Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1984, Side 5
DV. MÁNUDAGUR 29. OKTOBER1984.
5
Tímabær er ný auglýsingastofa - gjörólík öllum þeim
sem fyrir eru á Islandi. Viö förum alveg nýjar leiöir í
vinnubrögðum. Leiöir sem gera okkur m.a. kleift aö bjóöa
auglýsingahönnun fyrir fast, fyrirfram ákveöiö, lágt verö og
ókeypis ráðgjöf um kynningar- og auglýsingamál. Nökkuö
sem íslenskum fyrirtækjum hefur ekki boðist áöur. Viö
önnumst alhliða auglýsingaþjónustu fyrir útvarp, sjónvarp,
dagblöð og tímarit, gerum bæklinga, plaköt og dreifibréf,
önnumst almenningstengsl o.s.frv. o.s.frv.Við vinnum hratt
og bjóöum nýtt greiöslufyrirkomulag.
Við sem stöndum að stofnun þessa nýja fyrirtækis
höfum í mörg ár rekið Auglýsingaþjónustuna hf. og munum
að sjálfsögðu halda því áfram. Sú auglýsingastofa hefur
ásamt fjölmörgum öðrum staðið á bak við miklar framfarir í
auglýsingagerð hérlendis á undanförnum árum.
Fyrir atbeina vandaðra auglýsingastofa er auglýsingagerð
nú orðin viðurkennd starfsgrein sem krefst reynslu og
sérþekkingar.
Tímabær verður á margan hátt rekinn með öðru sniði en
tíðkast á öðrum auglýsingastofum. Hraðinn verður meiri,
verðið um leið lægra, viðskiptaskuldbindingar engar o.fl.
o.fl. Þetta eru leiðir sem taka mið af nýjum aðstæðum í
íslensku efnahagslífi, leiðir sem fylla upp í stórt gat í
faglegri þjónustu við íslenska auglýsendur. Þessi nýja
þjónusta er byggð á margra ára reynslu og þekkingu
Auglýsingaþjónustunnar - en nú reynum við ný
vinnubrögð sem henta vel ýmsum þeim fyrirtækjum sem
telja Sig ekki hafa átt samleið með hefðbundnum
auglýsingastofum.
Fast og fyrirfram ákveðið
lágt verð
Viö vinnum eftir verðskrá sem viðskiptavinurinn getur kynnt sér áöur
en hann gengur til viðskipta. Viö tökum ákveðna upphæð fyrir hvert
verk, gerum um þaö samning og stöndum viö hann. Allir verkþættir
kosta ákveöna upphæö, - textagerö, Ijósmyndun, útlitsteikning,
uppsetning o.s.frv.
í neðangreindum verðlista sýnum viö fast verð okkar á ákveönum
verkþáttum. Einföld auglýsing, venjuleg eöa flókin, er okkar tilraun til
þess aö staöla verð. í sömu auglýsingu getur hins vegar veriö t.d.
einfaldur texti, flókin útlitsteikning, venjuleg Ijósmyndun o.s.frv. Oft
getur komiö fyrir aö auglýsing þurfi meiri vinnu en hér er gert ráö fyrir,
en í slíkum tilfellum verður gerö grein fyrir því fyrirfram og siöan unniö
eftir föstu verötilboði i hvern verkþátt. Á sama hátt veröa bæklingar,
sjónvarpsauglýsingar o.fl. meðhöndlað.
Eitt er Ýíst. Þú færö enga bakreikninga, engar óvænta hækkanir eftir
aö vinna er hafin. Og viö tryggjum þér annaö: Hönnunarkostnaður
verður ávallt í eðlilegu samræmi viö birtingarkostnað auglýsingarinnar.
Slíkt skiptir miklu máli.
Við vinnum hratt
Þú kemur meö verkefniö og segir hvenær þú þarft aö fá þaö klárað, -
eftir einn sólarhring eöa tvo - eöa viku. Viö stöndum við þaö sem viö
lofum. í veröskránni hér aö framan er boðið upp á lágt verö fyrir ýmsa
þá þjónustu sem á auglýsingastofum tekur oft langan tima aö vinna.
