Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Síða 22
22
DV. MANUDAGUR 27. AQUST1984.
(þróttir
(þróttir
(þróttir
(þróttir
Lewis fær kr. 3.100
fyrir hvem metra
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
• Eric Black.
Aberdeen
heldur sínu
striki
Aberdeen er enn meö fullt hús
stiga í Skotlandi. Eric Black skor-
aði bæöi mörk félagsins, sem vann
Dundee United 2—0 í Dundec.
Pat Bonnar, markvöröur Celtic,
sýndi snilldarmarkvörslu þegar
Celtic og Rangers gerðu jafntefli
0—0. Dumbarton vann Dundee 2—1
og Hearts vann 2—1 í Edinborgar-
slagnum gegn Hibs. Morton mátti
þola stórtap á heimavelli 0—4 fyrir
St. Mirren. -SOS
Besti tími
Mennea í
200 m hlaupi
Pietro Mennea frá ítalíu — gamli
hlaupagikkurinn, náði sínum besta
tíma í 200 m hlaupi í ár þegar hann
varð' sigurvegari á frjálsíþrótta-
móti í Riccione á Italíu í gær. Hann
hljóp á 20,34 sek. eöa á 0,33 . sek.
betri tíma heldur en Bandarikja-
maðurinn Dwyane Evans sem
Mennea vann sigur á á OL 1976 í
Montreal.
Alberto Cova hljóp 3000 m hlaup
á 7:58,15 mín. og vann sigur á
iranum Ray Flynn sem fékk
timann 7:58,84 mín.
-SOS
Heimsmet Coe var
nær falltó í Köln
— sem hann hleypur á hlaupabrautum víðs vegar um
Evrópu — Fékk 620 þús. fyrir að keppa í Köln f gær
Brasilíumaðurinn Joaquim Cruz var aðeins 0,4 sek. frá heimsmeti
Coeí800m hlaupi
Brasilíumaðurinn Joaquim Cruz,
sem varð OL-meistari í 800 m hlaupi,
var aðeins 0,4 sekúndur frá hcimsmeti
Sebastian Coe á miklu frjálsíþrótta-
móti í Köln í gær. Cruz hljóp á 1:41,77
mín. en heimsmet Coe er 1:41,73 sek.,
sett í Osló 1981. Þessi snjalli 21 árs
hlaupari var öruggur sigurvegari —
kom í mark vel á undan Sammy Koskei
frá Kenýa, sem hljóp á 1:42,28 mín.
Johnny Gray frá Bandarikjunum var
þriðjiá 1:43,28 mín.
58 þús. áhorfendur voru á mótinu í
Köln og skemmtu þeir sér konunglega
enda flestir af bestu frjálsíþrótta-
mönnum heims mættir þar.
• Olympíumeistarinn Ed Moses
varð öruggur sigui'vegari í 400 m
grindahlaupi — hljóp á 47,95 sek. Þetta
var hans 107. sigurhlaup í röð.
• Roger Kingdom frá Bandaríkjun-
um vann 110 m grindahlaupiö á 13,23
sek. og annar var landi hans, Anthony
Campbell, á 13,29 sek.
• Tékkinn Zdenske Adamec varð
sigurvegari í spjótkasti — kastaði88,32
• Joaquim Cruz.
Pétur og Arnór
til Barcelona
Frá Kristjáni Bemburg, frétta-
manni DVíBelgíu:
— Pétur Pétursson og Amór
Guðjohnsen em nú á leið tii
Barcelona á Spáni þar sem fé-
lög þeirra, Feyenoord og And-
erlecht, taka þátt í fjögurra |
liða móti. Anderlecht mætir 1. ■
FC Köln og Feyenoord leikur .
gegn Barcelona í fyrstu um- |
ferðinni. .
-KB/-SOS I
m — og Kanadamaöurinn Babits kast-
aði 86,90 m, Bandaríkjamaðurinn
Brian Crouser 84,30 m og Tafelmeier
frá V-Þýskalandi 80,34 m.
öruggt hjá Lewis
Carl Lewis vann öruggan sigur í 200
m hlaupi, hljóp á 20,21 sek., en annar
varð Desai Williams frá Kanada á
20,49 og síðan kom James Butler frá
Bandaríkjunum á 20,65 sek.
• Evelyn Ashford frá Bandaríkjun-
um, sem setti heimsmet í 100 m hlaupi í
Ziirich á dögunum, var ekki nálægt því
að bæta heimsmet Maritu Koch frá A-
Þýskalandi í 200 m hlaupi — 21,71 sek.
Ashford hljóp á 22,76 sek.
