Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Blaðsíða 34
38 DV. MANUDAGUR 27. AGUST1984. SAMVINNU TRYGGINGAR ÁRMÚLA3 SÍMI81411 Einkaritara: Öskum eftir aö ráða í starf einkaritara, tímabundiö, nú þegar. Starfið krefst góörar menntunar og enskukunnáttu, ásamt færni í skrifstofustörfum og hæfni til að vinna sjálfstætt. Starf í f jármáladeild: Viljum ráða starfsmann í fjármáladeild til þess að annast innheimtu á bifreiðaiðgjöldum. Leitum að starfsmanni með góða grunnmenntun og hæfni í mannlegum samskiptum. Umsóknareyðublöð og upplýsingar hjá starfsmannahaldi Ármúla 3, sími 81411. Samvinnutryggingar g.t. Innritun í starfsnám Á haustmisseri verða haldin eftirtalin námskeiö fyrir starfandi fólk í atvinnulífinu og aðra þá sem vilja bæta þekkingu sína. Bókfærsla Ensk verslunarbréf Rekstrarhagfræði Stjórnun Tölvufræði Tölvuritvinnsla Vélritun Innritun er hafin. Ekki komast fleiri að en 25 á hverju nám- skeiði. Kennsla hefst mánudaginn 25. september. Kennslan fer fram á kvöldin nema tölvuritvinnslan sem verður á mánudags- og fimmtudagsmorgnum frá kl. 8.05— 9.30. Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans. Verzlunarskóli íslands, Grundarstíg 24,k Reykjavík, simi 13550. Tílkynníng tíl innflytjenda Fjármálaráðuneytið hefur með reglum nr. 367/1984 heimilað að taka megi upp einfaldari tollmeöferö á innfluttum vörum. Samkv. 2. gr. reglnanna skal innflytjandi sem óskar eftir einfaldari tollmeðferð uppfylla eftirtalin skilyrði: a) Innflytjandi stundi atvinnurekstur og hafi til þess tilskilin leyfi, svo sem verslunarleyfi, sbr. lög nr. 41/1968, eða iðnaðarleyfi, sbr. lög nr. 42/1978. b) Innflytjandi hafi tilkynnt Hagstofu íslands um atvinnu- starfsemi sína enda sé hann ekki sérstaklega undanþeg- inn söluskattskyldu, sbr. lög nr. 10/1960. d) Innflytjandi hafi flutt inn vörur á næstliðnu 12 mánaða tímabili fyrir 16 mkr. að tollverði eða tollafgreiðslur verið minnst 200 aö tölu á sama tíma. Viðmiðunartölur þessar skulu lækka um helming frá og með 1. janúar 1985. e) Innflytjandi hafi að mati tollstjóra sýnt fram á við gerð og frágang aðflutningsskjala að hann hafi til að bera full- nægjandi þekkingu á þeim lögum og reglum sem gilda um tollmeöferð innfluttra vara. Innflytjandi sem uppfyllir framangreind skilyröi skal sækja skriflega á þar til gerðu eyðublaði um einfaldari tollmeðferð til tollstjóra þar sem lögheimili hans er samkvæmt fyrirtækja- skrá. I umsókn skal tilgreina eftirtalin atriöi: a) Nafn, aðsetur og starfsnúmer. Starfsnúmer innflytjanda skal vera nafnnúmer hans eða auðkennisnúmer í fyrir- tækjaskrá, sbr. b-lið 2. gr. b) Númer söluskattsskírteinis og vörusviö þess. c) Innflutningsverðmæti á síðastliönum 12 mánuöum og fjölda tollafgreiðslna á sama tíma. d) Hverjir hafi umboð til þess að undirrita aðflutnings- skýrslur fyrir hönd innflytjanda, riti hann ekki sjálfur undir þær, svo og rithandarsýnishorn. e) Aðrar þær upplýsingar sem eyðublaöið gefur tilefni til. Eyðublaðið ásamt sérprentun af reglunum fæst í fjármála- ráöuneytinu og hjá embættinu. Um frekari framkvæmd hinnar einfaldari tollmeöferðar, sem komiö getur til fram- kvæmda 1. október nk., vísast til reglna nr. 367/1984. Er innflytjendum bent á að kynna sér reglur þessar og senda umsóknir til embættisins. 