Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1984, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1984, Blaðsíða 30
30 DV. MÁNUDAGUR 29. OKTOBER1984. Tíðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn í réttum: Kyrrö hins spegiltaera haustmorguns er rofin af háreystinni þegar fyrsti fjárhópurinn er rekinn inn í al- menninginn. Bændur og börn hóa, slá sér á lær og bölva jafnvel hraustlega, og heröa á hópnum. Blessaöar skepnumar taka ólmar til fótanna og leita undan mannfólkinu og renna inn í aimenninginn sem fyrir margar þeirra er aöeins áfangi á leið í sláturhúsiö. Fremstur í flokki hleypur spikaður vaninhymdur sauöur, meö silfraða bjöllu í hægra horni, sem klingir skært við hvert fótmál. Sjáðu nú, þrístýft aftan hmgra. í ‘ >’ v ; m Hvað hefég gert ykkur?' A/lar þessar kótelettur „Jesús minn almáttugur, hver á að boröa allar þessar kótelettur?” segir syfjaður borgarbúi sem vaknað hafði eldsnemma morguns til þess að kom- ast í Skeiðaréttir í tæka tíð. Það er ansi kalt svo snemma morg- uns og allir þeir sem vettlingi geta valdið og mörk þekkja taka til við að elta fé, festa á því hendur og draga það í dilka. Eins og ævinlega i réttum, gengur mikið á og ósjaldan heyrast formælingar og jafnvel stundum tvinn- að og þrinnað í hita leiksins og taka menn þá ekki tillit til þess að börn eru nálæg. Bömin hafa hins vegar bjamaryl og taka þátt í drættinum skemmtunarinn- ar vegna en ekki vegna kulda eða vegna þess að verkið er þarft. Fróðir menn segja að ekki sé svo ýkja stórt safn sem nú kemur í Skeiöa- réttir og varla nema þriöjungur af því sem mest var þegar sauðf járbúskapur stóð með mestum blóma. En í augum borgarbama er safnið mikið. Og borgarbörn koma til þess að sjá réttir og kynnast samkomu sem mark- að hefur tímamót í ársverki bænda frá því land byggðist. „Það em fleiri börn hér en lömbin,” segir einn bændanna og lítur upp á réttarveggina sem eru þéttskipaðir áhorfendum. Áhorfendur koma aö á einkabílum og rútum, frá Selfossi, Eyrarbakka og öðrum þétt- býlisstöðum á Suöurlandsundirlend- inu, og líka frá Reykjavík. Ródeókappi Sum barnanna híma hrædd uppi á vegg og horfa niður á iðandi þröngina. önnur, óhrædd, stökkva niður í al- menninginn og reyna að fanga lömb. Einn röskur ungur piltur sest á bak mórauðu lambi, gildvöxnu, og slær í svo reiðskjótinn kippist við og tekur á rás. En það er sama hvemig lambiö lætur, knapinn situr sem fastast, og er þar greinilega ný ródeó-stjama á ferð- inni. Ungur drengur úr Reykjavík þóttist vel vita hvers vegna réttir væru haldn- ar. „Það á að skjóta þær,” sagði sá stutti og virtist ekki þykja þaö neitt til- tökumál. En hann varð vonsvikinn þegar honum var sagt að þær yrðu ekki B/assaðar skepnurnar renna inn i aimenninginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.