Okkar leiö til aö létta á kostnaöi er fólgin i hrööum vinnubrögöum.
Þegar viö vinnum eftir staölaðri veröskrá er gengið beint til verks,
vinnunni sett ákveöin timamörk og vandaö til verksins eins og frekast er
unnt innan þeirra marka. Viö getum einnig sett okkur djúpt ofan í
hlutina, unniö markaösrannsóknir, kannaö aögeröir keppninauta o.s.frv.,
en um þaö veröur aö semja sérstaklega.
Nýtt greiðslufyrirkomulag
Þú veist upp á hár hvað verkið mun kosta áöur en þú lætur vinna þaö.
Viö pöntun er gengiö frá veröinu í samræmi viö verðlistann. Sé um
margbrotna vinnu aö ræða tekur Timabær eins sólarhings frest til aö
vinna tillögur um útlit og gefa upp endanlegt verö. Þegar viöskipta-
vinurinn sér auglýsinguna greiöir hann hönnunarkostnaöinn, t.d. meö
30-45 daga víxli, og greiöir væntanlegar auglýsingabirtingar í fjölmiðlum
meö víxlum á gjalddaga 15. næsta mánaöar eftir að auglýsingin birtist.
Tímabær skuldbindur sig meö skriflegum samningi til þess aö birta
auglýsinguna nákvæmlega eftir samþykktri birtingaáætlun.
Fyrir milligöngu Timabæjar nýtur viðskiptavinurinn hæsta mögulega
afsláttar hjá hverjum fjölmiöli. Fyrir uppsetningu birtingaráætlunar,
eftirlit með réttum dagsetningum og staðsetningum, sendingu
auglýsingafilma til fjölmiðla o.fl. greiöir viöskiptavinurinn 15% umsjónar-
þóknun sem bætt er viö nettóverö auglýsinganna.
Ókeypis ráðgjöf
Viö bjóöum fyrirtækjum sem ekki hafa mikla reynslu af auglýsinga-
málum aö hitta ráögjafa okkar án nokkurs endurgjalds. í slíkum tilfellum
leiöbeinum við um framsetningu i auglýsingum, um auglýsinga-
birtingar, heppilega fjölmiöla, um aörar kynningarleiöir og um
fjárhagslegu hliöina svo eitthvað sé nefnt. Þetta er hlutlaus og einföld
ráögjöf án nokkurra skuldbindinga um frekari viðskipti viö Timabæ. Ef
til verulegs ráögjafarstarfs kemur (markaösathuganir o.fl.) verður samiö
um þaö sérstaklega.
Engar skuldbindingar
Þessu nýja fyrirkomulagi fylgja engar skuldbindingar af hálfu
viðskiptavinarins. Þú getur skipt viö okkur einu sinni eða oftar, okkar
vegna máttu vera í viöskiptum við aörar auglýsingastofur - og reyndar
er ekki úr vegi aö aðrar auglýsirigastofur, sem og dagblöð og tímarit,
muni notfæra sér skyndiþjónustu okkar þegar um einfaldar
uppsetningar er aö ræöa en tími, gæði og verö skipta samt máli. Smærri
fyrirtæki og verslanir, einstakar deildir stórfyrirtækja og allt þar á milli
eru á meöal væntanlegra viöskiptavina Timabæjar.
Að lokum
Við sjáum um auglýsingagerö og kynningarstörf fyrir allar tegundir
fjölmiölunar. Á okkar vegum starfa margir af virtustu
auglýsingamönnum landsins, auglýsingateiknarar, útlitshönnuöir,
textageröarmenn, Ijósmyndarar, blaðamenn, tæknimenn viö sjónvarps-
auglýsingar o.fl. I þeim efnum njótum viö auk eigin starfsfólks starfs-
manna og viöskiptasambanda Auglýsingaþjónustunnar og í gegnum
hana tengjumst við SlA, Sambandi islenskra auglýsingastofa, höfum
aðgang aö upplagseftirliti SlA og Verslunarráös Islands og öðrum
mikilvægum gögnum. Af sömu ástæöu vinnum við eftir siöareglum
Alþjóða Verslunarráðsins og tryggjum þér góðar og vandaðar
auglýsingar sem geröar eru eftir viöurkenndum aöferöum.
