Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1984, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1984, Blaðsíða 2
2 DV. MÁNUDAGUR 29. OKTOBER1984. Viðbrögð ráðherra ekki tilefni til bjartsýni - f Hluti samninganefnda BSRB og f jármálaráðuneytisins á sáttafundi aðfaranótt sunnudags. DV-mynd GTK. — sagði Krist ján Thorlacius að loknum sólarhr jngslöngum samningaf undi Þegar ríkissáttasemjari frestaði fundi í deilu BSRB og ríkisins um há- degisbilið í gær bar enn mikið á milli deiluaðila. „Þaö er ekki hægt að segja hvað ber mikið á milli, en tilboð fjármála- ráðherra er óaðgengilegt og þar vantar mikiö uppá,” sagði Kristján Thorlacius, formaöur BSRB, að fundinum loknum. Fjármálaráöherra hafði gert BSRB tilboö í gærmorgun sem metið er sem 14,4% meöalhækkun launa á samningstímanum. BSRB telur hins vegar enn vanta í tilboöið launa- hækkun til BSRB sem skuli vega upp á móti lauriaskriði á almennum vinnumarkaöi. Ekki liggur þó Ijóst fyrir hve mikil sú hækkun ætti aö vera. I annan staö krefst BSRB kaupmáttartryggingar. Á laugar- daginn lagöi BSRB fram tillögu um aö gerö yröi spá um verölag 1. jan- úar 1985,1. júní og 1. september. Síð- an verði Hagstofunni fengiö það verkefni aö meta framgang spárinn- ar og standist hún ekki skuli hækka öll starfsheiti um einn launaflokk í hvert skipti og síöan samsvarandi ef meiri hækkanir gefa tilefni til. Samninganefnd ríkisins hefur ekki viljað ræöa þessar hugmyndir. Meginatriöin í tilboöi f jármálaráö- herra í gærmorgun eru, að gerður veröi nýr launastigi meö 3,5% hækkun milli flokka frá þriöja þrepi 5. launaflokks. Síöan komi 9% hækkun launa frá 1. nóvember aö meötaldri þessari breytingu launa- stigans. Launauppbót fyrir septem- ber veröi 1500 krónur miðað viö fullt starf í þeim mánuði. öll laun hækki síöan um einn launaflokk 1. desem- ber og 1. júní 1985. Sérstök persónu- uppbót að upphæð 4000 krónur greið- ist í nóvember þeim starfsmönnum sem hafa gegnt fullu starfi í aö minnsta kosti tvo mánuði. Ymsar breytingar eru gerðar á viðmiðunum vaktaálags, sett er í tilboðið aö endurskoöun launakerfis skuli lokiö 1. júní 1985 og miðað er viö aö samningurinn gildi til ársloka 1985. I síöustu kröfugerö BSRB, áöur en fundi lauk um hádegisbil í gær, er hins vegar gert ráð fyrir aö hækkun launa frá undirskrift samnings veröi 12% og sérstök persónuuppbót fyrir septembermánuö veröi 3500 krónur. Launaflokkahækkanir komi mánuöi fyrr en tilboö fjármálaráöherra gerir ráð fyrir, eöa 1. nóvember og 1. maí. Þann 1. nóvember komi sérstök persónuuppbót er nemi 5000 krónum. Þá miðar BSRB við aö endurskoðun launakerfisins verði lokiö 1. apríl 1985. Einnig gerir BSRB kröfu um aö gefin veröi út yfirlýsing um aö vextir af íbúöarlánum veröi lækkaðir og skammtímalánum breytt í lán tU lengritíma. A fundi ríkisstjórnarinnar á laug- ardag var f jármálaráöherra falið aö ganga til samninga viö BSRB á grundvelli skattalækkunarleiöar eða annarra leiöa og lögö áhersla á aö samningar tækjust innan tveggja sólarhringa. Þetta virðist þó ekki hafa sett viðræðumar á verulegan skriö. „Þaö er óskiljanlegt meö öllu þeg- ar ráðherrar lýsa því yfir dag eftir dag aö kominn sé mikill