Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1984, Blaðsíða 18
18
DV. MÁNUDAGUR 29. OKTOBER1984.
Klaifarvatn þykir sæmilegt veiðlvatn og þar hafa veiðimenn verið
að fá væna silunga i sumar, 17 punda þá stærstu. Á myndinni
situr Ingvar Bonder á steini og lætur sig dreyma um þann stóra.
Leirvogsáin kom vel út i sumar og veiddust 320 laxar i henni. Á myndinni
heldur Ótafur Karlsson á fyrsta laxinum sem veiddist i ánni í sumar, 3,5
punda lax.
Ekki fara sögur afþví hvað þeir eru búnir að voiða lengi saman þessir veiði-
fólagar, en það eru Lerfur Benediktsson og hundurinn á Krókii Reykjadal.
Skyldu þeir hafa verið sammála hvaða beita skyldi notuð?
Veiöitimanum er fyrir nokkru lokið í
lax.veiðinni og laxinn farinn að undir-
búa hrygninguna. En sumar ár hafa
víst ekki marga laxa til að framkvæma
þá athöfn sem hrygningin er. Það eru
víst ótrúlega fáir laxar í Norðurá,
Þverá, Hítará, Langá, Miðfjarðará,
Víðidalsá, Vatnsdalsá, Blöndu, Breið-
dalsá, Sandá, Hofsá, Selá og Vestur-
dalsá svo dæmi séu tekin. Nei, þetta
lítur ekki glæsilega út sums staðar.
Einkennilegu sumri er lokið í lax-
veiðinni og margir veiðimenn súrir á
svipinn, verra gat þetta ekki veriö
sums staðar. Veiðimenn ætla að sjá til
margir hver jir og fylgjast meö hækkun
leyfa næsta sumar. Verðlækkun væri
nær lagi en verðhækkun í ám þar sem
menn fengu ekki kipp dögum saman.
Hvað finnst þér, lesandi góður? Við
bíðum og sjáum hvað setur, þetta kem-
ur í ljós innan tíðar, vertu viss. Við
erum búnir að setja stangimar upp á
hillu og myndavélina oní skúffu. Við
kveðjum í lokin með nokkrum mynd-
um frá „einkennilegasta” veiðisumr-
inu í lengri tíma og þökkum lesendum
fréttir og annan fróðleik. Það kemur
víst dagur eftir þennan dag og veiði-
menn halda áfram að renna og finna
kippi. Blesssssssssssssss. G. Bender.
„Heyrðu, varstu bumn að heyra um þennan stóra, sem þeir sáu hórna
um daginn, ofsalegur lax?" Ein veiðisaga er sögð á meðan sá stóri
lætur biða eftirsár. Myndin tekin við ölfusá.
Hver veit nema fíeiri fiskar sáu i hylnum og þeir taki fluguna, Pröstur
Elliðason reynir að fá fisk íKálfá nýlega.
Beðið eftir að sá stóri bíti á og gáð
hvort fiskurinn sá nokkuð að taka.
Veiðimaðurinn rennir fyrir marhnút
á ódýrasta veiðileyfi sem hægt er
að fá og svo er ekkert stress.
Veiðilok:
Einkennilegu
veiðisumri
lokið
margir fóru heim með öngulinn í rassinum