HAFNARSTRÆTI 15 - SlMI 16840
OPIÐ ALLA VIRKA DAGA KL. 9-5
VERÐSKRÁ FYRIR AUGLÝSINGAR:
Einföld Venjuleg Flókin
Ráögjöf 0 0 0
Útlitsteiknun (Skyssur. val á letri, myndastærö o.fl.) 750 1.200 1.950
Textavinna (Slagoröasmiö. finslipun texta, frum- hönnun texta. prófarkalestur o.fl.) 450 900 1.800
Uppsetning (Uppliming letwrs. stækkun fyrirsagna og lokafrágangur til filmugerðar (meö efms- kostnaöi)) 1.350 1.950 2.850
Sérteikningar (Sérteiknaöar myndir. skýringarmyndir. tækniteiknun o.fl (meö efniskostnaöi)) 1.200 1.950 3.300
Setning (Aðkeypt tolvusetmng á letri. séruppsetning fyrirsagna o.fl, (meö sendmgarkostnaöi)) 480 480 860
Ljósmyndun (Svart/hvitar myndir) 1.800 2.500 4.200
DÆMI UM VERÐ FYRIR EINSTAKAR AUGLÝSINGAR
A) Einföld auglýsing.
Forsendur: Texti og Ijósmynd koma frá viö-
skiptavini Auglýsingunm er skilaö (þess
vegna samdaegurs) útlitsteiknaöri til dag-
blaöa eöa timarita sem annast siöan upp-
setningu og frágang samkvæmt fyrirmælum
Timabæjar
Verö
Útlitsteiknun (einfold) ..... kr 750
Alls kr. 750
C) Venjuleg auglýsing.
Forsendur Texti kemur frá viöskiptavim
Timabær annast Ijósmyndun, útlitsteiknmgu,
uppsetningu og fragang
Verö:
Úthtsteiknun (venjuleg)
Ljósmyndun (einfold)
Uppsetning (venjuleg) ,
AÖkeypt setning .
kr 1.200
kr 1.800
kr. 1 950
. kr. 480
Alls kr. 5.430
B) Einföld auglýsing.
Forsendur: Ljósmynd kemur tilbúin frá
viöskiptavim og grófar hugmyndir aö texta.
sem Timabær lagar til og breytir ef þarf
Auglýsingun.ni er skilaö tilbúinni til dagblaöa
eöa timarita
Verð
Útlitsteiknun (einfold) ... kr. 750
Textavinna (einfold). kr. 450
Uppsetmng (emf. m/efmsk) . kr 1 350
Aökeypt setning ........... kr 480
Alls kr. 3.030
D) Flókin auglýsing.
Forsendur Tímabær þarf aö hafa svolitiö fyrir
þessan' Viö onnumst nær alla hugmynda-
vmnu. textagerö. I|ósmyndun. útlitsteikmngu.
uppsetmngu og frágang upplystngaríkrar
auglýsmgar. en imyndum okkur samt aö þegar
buiö er aö skipuieggja auglýsinguna og
ganga írá texta og útlitsteikningu se upp-
setmngin fremur auðveld
Verö
Útlitsteiknun (flókin) kr 1950
Textavmna (flókin)........... kr 1800
Serteikmng (venjuleg) kr. 1 950
Uppsetmng (venjuleg) . kr, 1 950
Aökeypt setmng kr 860
Alls kr. 8.510
Allt okkar starf byggir á föstutn verðtilboðum
- Þlt gtreiðir aðeins það sent við semjum um
fyrirfram.
Vinsamlegast geymdu þessa auglýsingu. Þetta er mikil lesning - en hún er
vonandi fróöleg og gæti skipt þig miklu máli.
TÍMABÆR