skriður á viðræöumar en svo gerist ekkert af þeirra hálfu,” sagði Kristján Thorla- cius eftir fundinn 1 gær. „Við komum til fundar á laugardag með ákveðinn vilja til aö leysa þessa deilu og töld- um okkur hafa ástæöu til bjartsýni eftir yfirlýsingar ráðherra í f jölmiöl- um. Viö urðum því fyrir sárum von- brigðum aö ekki skyldi koma meira út úr tilboði fjármálaráðherra en raun bar vitni. Tilboöið sem hann lagði fram er nánast þaö sama og fólst í tilboði hans frá 18. októben Þessi viöbrögö gefa ekki tilefni til bjartsýni,” sagði Kristján. ÖEF Klósettpappírinn á þrotum? Kaupmenn vel birgir Er klósettpappírinn að verða búinn? Þetta er spurning sem hefur bmnniö á vörum margra eftir að þaö spuröist út að líkur væm á að þessi nauðsynjavara yrði fljótt uppseld í yfirstandandi verk- falli og sambandsleysi við umheiminn. Samkvæmt könnun eru flestir inn- flytjendur nú búnir meö birgðir sínar. Hjá einum þeirra fengust þær upp- lýsingar að pappírinn heföi klárast á fyrstu dögum verkfalls, nóg væri þó til af honum í verslunum. Því eftir aö það spuröist út aö hætta væri á pappírs- leysi af þessu tagi greip um sig eilítiö kaupæði hjá mörgum kaupmönnum sem keyptu hreinlega upp birgöimar. Einnig mun þetta æöi hafa náð til hins almenna neytanda og fara fregnir af því aö sumir þeirra hafi sést laumast út úr verslunum meö óeðlilega mikið af þessari vöru í fómm sínum. Hér á landi er einn aöili sem fram- leiðir klósettpappír. Þar var ekki gott hljóö í mönnum og búist var við aö hrá- efnið yrði búið nú um helgina. Lítill lager er eftir og verður hann að öllum líkindum horfinn um mánaðamót ef ekki verður breyting á ríkjandi ástandi. Niðurstaðan er því sú aö fram- leiðendur og innflytjendur em búnir með þessa vöru, kaupmenn flestir eiga nóg af henni og einstaka neytandi er vel birgur ef svo færi að verkfallið drægist enn meira á langinn. -APH. Keflavíkurflugvöllur Hætta að fylla á sígarettu- sjálfsala Mikil sala hefur verið á sígarettum í sjálfsölum Vamarliösins á Keflavíkur- flugvelli að undanförnu. Þar kostar pakkinn aðeins 35 kr. og hafa starfs- menn vallarins ekki haft viö að fylla á sjálfsalana sem eru tæmdir jafnóöum af reykingamönnum, aöframkomnum vegna sígarettuskorts í Reykjavík og nágrenni. Að sögn Friðþórs Eydal hjá Vamar- liðinu hefur yfirmaður flotastöðvar- innar nú mælt svo fyrir að ekki verði fyllt á sjálfsalana fyrr en að loknu verkfalli. Er hér verið að koma í veg fyrir aö sígarettur af Vellinum fari ólöglega á íslenskan markað en fyrir slíka vöru mun fást gott verð um þessarmundir._________-EH. Matarolía innkölluð „Eg var að kaupa tóbak og þetta vom síðustu pakkamir sem voru til þarna svo ég var alsæll og athugaði ekki peninginn sem ég fékk til baka neitt nánar,” sagði ungur maður sem á dögunum fékk falsaðan pening til baka á knattborðsstofu í Reyk javík. Ekki var þarna um merkilega fölsun að ræða. Peningurinn var ljósritaður og siðan málaður í réttum litum. Eftir þaðhefurhann verið látinn líta út eins og hann hefði lent í þvottavél og síöan setturíumferð. „Þetta var nú ekki nema tíu krónu seðill svo ég fór ekki að skoða hann neitt nánar fyrr en ég kom heim,” sagði maðurinn. ..Sjálfsagt