Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1984, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1984, Blaðsíða 11
DV. MÁNUDAGUR 29. OKTOBER1984. 11 Lögreglan telur sig hafa leyfi f rá Akureyrarbæ „Eg veit ekki um þaö bann,” sagöi Erlingur Pálmason, yfirlögregluþjónn á Akureyri, þegar hann var inntur eftir skotæfingum lögreglunnar á landi sem hreppsnefnd Glæsibæjarhrepps bannaöi skotæfingar á fyrir nokkrum árum. „Við höföum á hverju ári verið þarna þegar við höfum þurft að stilla byssurnar okkar á lögreglustööinni. A sínum tíma fengum viö leyfi frá Akureyrarbæ að vera þama við þessa iðju ásamt skotfélaginu. A lögreglu- stöðinni eru rifflar og ég fór með menn til að koma þeim inná að skjóta úr þessum tækjum.” Erlingur sagði aö landið tilheyrði Blómsturvöllum sem væri í eigu Akur- eyrarbæjar. Á þeim forsendum hefði lögreglan fengið þetta leyfi. Frá bæn- um hefði engin afturköllun komið. Hann var spurður hvort lögregian hefði vísað mönnum á svæðið til að prófa byssur. „Það get ég ekki tekið fyrir,” sagöi hann. ,,Ég hef engum vís- að þangað til að æfa en vel má vera að einhver úr lögreglunni hafi gert það þegar menn hafa spurst fyrir um hvar þeir mættu stilla byssur sínar.” Yfirlögregluþjónninn sagði aö ekkert heföi verið amast við þessu fyrr en i vor. Hann hefði fallist á aö ekki væri heppilegt að skjóta á varptíma. Nú væru engir fuglar að verpa en að vísu kindur á ferð. Lögreglan teldi sig hins vegar kunna svo faglega með vopn að fara að hætta stafaði ekki af. -JBH/Akureyri. RARIK-manninum sleppt úr gæslu: Rannsóknin nær yf ir allt árið Starfsmanni Rafmagnsveitna ríkis- ins, sem setið hefur í gæsluvarðhaldi frá 17. október sl.,hefur veriö sleppt úr gæslu. Rannsóknarlögregla ríkisins vinnur að rannsókn á meintu auögun- arbroti þessa starfsmanns í starfi en hann er grunaður um að hafa keypt vörur til R ARIK frá fyrirtæki í Reykja- vík gegn því að reikningar þeir, sem RARIK væru sendir fyrir vörumar, næmu mun hærri upphæð en greitt var fyrir þær. Hann hafi svo stungið mis- muninum í eigin vasa. Að sögn Erlu Jónsdóttur, deildar- stjóra hjá RLR, sem vinnur að rann- sókn þessa máls, nær rannsókn yfir allt þetta ár. Talið er að fjárhæðir þær, sem starfsmaðurinn náði að svikja út meö þessum hætti, nemi hundruðum þús- unda króna en samkvæmt heimildum DV var um að ræða að verð vara þeirra, sem hann keypti, hefði verið skráð allt að 100% hærra en sambæri- legar vömr kostuöu h já öðrum. -FRI Um 30.000 hafa séð Dalalíf Mikil aðsókn hefur verið að íslensku kvikmyndinni Dalalíf. Um 30.000 manns hafa nú séð myndina en hún var frumsýnd um síðustu mánaöamót. Jón Hermannsson, framleiðandi Dalalífs, sagði í viðtali við DV að nú væri um það bil komið inn fyrir kostnaði við gerð myndarinnar. Viðtökur hennar hefðu því farið fram úr öllum vonum. Aðspurður um hvort til stæði að sýna Dalalíf erlendis kvaðst Jón ekki búast við að svo yrði. „Ef íslensku myndimar standa ekki undir sér hér heima eru þær ekki þess virði að gera þær,”sagðihann. Jón sagði að enn hefði ekki verið á- kveðið hvort gerðar yrðu fleiri myndir í Dalalífsstilnum. Sér þætti þó ekki ólíklegt að lagt yrði út í að gera eina slíka til viöbótar. -JSS. Tölvur og reikni- líkön í landbúnaði Mánudaginn 29. október kl. 9—16.30 verður haldinn fundur í Rannsókna- stofnun landbúnaöarins, Keldnaholti, um tölvur og reiknilíkön i landbúnaði. Megináhersla verður lögð á að kynna hugmyndir um notkun reikni- likana viö rannsóknir og skipulagningu á framleiðslu. Þá verður fjallaö um hagnýta notkun reiknilíkana við skipu- lagningu rannsókna og viö leið- beiningastörf og tölvunotkun hjá bænd- um í framtíðinni. Þess er vænst að fundurinn veiti aukna innsýn í þá möguleika sem reikni- og tölvutækni býöur upp á og stuðli að því að íslenskur landbúnaður fylgist með í hinni öru þróun á þessu sviði. Að undirbúningi fundarins hefur starfað hópur áhugamanna um þessi mál frá landbúnaðarráðuneytinu, Rannsóknastofnun landbúnaðarins, Búnaðarfélagi Islands, Háskóla Is- lands og Bændaskólanum á Hvann- eyri. I SBF (0T1 Sænskir bremsuborðar í vörubíla og m.a. Volvo 7-10 12 framhj. kr. 1430,- afturhj. kr. 1680,- búkkahj. kr. 1190,- Scania 110-141 framhj. kr. 1220,-, afturhj. kr. 1770,-, búkkahj. kr. 1220, Verslun með varahluti í vörubíla og vagna Veislusalir Veislu- og fundaþjónustan. If-j Höfum veislusali fyrir hvers konar samkvæmi og mannfagnaði. IF4 2 salir, 30— 100 manna og 100—200 manna. Fullkomin þjónusta og veitingar. Vinsam/ega pantið tímanlega fyrir árshátíðina — afmælið — brúðkaupið eða ferminguna. RISIÐ — veislusalur Hverfisgötu 105 stmar: 20024 — 10024 — 29670 OSRAM CIRCOLUX “ stílhreint, fallegt Ijós sem fæst í ýmsum útfærslum, hentar stundum í eldhús, stundum í stofu eöa hvar annars staöar sem er - allt eftir þínum smekk. JÓN LOFTSSON HF. RAFBÚÐ HRINGBRAUT121 SÍM110600 OSRAM LJÓSLIFANDI ORKUSPARNAÐUR KÆRIRÐU ÞIG UM LÁGA RAFMAGNSREIKNINGA? OSRAM Ijós og lampar eyöa broti af því rafmagni sem venjuleg Ijós eyöa og lýsa þó margfalt meira. OSRAM flúorsent Ijós eyöa 11 wöttum þegar þau bera 75 watta birtu. Svo endast þau miklu lengur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.