Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1984, Page 14
14
DV. MÁNUDAGUR 29. OKTOBER1984.
FORUMIFRI
FERÐUMSTMB)
FEWAMIÐSTÖÐINNI
FARSEÐLAR UM ALLAN HEIM!
-Æm riS| ||
Helgar- og vikuferðir. Brottför alla fimmtudaga
ÍSTOKKHÓLMUR
Helgar- og vikuferðir. Brottför alla fimmtudaga
GRIEG
GRENJAR
Um þaö má sennilega lengi deila,
hvort flokka eigi íslenskt þjóöfélag
undir menningarþjóöfélag. Hitt er
sýnna, aö hér á landi er sá hópur ekki
stór, sem nýtur þess í raun aö teyga af
brunni hinna sígildu lista. — Þessi
staöreynd opinberast við hin ýmsu
tækifæri í daglegu lífi.
Auðvitað er orðið menning teygjan-
legt og getur sem best átt viö hvaðeina,
sem maðurinn tekur sér fyrir hendur,
þegar frá er skilið þaö, sem hvert
þjóöfélag fyrir sig skilgreinir sem
refsivert athæfi.
Menningarþjóöfélag verður samt oft
rýrt í roði, þegar tekiö er til viö að tí-
unda algenga þætti í umgengni og
aöstæðum eða fyrirkomulagi, sem
flestir telja sjálfsagöa og eru til staðar
hjá all-flestum þjóðum — en finnast
ekki hjá öðrum. Vmsir þessara þátta,
I
III
Helgar- og vikuferðir.
Brottför alla föstudaga.
HELGARFERÐ: Flug og gisting
m/morgunverði, akstur frá flugvelli og
fararstjóri.
Verð í tvíbýli frá kr.
GLASGOW
HELGARFERÐIR: brottför fimmtudaga
og laugardaga. Flug og gisting
m/morgunverði á fyrsta flokks hóteli. Verð
tvíbýli frá kr.
9.370.
HELGARFERÐIR: Brottför fimmtudaga
og laugardaga. Flug og gisting
m/morgunverði. Verð í tvíbýli frá kr. 9.370.00
LIIXiMBOURG 10.765.
Helgar- og vikuferðir.
HELGARFERÐ: Flug og gisting
m/morgunverði. Verð í tvíbýli frá kr. 10.765.00.
PARIS
14.241.
HELGAR- OG VIKUFERÐIR
Flogið um Luxembourg til Parísar.
HELGARFERÐ: Flu gog gisting
m/morgunv. Verð í tvíbýli frá kr. 14.241.00.
KAUPM.H0FN 10.334.
Helgar- og vikuferðir.
Brottför alla föstudaga.
HELGARFERÐ: Flug og gisting
m/morgunverði. Verð í tvíbýli frá kr. 10.334.00.
LL
15.568.
Ilelgar- og vikuferðir.
Brottför alla föstudaga. Flogið um
Luxembourg.
HELGARFERÐ: Flug og gisting
m/morgunverði. Verð í tvíbýli frá kr. 15.568.00.
CHSE
<L
23.909.
Flogið um Luxembourg. Flug og gisting í
Agadir í tvær vikur auk 3ja nátta gistingar
í Luxembourg — 17 daga ferð.
Verð í tvíbýli frá kr. 23.909.00.
Alltaf er nú notalegt að skreppa til
Kanaríeyja úr skammdeginu á Islandi. —
Fjölbreytt úrval gististaða, margskonar
ferðamöguleikar. Fáðu upplýsingar hjá
okkur um ferðamátann, sem hentar þér.
SKIÐAFERDIR 22.098.
— Viku-, 2ja vikna og 3ja vikna ferðir.
Beina flugið til Austurríkis byrjar 22. des.
— Góðir gististaðir í Mayrhofen.
Verð í tvíbýli m/hálfu fæði í 2 vikur frá kr. 22.098.00.
Bferda..
MIÐSTODIN
AÐALSTRÆTI 9 S. 28133
Gegndarlaust ok-
ur á heitu vatni
Hvaða ráðherrar eru það sem
koma á þeirri ósvífni að hækka
læknisþjónustu og lyf fyrir öryrkja
og aldna ásamt þeim sem lægstu
launin hafa fyrir sína vinnu. Og
koma þeirri fásinnu á að nú þarf að
fara tvisvar í mánuði til að fá sama
skammt af brýnustu lyfjum sem
áður var hægt að fá einu sinni í mán-
uði. Þetta veldur mikilli fyrirhöfn
fyrir sjúklinga, að ég tali nú ekki um
það óþarfa ónæði sem þetta veldur
læknum að þurfa að skrifa tvö resept
í mánuði fyrir tugi fólks, í staö
einnar heimsóknar áður á mánuði.