hefði maður skoðað hann betur ef þetta hefði verið stærri peningur og hver veit nema eitthvaö af þeim sé í umferö hér líka,” sagði hann. Hann sagðist hafa fariö með peninginn niður á lögreglustöð en þar hefði sér verið bent á að fara með hann til rannsóknarlögreglunnar í Kópa- vogi. „En ég nennti ekki að standa í öllu því umstangi fyrir einn tíkall og ætla að eiga hann sjálfur til minningar,” sagðihann. -klp. Heilbrigðisyfirvöld hafa í samvinnu við Efnagerðina Flóru ákveöið að inn- kalla eina tegund af matarolíu sem efnagerðin selur. Ástæðan fyrir þessari ákvörðun er að komiö hefur í ljós aö matarolían er gölluð vegna mengunar af ákveðnu efnasambandi sem talið er að geti valdið veikindum í meltingarfærum. „Þaö er engin hætta talin á að mat- arolían geti valdið alvarlegum eitrun- um. Við vitum um tilfelli þar sem hugs- anlegt er talið aö matarolían hafi orðiö þess valdandi að viðkomandi fékk niðurgang og uppköst,” sagði Jón Gíslason, matvælafræðingur hjá Holl- ustuvemd. Jón sagði að það magn sem um væri aö ræöa væri aðeins ein tunna af oh'u sem pakkað var þann 12. september. Vegna þess að nokkuð er frá liðið má búast við því að þessi olía sé að einhverju leyti komin inn á heim- ih. Þeir sem hafa undir höndum matarolíu frá Flóru, nánar tiltekið 465 og 780 millilítra umbúðir af Flóru soya- baunaolíu eru beðnir að hafa samband við viðkomandi heilbrigðiseftirht. WT Fjölritaði tíu króna peningurinn sem fannst er þessi sem er nær. 1 honum er annar pappir en hann er látinn vera snjáður svo það má blekkja fólk með þessu. DV-mynd GVA. FJÖLRITAÐIR TÍKALLAR KOMNIR í UMFERÐ HÉR Þulinum líkaði ekki tónlistin Á fundi útvarpsráðs í síðasta mánuði kom fram að Pétri Péturs- syni þuli heföi veriö sent bréf frá Guðmundi Jónssyni, framkvæmda- stjóra Ríkisútvafpsins, þar sem hann var víttur harðlega vegna af- skipta sinna af morgunleikfimiþætti Jóninu Benediktsdóttur. Málsatvik voru þau að Pétur Pétursson þulur hóf upp á sitt eindæmi aö spila lúðrasveitartónhst á meðan á morgunleikfiminni stóö. Pétur vildi með þessu mótmæla tónlistarvaU í þættinum. Atvikið var skýrt fyrir hlustendum sem tæknilegir erfiðleikar. Aö sögn Magnúsar Erlendssonar, sem sat umræddan fund útvarpsráðs, varð tveimur útvarpsráðsmönnum það aö orði aö það ætti tafarlaust aö reka svona menn. „Pétur er ágætis maður en hann getur ekki gert hvað sem honum sýnist,” sagði Jónína Benedikts- dóttir, þegar DV spuröi hana um þetta mál. „Eg hef fengið að heyra jákvæða hluti frá fólki varöandi þættina mína og enginn kvartað yfh- tónUstinni. Þaö getur vel verið að fólki sem ekki — lék lúðrasveitartónlist ofan í morgunleikfimi í mótmælaskyni gerir æfingarnar líki ekki tónUstin en það er aUt annað mál.” Jónína sagði aö eftir að umrætt atvik átti sér staö hefði hún leitaö skýringa á framferði Péturs hjá Markúsi Emi Antonssyni, formanni útvarpsráðs, og hefði útvarpsráö beðist afsökunar fyrir hönd út- varpsins. DV haföi samband við Pétur Pétursson þul, en hann sagðist ekki vilja tjá sig um máliö. Hann sagöist hins vegar ætla að skýra máUð skrif- lega, þegar vel á stæði, eins og hann orðaði það. -eh.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.