Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Side 25
, DV. MANUDAGUR 27. AGUST 1984. 25 íþróttir (þróttir iþróttir íþróttir Tina Pors og Steen Tinning irá Danmörku hampa hér sigurverðlaunum sínum fyrir fyrsta sætið í einstaklingskeppninni. Tina hafði nokkuð mikla yfirburði í kvennaflokknum og engin kynsystir hennar náði að ógna sigri hennar veru- lega. Steen Tinning þurfti aftur á móti að hafa meira fyrir sínum sigri. Svíinn Joakim Sabel var aldrei langt undan og það var ekki fyrr en á síðustu holun- um að hann náði að tryggja sér sigur með öruggri og glæsilegri spilamennsku. Var það álit fróðra manna í Grafarholti að Tinning, sem er sonur dansks at- vinnugolfkennara, Svend Tinning, hefði verið sá besti á mótinu. DV-mynd: S. Vallarmet Norska stúlkan Anna Dönnestad setti nýtt vailarmet á Grafarholts- velli í laugardaginn. Hún lék þá fyrri 18 holurnar á 75 höggum sem er mjög góður árangur. Dönnestad hafnaði að lokum í öðru sæti í ein- staklingskeppni kvenna. Hylltir Það var samdóma álit allra keppenda og annarrra að Norður- landamótið i golfi hefði tekist með afbrigðum vel. í stuttum ávörpum sem forráðamenn landsliðanna fluttu eftir verðlaunaafhendinguna á laugardagskvöldið kom fram að allir voru í hæsta máta ánægðir með völlinn og alla framkvæmd mótsins. Þeir Gunnar Torfason mótsstjóri, Karl Jóhahusson, for- maður Golfklúbbs Reykjavíkur, og Konráð Bjarnason, forseti GSÍ, voru hylltir með lófataki í langan tima. -SK. Gleypti flugu Veðrið í Grafarholti var mjög gott á meðan Norðurlandamótið fór þar fram ef undan eru skildir sið- ustu klukkutimar mótsins. Hlýju og hægu veðri fylgir oft mikill fjöldi litilla kvikinda sem nefnast fiugur. Óskar Sæmunds- son, einn islensku keppendanna, varð fyrir barðinu á einni slíkri. Óskar var að undirbúa sig undir að slá vandasamt högg síðari daginn þegar eln flugan gerði sér lítið fyrir og flaug upp í munn Óskars. Þetta átti sér stað rétt í þann mund er Óskar var að slá kúluna og kom sér því illa. „Þetta var frekar óþægi- legt. Ég kokgleypti fluguna og var nokkurn tíma að ná mér eftir þetta,” sagði Óskar. -SK. STÓRÚTSALA í SPÖRTU LAUGAVEGI49 l\00/ ■ssæ HtSÖV.^ vöronv TRIMMGALLAR OG FL. ALLIR TRIMMGALLAR Á 590 KR. ULPUR SKÍÐAGALLAR HÚFUR VISA EUROCARD LUFFUR HANSKAR EYRNASKJÓL O.FL. O.FL. Póstsendum. SPORTVÖRUVERSLUNIN___ é bÚLliVíÍ Laugavegur 49, simi 23610. Ingólfsstrœti 8, simi 12024 OPIÐ LAUGARDAG IINGÓLFSSTRÆTI.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.