jarlarnir þyrftu ekki aö gera það? Ottast ákveönir menn aö þaö kunni aö vera upphafið aö endalokum valda þeirra og misbeitingu vald- anna ef lýöræðisleg afgreiðsla mála yröi fyrirskipuö með lögum? Eöa er skýringarinnar aö leita í næsta umhverfi Björns? Getur veriö aö önnur grein mín skömmu áöur hafi farið fyrir brjóstiö á honum eöa yfirboöurum hans þar sem ég minnti á hve hrikalega opinberir starfs- menn hafa dregist aftur úr í launum? Þarf aö draga athyglina frá því? Hefur hagfræöiráðgjafar hans notiö lengi viö í mótun kjarastefnu BSRB? Spyr sá sem ekki veit. Nokkur atriði sem ekki þarf aö spyrja um. Fimbulfamb Björns um allsherjaratkvæðagreiðslur um sáttatillögur og heildarsamninga innan BSRB svarar engu um fámennisákvarðanir í verkalýös- hreyfingunni. Abendingar mínar um þær standa óhaggaöar eftir. Verst þykir mér þó þegar Björn fer að gera mér upp skoöanir á almennu launafólki sem hann segir aö ég gefi mér aö sé „samansafn geö- lítilla, getulausra einstaklinga sem skilji ekki þá einföldustu allra reglna aö meirihluti ræöur á f undum. ’ ’ Nú skilst mér að Björn þessi fylgi aö málum stjórnmálastefnu sem hvergi hefur áunnið sér hylli meiri- hluta þjóða en drottnar þó í stórum hluta heims. Þar komast einstakl- ingar ekki upp meö neitt múöur. Ekki dettur mér í hug aö álíta íbúa MAGNÚS BJARNFREÐSSON þessara landa „geölitla og getulausa einstaklinga” enda þótt þeir fái litlu ráöiö. Ofbeldið og einræöiö er samt viö sig hvar sem þaö nær aö skjóta rótum. Þaö er á sama hátt fáránlegt aö snúa orðum mínum um áhugaleysi hins almenna félagsmanns verka- lýðshreyfingarinnar á aö mæta á fundum, þar sem afgreiösla mála er fyrirfram ákveöin, upp í árásir á hann. Sökin er ekki hans, sökin er forystunnar og ekkert skítkast getur þvegiðhana burtu. Hagfræöingurinn kvartar yfir því að ég fái skoðanir almennings á ein- hvern yfirskilvitlegan máta beint í æö um leiö og þær mótast. Ekki er nú svo vel aö ég sé haldinn neinum yfir- náttúrulegum hæfileikum á þessu sviöi enda þarf þeirra ekki meö. Eg tala hins vegar viö mjög margt fólk úr öllum stéttum þjóðfélagsins, ekki síst úr rööum hinna almennu laun- þega. Það skal hagfræðingnum og fleiri forystumönnum á sviði verka- lýðsreksturs sagt aö lokum aö þaö er ótrúlegt hve auövelt er að gera sér grein fyrir skoöunum almennings ef maöur gefur sér tíma til þess aö hlusta á þær í staö þess aö segja honum hvaö hann á aö hugsa. Magnús Bjarnfreösson. Allt eru þetta heiðvirðir menn Fyrsta grein laga um heilbrigöis- þjónustu nr. 59 frá 1983 hljóðar svo: „Allir landsmenn skulu eiga kost á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem á hverjum tíma eru tök á aö veita til vemdar andlegri, líkamlegri og félags- legri heilbrigöi.” Andi laganna lítilsvirtur Þetta er metnaðarfull lagagrein og andi hennar lýsir réttlæti og um- hyggjusemi. En nýlegar sparnaöaraö- geröir ríkisstjórnarinnar hafa skapaö mörgum þær aöstæður aö þessi laga- grein veröur fjarstæðukennd og þaö sem verra er, afleiðingar þessara aðgeröa stríöa gegn anda laganna. Sá hækkandi kostnaöur, sem ríkisstjómin fyrirskipaöi aö lagður skyldi á læknis- hjálp, lyf og rannsóknir, dregur fólk í dilka, hvaö varöar getu til aö greiða fyrir slíka þjónustu og þar með aö njóta hennar. Þaö fer nefnilega ekki alltaf saman þörfin fyrir slíka þjónustu og getan til aö greiða fyrir hana á þessum dögum kjaraskerðinga og lágra launa. Meöal þeirra hækkana, sem um er aö ræða, má einkum nefna gjald fyrir komu til sérfræöings sem hækkar úr 100 kr. í 270 kr„ rannsókn á rannsóknastofu sem hækkar úr 100 kr. í 270 kr., innlend sérlyf sem hækka úr 50 kr. í 120 kr. og erlend sérlyf sem hækka úr 100 kr. í 240 kr. Þá hækkar einnig hlutur sjúklings í ferðakostnaöi umhelming. Fyrir þann sem aöeins stöku sinn- um þarf á slíkri þjónustu aö halda eru þetta upphæöir sem litlu skipta. Öðru máli gegnir um þá sem haldnir eru langvinnum sjúkdómum sem krefjast GUÐRÚN AGNARS- DÓTTiR, ÞINGMAÐUR KVENNALISTA börn sem fá þrálátar eyrnabólgur fyrstu árin og eiga e.t.v. einstæöa móöur aö einasta bakhjarli. Ötal dæmi mætti nefna um ein- staklinga og hópa sem hafa brýna þörf fyrir þá „fullkomnustu heilbrigðis- þjónustu sem á hverjum tíma er tök á að veita” en hafa enga möguleika vegna lágra launa að standa undir þeim kostnaöi sem krafist er. Sá andi sem kemur fram í þeirri lagagrein sem áöur var vitnað til lýsir einmitt skilningi á því hve aðstæöur og neyö manna í veikindum eru misjafnar en þörf allra jafnbrýn fyrir úrlausn. Ymsar rannsóknir og lækninga- aögeröir eru þess eðlis aö þær krefjast ekki sjúkrahúslegu meðan á þeim stendur. Margir s júklingar, sem þarfn- ast þeirra, hafa ekki fjárhagslegt bol- magn til aö greiöa þann kostnað sem af þeim hlýst. Þetta ástand mun óhjá- kvæmilega hvetja til þess að fleiri sjúklingar veröa lagðir inn á sjúkra- • „Erum við á leið út úr tímabundnu vel- ferðarþjóðfélagi inn í frumskóginn þar sem lögmál hinna sterku, kappsömu og efnuðu er einrátt? Eru það heiðvirðir menn sem velja slíka leið?” stööugs eftirlits, lyfjameöferöar eöa ítrekaöra rannsókna. Eöa þá sem haldnir eru illkynja sjúkdómum og þurfa e.t.v. aö reyna mörg mis- munandi lyf til aö finna þau sem best henta til að halda í skefjum eöa lækna sjúkdóminn og eyða verkjum. Eöa lítil hús af mannúö fremur en nauösyn- Þannig bakar ríkisstjórnin sér mein kostnað en ætlaö var meö því aö sýna ófyrirleitni. Sú breyting sem nú hefur verið gerð á kostnaöarhlutdeild sjúklinga við læknisþjónustu er tilraun til sparnaöar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.