22. ágúst 1984. Tollstjórinn í Reykjavík. Fræsari aðalverktaka á götum borgarinnar — leigður samkvæmt undanþágu í tvær vikur Um þessar mundir er veriö aö vinna með malbikunarfræsara á götum Reykjavíkurborgar. Fræsari þessi er í eigu Islenskra aðalverk- taka en samkvæmt lögum er gert ráð fyrir því aö vinnutæki þeirra séu ein- ungis notuö innan Vallar, m.a. vegna þess aö ekki eru greiddir tollar af þeim. „Þaö kemur fyrir í einstaka tilfell- um aö tæki frá Islenskum aöalverk- tökum eru lánuð til opinberra aöila. Utanríkisráðuneytið getur gefiö heimild fyrir slíku,” sagöi Sverrir Haukur Gunnlaugsson, deildarstjóri í utanríkismáladeild. Hann sagöi aö þetta væri einungis gert í aðkallandi verkefnum og aöeins í stuttan tíma. Fjármálaráðuneytiö gaf einnig heimild fy rir þessari ráöstöf un. Rögnvaldur Jónsson, yfirverk- fræöingur hjá Vegageröinni, sagöi að fræsarinn væri leigöur af Vega- geröinni í samvinnu viö Reykjavík- urborg. Þessa vikuna verður hann að störfum fyrir Reykjavíkurborg og næstu viku fyrir Vegageröina. Ráðgert er aö hann veröi einungis í leiguítværvikur. Grindvíkingar: Þurfa að skipta um ofna vegna tæringar Malbikunarfræsari í eigu íslenskra aðalverktaka er nú að störfum í Reykjavíkurborg. DV-mynd S Ekkert slíkt tæki er í eigu opin- tals að kaupa fræsara en einn slíkur berra aðila hér. Þaö hefur komið til kostartæparl2milljónir. - leki í aðalhitaveitulögn til Grindavíkur vegna tæringar utan frá Dúfnaræktarfélag Islands efndi nýlega til bréfdúfnakeppni fyrir un'gfugla og var lagt upp frá Borgarnesi. Sigurvegari var þessi spengilegi ungi á myndinni hér fyrir ofan en eigandi hans er Guðbjartur Daníelsson frá Innri- Njarðvík. Nokkuð hefur boriö á því aö undan- fömu í Grindavik aö skipta'hefur þurft um ofna á heimahúsum vegna tæring- ar. Hafa sumir hallast aö þeirri skýr- ingu aö of mikið súrefni sé í heita vatn- inu frá Svartsengi, en súrefni sem gengur í samband við stál í hitaveitu- lögnum getur valdiö tæringu. Ingólfur Aöalsteinsson, framkvæmdastjóri Hitaveitu Suðumesja, sagöi í samtali viö DV aö þessar ástæður sem hafa verið tilfæröar séu ekki komnar frá Hitaveitu Suöurnesja og séu alrangar. Ingólfur sagöi aö leki heföi komiö fram í aðalhitaveitulögn frá Svarts- engi til Grindavíkur vegna tæringar utan frá og nú væri unnið aö viögeröum á þeirri lögn. Ekki heföu komiö fram bilanir í öðrum hitaveitulögnum til Grindavíkur. Hann sagöi að ekki væri um þaö aö ræöa að súrefni væri í heita vatninu frá Svartsengi, þaö væri fylgst vel meö að svo væri ekki og í því skyni m.a. bland- að súlfíö í vatnið eins og gert væri hjá Hitaveitu Reykjavíkur. Þetta væri beinlínis gert í því skyni aö varna því að súrefni kæmist í afveitur og til neyt- enda. þjh Styrkið og fegrið fíkamann Byrjum eftir sumarfrí hressar og kátar, 3. september. Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt megrandi æfingum. Sértímar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eöa meira. Sértímar fyrir eldri dömur og þær sem eru slæmar í baki eða þjást af vöövabólgum. Vigtun — mæling — sturtur — gufu- böð — kaffi — og hinir vinsælu sólarium-lampar. Leikfimi fyrir konur á öllum aldri. Júdódeild Ármanns Á 'l 90 Innritun og upplýsingar alla virka daga Armuia jz. kli 13_22 \ Síma 83295.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.