Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1984, Blaðsíða 3
DV. MANUDAGUR 29. OKTOBER1984.
3
Sfldveiðin:
Mun meira saltað en
á sama tíma í fyrra
Sumir bátar búnir að veiða tvöfaldan kvóta
Það sem af er síldarvertíöinni í
haust hefur verið saltaö mun meira en
á sama tíma í fyrra. Þá var búið að
salta í um 60 þúsund tunnur en núna
um helgina var búiö að koma síld fyrir
iyfir 81.400 tunnum.
Veiöi i hringnót og reknet hófst aö
kvöldi 30. september sl. en veiði í
lagnet hófst 10. ágúst. Alls fengu 50
bátar leyfi til veiða i reknet en 101 bát-
ur leyfi til hringnótaveiða. Kvótinn á
bát er 360 tonn en heimilt er að fram-
selja kvóta á milli báta — þó aldrei
meira en tvo kvóta á bát þannig að
hver bátur getur komið mest með að
landi 720 tonn.
Nokkrir bátar eru þegar búnir aö
veiða upp í kvóta sinn og komnir langt
með kvóta sem þeir hafa fengið af öðr-
um báti og jafnvel búnir með hann líka
eins og Sigþór frá Húsavík og fleiri.
Sildin sem veiðst hefur er sögö
magrari en sú sem veiddist í fyrra og
lítið verið af stórsíld i aflanum núna.
Alls hafa 42 söltunarstöðvar tekið á
móti síld í haust. Eru þær á 21 stað á
landinu eða allt frá Siglufirði austur
um til Akraness.
Mest hefur verið saltað í Grindavik
eða samtals 17.585 tunnur. Næst kemur
Eskifjörður með 8.963 tunnur, þá
Reyðarfjörður með 7.687 tunnur og
Þorlákshöfn með 7.094 tunnur.
Fáir reknetabátar eru byr jaðir veið-
ar. Af þeirri sQd sem þegar er búið að
salta hafa hringnótabátarnir komið
meö nær allan aflann en afli rekneta-
bátanna er nú um 3.200 tunnur.
-klp-
Það hafur verið mlk/ð að gara i söltunarstöOvumm sem aru aUt fri SiglufírOJ
austur um tU Akraness. Þessl mynd var tekln i Þoriikshöfn en þar hefur nú
veriO sattað I yfír 7000 tunnur. DV-myndEJ.
Djúpivogur:
Opinberir
starfsmenn
á fullu í síld
„Hér eru opinberir starfsmenn á
fullu í sildinni og hafa helmingi meiri
tekjur en í sínum föstu störfum.” Þess-
ar fréttir bárust austan af Djúpavogi;
og þaö sama mun vera uppi á teningn-
um á öðrum stöðum þar eystra.
Aðfaranótt sunnudags fengust um 700
tonn af sild i Stöðvarfiröi. Sá afli ætti
að fylla 7000 tunnur sem er með því
betra sem gerist. Stjömutindur frá
Djúpavogi fékk þar meira en fullfermi
og varð að fá aðstoð við að koma aflan-
um að landi, alls um 300 tonnum. Sild-
in, sem veiðst hefur nú síðustu daga, er
að sögn verkenda átulaus og vel fallin
tU söltunar. Nú um helgina höfðu
borist að landi um 100 þúsund tunnur.
Það er nær helmingur þess sem búið er
að semja um sölu á tU Rússlands og
Skandinavíu. Þá er enn von um að
Rússar bæti við sína samninga, e.t.v.
40—80 þúsund tunnum. En jafnvel þó'
svo fari vantar enn allmikið upp á aö
öll síldin sem má veiða hafi verið seld.
Þeir á Djúpavogi hafa verið manna
iðnastir við að koma síldinni i tunnurn-
ar. Hjá Búlandstindi hefur veriö saltaö
í 10 þúsund tunnur og er það nú hæsta
söltunarstöðin. Það hafa þvi verið
mikil umsvif þar á staðnum þessa
haustdaga og verkfallið, sem viöa
plagar menn, ekki haft teljandi áhrif.
T.d. hafa tunnur verið tollafgreiddar
án nokkurra tafa hjá sýslumanninum
á Eskifirði.
-GK.
Vextir:
Lækkaðir og
samræmdir
Vextir af verðtryggðum útlánum
verða lækkaðir og samræmdir en það
er niðurstaöan úr viöræðum banka-
stjómar Seölabankans við innláns-
stofnanir en viðræður þessar voru
haldnar vegna þess að vextir hinna
einstöku innlánsstofnana voru orðnir
verulega mismunandi í kjölfar þess að
vextimir voru gefnir frjálsir.
Lækkun vaxta á nýjum verðtryggð-
um lánum mun nema 1—2%. Innláns-
stofnanir munu hver fyrir sig tUkynna
gUdistöku þessara vaxta af lánum með
verðtryggingu miðað við lánskjara-
vísitölu en þeir verða sem hér segir:
1) Lánstimi aUt að 21/2 ári 7%.
2) Lánstimiminnst2 l/2ár8%.
Jafnframt þessu verða breytUegir
vextir af eldri lánum, veittum fyrir 11.
ágúst sl., færðir tU sama horfs.
Sjá næstu opnu
-FRI.