Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1984, Side 49
DV. MANUDAGUR 27. AGUST1984.
53
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
VINIR122 AR
Þaö eru víst ekki margir sem eiga
krókódíl aö gæludýri. Hann Michael
Dugan getur þó stært sig af því. Micha-
el, sem nú er 34 ára, varaðeins ellefu
ára þegar hann eignaðist Ali en svo er
krókódíllinn nefndur. Þá var Ali pínu-
lítill og sætur. „Þegar maöur er ellefu
ára,” segir Michael, „þá hugsar inað-
ur ekkert út í það hvort dýrið eigi eftir
að stækka.
Er dýriö óx þótti mér oröiö svo vænt
um það að ég bara gat ekki látiö það
frá mér. Svo var einnig um foreldra
mína,” segir hann. Ali hefur verið með
fjölskyldunni í 22 ár og aldrei hefur
hann gert nokkrum manni mein. „Það
er ótrúlegt hversu sterkt samband er á
milli Ali og Michael,” segir forstöðu-
maður dýragarðsins í nágrenninu.
„Ali finnst alveg frábært að koma
með mér í sturtu,” segir Michael.
„Einnig hefur hann mjög gaman af aö
fara út í gönguferð. Þaö er bara vanda-
mál hversu langur hann er.
Ali fær aö vera í bakgaröinum hjá
Michael því að þar er allt vel girt.
Honum er alveg sama þótt bílar keyri
fram hjá. En ef hann heyrir í mótor-
hjóli ætlar hann vitlaus að veröa úr
hræðslu og heimtar að koma inn.
Ali boröar heil ósköp af fiski. A milli
koma svo mánuðir sem hann borðar
ekki neitt. „Við höfum haft alls kyns
gæludýr,” segir Michael. „Hunda,
ketti, kanínur, hamstra, svín og jafn-
vel apa en Ali er minnsta vanda-
málið.”
Góðir vinir. Ali kemur gjarnan og
leggst hjá eiganda sinum er hann
horfir á sjónvarpið.
Gönguferðirnar geta verið svolitið
hægfara.
Michael og Ali fara gjarnan saman i
sturtu.
MARGIR STAÐIR FYRIR
APANN
Það er víst betra að taka tillit til
gæludýrsins þegar haldið er af stað í
ökuferð. Af hvaða tegund ökutækið er
skiptir ekki öllu máli. Best er þó aö í
því sé góð stöng ef heimilisdýrið er api
eins og í þessu tilfelli. Nú getur litii aj>-
inn fært sig um set á hjólinu, setið {
hvort sem hann vill hjá húsbónda
sínum eða klifraö upp tréstöngina sem
svo haganlega hefur veriö komið fyrir.
Hönd í hönd.
Lisa ásamt kærastanum.
EKKJA PRESLEY BANNAR
DÓTTURINNIAÐ GIFTAST
Það er víst heldur grunnt á því
góða með þeim mæðgum Lisu og
Priscillu Presley og hefur Lisa tekið
upp á því aö fara ekki heim í helgar-
fríum úr skólanum heldur sitja sem
fastast á heimavistinni. Ástæöan er sú
að Lisa vill giftast vini sínum sem er
fjórum árum eldri en hún en því er
mamma hennar mótfallin. Lisa, sem
er 16 ára gömul, hefur bent mömmu
sinni á þaö að sjálf hafi hún trúlofast
Elvis Presley þegar hún var einungis
15 ára svo eiginlega geti hún ekki sagt
neitt viö giftingarhugleiðingunum.
AGNETA
ÓTTAST
HRYÐJU-
VERKAMENN
Fjórðungurinn af ABBA
flokknum, Agneta Faltskog, mun á
næstunni gefa út nýja sólóplötu sem
kallast Eg ætla aö kaupa mér bónda-
bæ. Þessi nafngift er ekki aö ástæðu-
lausu því að Agneta hefur fest kaup á
bóndabæ skammt utan við Stokk-
hólm sem kostar nokkrar milljónir.
Umhverfis bóndabæinn verður
rammgerð girðing því henni er þaö
enn í fersku minni þegar vestur-
þýskir hryðjuverkamenn hótuðu því
aö ræna börnunum hennar tveimur.