Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Qupperneq 20
20
DV. MANUDAGUR 27. AGUST1984.
Skrifstofustjóri
Staða skrifstofustjóra hjá Vatnsleysustrandarhreppi er laus
til umsóknar. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, mennt-
un og fyrri störf sendist undirrituðum fyrir 1. sept. nk.
Sveitarstjórinn í Vatnsleysustrandarhreppi.
Laus staða
Staða fulltrúa á Skattstofunni í Vestmannaeyjum er laus til
umsóknar. Æskilegt er að umsækjendur hafi lokið prófi í lög-
fræöi eða viöskiptafræði. Umsækjendur með haldgóða
bókhaldsþekkingu koma einnig til greina.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri
störf sendist skattstjóranum í Vestmannaeyjum fyrir 1.
október nk.
Fjármálaráðuneytið, 24. ágúst 1984.
BÍLA-OG VÉLASALAN Áf
HÖFÐATÚNI 2 SÍMI 2-48-60 #49
M. BENZ 309 ÁRGERO 1979
6 cyl, ekinn 260 þús. km.
21 sæti, dúkur á gólfi.
M. BENZ 309 ÁRGERÐ 1977
4 cyl, ekinn 190 þús. km.
(20 þús. km. á vél).
M. BKNZ 1113 ÁRGERÐ 1972 - JONC KHEERE HÚS ÁRGERÐ 1978
42 sæti. 352 vcl. Kramdrif gæti fj lgt efumscmst. Skipti mögulcgá M. Benz
309.
M. BENZ 309 ÁRGERÐ 1975
4 cyl, ekinn 80 þús. km.
á vél. 21 sæti.
M. BENZ 309 ÁRGERÐ 1977
4 cyl, ekinn 190 þús. km.
21 sæti.
M. BENZ 309 ÁRGERÐ 1978
6 cyl, ekinn 220 þús. km.
21 sæti, leðurlíki.
M. BENZ 309 ÁRGERÐ 1979
6 cyl, ekinn 166 þús. km.
25 sæti, teppalagður.
Kennarar —
Kennarar
Kennara vantar að grunnskóla Eyrarsveitar Grundarfirði. í
skólanum eru 140 nemendur frá forskóla og upp í níunda bekk.
Skólinn er að stórum hluta í nýlegu húsnæði með sérkennslu-
stofum og góðu skólasafni.
I Grundarfirði búa liðlega 700 manns. Húsnæði er fyrir hendi.
Æskilegar kennslugreinar eru: enska, danska, stærðfræði
eðlisfræöi, kennsla yngri barna og kennsla í athvarfi.
Upplýsingar gefur skólastjóri, Gunnar Kristjánsson, í símum
93-8619 — 93-8685 eða 93-8802.
Framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli:
Byggingu flugstöðvar
verður ekki seinkað
— en smíði f jögurra f lugskýla verður f restað
„Það verður frestað byggingu
f jögurra flugskýla fyrir orrustuþotur
varnarliðsins í samræmi við ákvörð-
un ríkisstjómarinnar en byggingu
flugstöðvarinnar veröur ekki seink-
aö,” sagöi Sverrir Haukur Gunn-
laugsson, sendifulltrúi í vamarmála-
deild utanríkisráðuneytisins, er hann
var inntur eftir því hvort þeirri
ákvörðun ríkisstjórnarinnar um
seinkun á framkvæmdum á Kefla-
víkurflugvelli yrði framfylgt.
Væntanlega verða a.m.k. 500
manns í vinnu hjá aðalverktökum í
vetur eins og verið hefur undanfarin
ár. 1 viöbót við þennan starfsmanna-
f jölda verða um 80 manns í vinnu við
byggingu flugstöövarinnar. Þá
starfa um 150 manns hjá Keflavíkur-
verktökum við viöhald fyrir varnar-
liðið.
„Þessi frestun á byggingu flug-
skýlanna f jögurra er einkum gerð til
að draga úr spennu í atvinnulífi á
Suöurnesjum. Suöurnesjamenn hafa
oft kvartað yfir því að of miklir topp-
ar væra í framkvæmdum á Keflavík-
urflugvelli sem gerðu Suðurnesja-
Útvarpshús,
seðlabankahús og
Keflavíkurflugvöllur:
„Þaðverður
hægtáþessum
framkvæmdum”
— seglr
forsætisráðherra
„Ég geri fastlega ráð fyrir því að
það verði hægt á þessum fram-
kvæmdum,” sagði Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra er
hann var inntur eftir því hvort
þeirri samþykkt ríkisstjómarinn-
ar að hægja sérstaklega á fram-
kvæmdum á Keflavíkurflugvelli
viö útvarpshúsið og seölabankaný-
bygginguna yrði framfylgt.
