Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Page 18
18
DV. MANUDAGUR 27. ÁGUST1984.
Frá
, Fiölbrautaskólanum
Ht,LBRtKriUMM í Breiðholti
Vegna forfalla vantar kennara í rafiðnum. Upplýsingar í
síma 75600.
Áfangastjóri.
RlðLBRAUTASKÚUNN
BREIÐHOLTI
Frá
Fjölbrautaskólanum
í Breiðholti
Skólinn verður settur í Bústaðakirkju mánudaginn 3. sept.
kl. 10.00 árdegis. Aðeins nýnemar og kennarar eiga að koma á
skólasetninguna.
Kennarafundur verður sama dag og hefst kl. 14.00.
Nemendatöflur verða afhentar í skólanum 3. september frá
kl. 13.00—17.00. Nemendur skulu þá greiða gjöld til stofnun-
arinnar að upphæð kr. 800,00.
Sérstök kynning fyrir nýnema verður þriðjudaginn 4. sept.
og hefst kl. 9.00.
Kennsla samkvæmt stundaskrá hefst miðvikudaginn 5.
sept. bæöi í dagskóla og kvöldskóla.
Innritun og val í námshópa í öldungadeild F.B. (kvöld-
skóla) verður 28.-31. ágúst frá kl. 20.00—22.00 alla dagana.
Þá greiða nemendur skólagjöld.
Skólameistari.
SEXTÁN VIKUR Á REKI
Þrír sjómenn, sem tjndust á Indlandshaft í janúar 1980,
rötuðu í mannraunir sem eiga sér enga hliðstœðu ísögu
sjóhrakninga.
MAMMA ÆTLAR AÐ GIFTAST
Þegar hjón skilja líða börnin mest. Aðsktlnaður foreldr-
anna særír þau djúpt. En tíminn líður og börnin aðlaga
sig smám saman njjum aðstœðum. En allt í einu komast
þau að raun um að ókunnugur aðili ætlar að gerast
fjölskyldumeðlimur.
UNDRASKÚTA ANDFÆTLIN G A
Hér er því Ijst hvernig ,,Astralía II" sigldi á brott með
Ameríkubikarínn í keþþni sem var svo sþennandi að
milljónir manna stóðu á öndinni.
BILLY STAL HONUM
Bekkjafélagarnir hæddu hann og stríddu honum. Þann
dag sem Billy, blórabarnið, þurfti mest á aðstoð minni að
halda sveik ég hann.
COUNTRYMAN
KAKTUSALÖGREGLA
Eftirlitssvæði hans er Arizónaeyðimörkin. Eftirlit hans
beinist að skemmdarvörgum sem einungis eyðileggja lif
andi jurtir og voþnuðum þrjótum sem hafa aldargamla,
risastóra saguarokaktusa fyrir skotmark.
CORRYMEELA —ÞAR SEM
ULSTER FINNUR FRIÐINN
Mótmœlendur og kaþólskir koma til þessa merkilega
kristilega samfélags sem hatrammir óvinir en hverfa
þaðan aftur sem vinir.
Þetta eru aðeins örfá
sýnishorn úr tímaritinu ÚRVALI.
Þú getur lesið meira um þetta og margt fleira í nýj-
asta hefti Úrvals sem fæst á næsta blaðsölustað.
________________Góða skemmtun—
Gengið undir fánum til kirkjunnar.
BISKUP LAGÐIHORNSTEIN
í NÝiA KIRKJU HÓLMARA
Frá Róberti Jörgensen, fréttaritara
DVíStykkishóImi:
Biskup Islands, herra Pétur Sigur-
geirsson, lagði hornstein aö nýrri
kirkju, sem veriö er að reisa í
Stykkishólmi, sunnudaginn 19. ágúst
síðastliðinn. I tilefni þessa var efnt
til kirkjuhátíðar sem var f jölmenn.
Mikiö sjálfboðastarf hefur verið
vegna byggingar kirkjunnar. Bæði
hafa menn lagt fram vinnu á bygg-
ingarstað og eins hafa verið gefin
dagsverk á vinnustöðum. Sjómenn
hafa til dæmis lagt fram verulegt fé,
sem og aðrir.
Kirkjuhátíðin hófst í Félagsheimili
Stykkishólms með því að sóknar-
presturinn séra Gísli H. Kolbeins
bauð alla velkomna. Er áthöfninni í
félagsheimilinu var lokiö gengu gest-
ir að kirkjubyggingunni. Og þar kom
biskup hornsteininum fyrir með að-
stoð Kristins Finnssonar múrara-
meistara.
Herra Pétur Sigurgeirsson biskup
sagði í samtali við DV að þetta væri í
annað sinn sem hann legði hornstein
að kirkju. I fyrra skiptið var það í
sumarbúðunum aö Vestmannsvatni;
Hann sagði ennfremur að athöfn
sem þessi væri fremur sjaldgæf.
Hornsteinn hefði verið lagður að
Skálholtskirkju 1956 og Hallgríms-
kirkju 1974.
Btskup kemur hornsteininum fyrir i kirkju Hólmara sem nú er verið að
reisa. DV-myndir: Róbert
Hann kvað hugmyndina aö horn- góð þar sem 1000 ár væru liðin síðan
steininum í kirkjubyggingunni í fyrsta kirkjan var reist á Islandi en
Stykkishólmi hafa komið frá sóknar- það var að Neöra-Ási í Skagafirði.
prestinum og aö tímasetning væri -JGH
Akstursæf ingasvæði fyrir almenning:
Hálkubraut og
krappar beygjur
Eldur í skipsf laki
Onýtt skipsflak varð eldinum að
bráð í Eiðsvík við Geldinganes. Var
þetta gamall fiskibátur sem búiö
var að afskrá og er Islenska stól-
félagið talið eiga flak bátsins. Átti
að nota flakið í brotajárn. Slökkvi-
liðið var kallað á vettvang en hætt
var við slökkvistarf því ekki var
hægt að koma slökkvitækjum viö
þama í fjörunni. Var reynt að
koma slökkvibíl að flakinu eftir
sandeiði en slökkvibíllinn festist í
.sandinum. Gekk ágætlega að losa
bílinn úr sandinum en ekki þótti
ástæða til frekari slökkvitilrauna.
Talið er að um íkveikju hafið veriö
að ræða. ÞJH
Umferðarráð og ökukennarafélag
Islands hafa sótt um lóð í landi Hafnar-
fjarðar til akstursæfinga fyrir almenn-
ing. Er gert ráð fyrir að lóðin verði 1,8
hektarar að stærð og að þar verði unnt
að æfa sig í að aka við hinar erfiðustu
aðstæður. Sérstök hálkubraut hefur
verið nefnd í því sambandi, svo og
einkar krappar malarbeygjur. Ætlunin
er að notast við hluta gamla Reykja-
nesvegarins, en lóöin sem sótt er um er
skammt frá kvartmílubrautinni við
Straumsvík.
EA
flLUVflM AL-HUS
Flutningahús á
sendi- og flutningabíla
„Kit" system
— auðveltí uppsetningu
Ótrúlega gott verð
MALMTÆKNI
Vagnhöfða 29. Símar 83045 og 83705