• Jarmila Kratochvilova frá
Tékkóslóvakíu vann sigur yfir OL-
meistaranum Valerie Brisco-Hooks í
400 m hlaupi — hljóp á 49,56 en Brisco-
Hooks kom í mark á 49,83 sek.
• Annar OL-meistari mátti þola tap.
Það var Benita Fitzgerald-Brown frá
Bandaríkjunum sem tapaði í 100 m
grindahlaupi fyrir pólsku stúlkunni
Kalek Lucyna, sem hljóp á 12,64 sek.,
en Benita á 13,02 sek.
• Kirk Baptiste frá Bandaríkjunum
varð sigurvegari í 100 m hlaupi á 10,18
sek. Annar varð Kanadamaðurinn Ben
Johnson á 10,21 og síöan kom heims-
methafinn Calvin Smith á 10,33 sek.
• Bandaríkjamaðurinn Steve Scott
varð sigurvegari í 1500 m hlaupi á
3:36,01 mín. Omar Khalifa frá Súdan
varö annar á 3:36,14 mín. og John
Walker frá Nýja-Sjálandi þriöji á
3:36,40min.
• V-Þjóðverjinn Dietmar Mögen-
burg varð sigurvegari í hástökki karla
— stökk2,30m. -SOS
Þetta er upphæðin sem þessi snjalli
íþróttamaður, sem vann fjögur gull á
OL í Los Angeles, tekur fyrir að keppa
eina kvöldstund víös vegar um
Evrópu. Það er Joe Douglas, fram-
kvæmdastjóri Lewis, sem ákveöur
hvar hann keppir og fyrir hvað mikið
af peningum.
Lewis er ekki eini íþróttamaðurinn,
sem tekur peninga fyrir að keppa. Það
gera einnig Edwin Moses, Mary
Decker, Evelyn Ashford, Sebastian
Coe og Brasilíumaöurinn Joachim
Cruz sem neitaði að taka við einbýlis-
húsi að gjöf eftir sigur sinn í 800 m
hlaupi í Los Angeles. Þá sagöist hann
ætla aö vinna sér sjálfur inn peninga
fyrir húsi — og hann er nú að gera það í
Evrópu, þar sem hann tekur þátt í
hverju stórmótinu á fætur öðru — aö
sjálfsögðu peninganna vegna. Það má
því segja að OL-gullin hafi nú breyst í
dollara.
• Carl Lewis — hleypur ekki lengur
fyrir sjálfan sig og bandaríska
fánann. Hann hleypur fyrir peninga.
Frjálsíþróttakappinn Carl Lewis
hleypur ekki lengur fyrir ánægjuna og
metnaðinn — hann hleypur nú fyrir
peningana. Lewis fékk 620.000 ísl.
krónur fyrir að hiaupa 200 m hlaup i
Köln í gær eða 3.100 fyrir hvern metra
sem hann hljóp. Þar fyrir utan fékk
hann borgaöar ferðir á keppnisstað og
uppihald.
\
• Brynjar Harðarson.
Brynjar
byrjaður
með Lugi
Frá Gunniaugi A. Jónssyni — frétta-
manni DV í Svíþjóð: — Íslendingurinn
Brynjar Harðarson, fyrrum hand-
knattleiksmaður úr Val, er einn af
fjórum nýjum leikmönnum Lugi, sem
æfa nú af krafti með félaginu. Lugi
mun leika nítján æfingaleiki við erlend
félagslið — áður en keppnistimabilið
hefst hér í Svíþjóð.
Lugi vann fyrsta leik sinn — gegn
ungverska 1. deildarliðinu Cohasz
Dunaivaros 33—21. Sænsk blöð sögðu
að nýliöarnir hefðu ekki fallið vel inn í
leik Lugi en ’ekki væri aö marka þaö
svona eftir fyrsta leik. Það var sænski
landsliösmaöurinn Sten Sjögren sem
skoraði flest mörk Lugi, eða 12. Sjö-
gren þessi lék með OL-liði Svía og var
talað um aö hann heföi verið, framan
af, sem farþegi og áhorfandi með
sænska liðinu. Hann skoraði síðan sjö
mörk gegn Islandi, en Sjögren hefur
alltaf skoraö mikið af mörkum gegn Is-
lendingum. -GJA/-SOS
Barcelona
græddi 70
milljónir
Frá Kristjáni Bernburg, fréttamanni
DVíBelgíu:
— Jose Luis Nunes, forseti Barce-
lona, tilkynnti í gær að félagiö hefði
grætt 70 millj. íslenskra króna á aö
selja Diego Maradona til Napolí á
Italíu.
Barcelona hefur sýnt mikinn hagn-
að í ár — en gróði félagsins er 682 millj.
peseta.
-KB/-SOS