Steingrímur sagði að búið væri
aö ákveða „að hægja dálítið á út-
varpshúsinu,” en ekki væri búið að
ákveða með hinar framkvæmdim-
ar.
ÞJH
mönnum óhægt um vik að fá vinnuafl
til framkvæmda utan varnarsvæðis-
ins,” sagði Sverrir. „Þærsparnaðar-
ástæður, sem tilgreindar hafa verið
fyrir seinkun í ríkisframkvæmdum,
ná ekki til framkvæmda á Keflavík-
urflugvelli. Akvörðunin um frestun á
byggingu flugskýlanna er gerö til
þess að jafna framboð á vinnu á
Suðumesjum.”
Sverrir sagði að þaö myndi liggja
fyrir í október hvaða verkefni yrðu
unnin af aöalverktökum og Keflavík-
urverktökum á næsta ári. „Ef at-
vinnuleysi er fyrirsjáanlegt þá
verður þessi ákvörðun endurskoð-
uð,”sagði Sverrir.
A Keflavíkurflugvelli eru nú mikl-
ar framkvæmdir í gangi; verið er aö
ljúka fyrsta áfanga Helguvíkurfram-
kvæmdanna og byggingu níu nýrra
flugskýla fyrir orrustuþotur, unnið
er aö byggingu flugstöðvarinnar og
einnig er verið að vinna við ýmsar
byggingar fyrir varnarliösmenn,
m.a. bókhaldsbyggingu, og svo er
verið að byggja kirkju þama á vam-
arsvæðinu.
ÞJH
Bygging seðlabankahúss:
„ÞAÐ BREYTIST EKKERT
HJÁ OKKUR EINS OG ER”
— segir Guðmundur Hjartarson seðlabankastjóri
„Það er veriö að athuga stöðu
þessa máls um seinkum á bygging-
arframkvæmdum. Ég veit ekki hvað
samþykkt ríkisstjómarinnar kemur
til meö að breyta miklu þegar fram
líða stundir, sagði Guðmundur
Hjartarson seölabankastjóri í sam-
tali við DV er hann var spuröur um
hvort ákveöiö hefði verið í samræmi
við samþykkt ríkisstjómarinnar að
seinka byggingarframkvæmdum við
seðlabankahúsiö.
„Það getur ekkert breyst hjá okk-
ur eins og er,” sagði Guömundur,
„öll vinna sem er í gangi núna er
samningsbundin og við getum ekki
stoppað hana. Þeir samningar sem
þegar hafa verið gerðirog ekki er bú-
iðaðframkvæma halda áfram.”
Guðmundur sagði að nú væri unnn-
ið að því að klæða húsiö og glerja það
og að þessir verkþættir væru samn-
ingsbundnir. „Það er ekki hægt að
segja til um það á þessu stigi hvað
heildaráætlunin raskast mikið. Þaö
verður skoðað vandlega upp úr þessu
hvaö hægt er aö ýta þessu á undan
sér,” sagði Guðmundur Hjartarson
seðlabankastjóri. Seðlabankahúsið:,,Engar breytingar eins og er.
ÞJH
DV-mynd: K.A.
Útvarpshúsið:
„FARIÐVERÐUR AÐTILMÆL-
UM RÍKISSTJÓRNARINNAR”
„Framkvæmdum við útvarpshúsiö
verður seinkað og því farið að tilmæl-
um ríkisstjórnarinnar í þessu efni,”
sagöi Hörður Vilhjálmsson, fjár-
málastjóri Ríkisútvarpsins, í sam-
tali við DV. „Við vonum að þetta
verði þó ekki til þess að seinka heild-
arverkinu svo nokkru nemi. ”
Höröur sagði aö fimmta áfanga út-
varpshússins, sem lj úka átti í mars á
næsta ári, lyki ekki fyrr en næsta
haust og byggingartími þess áfanga
því lengdur úr sjö mánuðum í tólf.
„Það ætti að vera auðvelt að vinna
það upp sem tapast á þessum áfanga
ef getan leyfir. Þegar fimmta áfanga
er lokið er húsið tilbúið undir tréverk
og því innréttingar einar eftir,”
sagði Hörður. „Það ræðst af stöðunni
á næsta ári hvort heildarverkinu
seinkar en það þarf engan veginn að
verða svo þó að þessi áfangi drag-