Væri ekki hægt aö nýta betur hita-
veituvatnið en láta stóran hluta af
sterkheitu vatni renna í göturæsin
engum til gagns? Væri til dæmis ekki
hægt aö láta þetta vatn renna í upp-
hitunarleiðslur sem væru undir
gangstéttum, alla vega neðst í gamla
bænum, eða þá í íjörnina svo hún
héldist auð á vetrum? Því ég sé ekki
betur en hætt sé að nota hana eins og
var til skautaíþrótta. Enda er hún
sjaldan með slétt svell. En hætta í
staðinn aö okra svo á upphitun húsa
lágtekjufólks sem stendur ekki leng-
ur undir því að hita hús sín upp fyrir
gegndarlausu okri á heitu vatni.
Þaö ganga yfir okkur borgarbúa
stanslausar hækkanir hjá hitaveit-
unni og virðist ekkert lát ætla að
veröa á þessu okri. Það er stórfurðu-
legt hve hitaveitan fær hækkanir
með stuttu millibili. Síðasti reikning-
ur sem ég fékk var sá langhæsti sem
ég hefi fengið og það í heitasta mán-
uði ársins og ég get vart sagt að ég
skrúfi frá heitu vatni. Það er aðra
sögu að segja meö rafmagnsveituna,
þar er verði mjög stillt í hóf. Og hefi
ég aldrei fengið reikning þaöan sem
ég hefi verið ósáttur með. Og hefur
þó rafmagnsveitan staðið nýverið að
byggingu á stórhúsi yfir sig við Ar-
múla. Og svo þar að auki hefur hún
annast og gerir enn að sjá um inn-
heimtu hitaveitunnar, þessarar
blessuðu, langsoltnu stofnunar.
Eg gæti bent á fjöldann allan af
óþarfa peningabruðli þess opinbera
en það er bara tilgangslaust að sinni,
þeir sem ráða hlusta ekki á aövaran-
ir. Það mætti heldur spara bruðlið en
læknishjálp og lyf. Svo ég ræði nú
meir um hitaveituna, ekki er það já-
kvætt fyrir þá stofnun aö í fyrra í
október eða nóvember, ég man ekki
hvort var, fór fram viðgerð hjá hita-
veitunni með þeim afleiðingum að
þeir lokuöu fyrir heita vatnið um
stund. En þegar því var hleypt á
aftur kom kolsvört drulluleðja inn á
alla ofna því sigtið á inntakinu fyllt-
ist strax og leðjan rann hindrunar-
laust inn á kerfið.
Meira að segja fór mælir hitaveit-
unnar úr lagi en þeir hitavatnsmenn
voru snöggir aö bæta úr því. Ég varð
ÞÓRARINN
BJORNSSON
VERKAMAÐUR
aö láta taka alla ofna frá og skola þá
út og hreinsa en ekki nóg með það,
eftirköstin urðu þau að eftir þetta
kom slíkt loft með vatninu inn á kerf-
ið að ég varð að opna loftkrana uppi
á háalofti tvisvar sinnum á sólar-
hring, sem sé kvölds og morgna, í all-
an vetur þar til í júní sl. Þá heyrast
skyndilega miklir skruðningar í
leiðslum og ofnum svo ég hélt aö
kerfið í húsinu væri að springa. En
hvað skeður, síöan er allt loft horfiö
af ofnum og allt í lagi eins og það var
við inntöku á ofnana, ekkert loft
meir.
Þessi sæla stóð í um hálfan mánuð
en nú aftur um 21. júní fór allt fyrir-
varalaust í sama horf eöa verra. Ég
kvartaði viö hitaveituna strax og
viðgerðarmaðurinn var búinn að
gera allar athuganir á kerfinu í fyrra
og hann fullyrti að ekkert væri
athugavert við það. Þetta loft kæmi
inn með vatninu. Það væri yfirfalls-
lyfta á kerfinu, hún væri í lagi ef allt
væri normal. En hún gæti ekki tekið
við þessu óeðlilega mikla lofti sem
inn i húsið streymdi með heita vatn-
inu. Hann sagðist ekkert geta gert
meira fyrir mig í þessu máli og við
þaðhefursetið.
Tveir af sjö ofnum hitnuðu alltaf
en hinir fimm ýmist volgnuðu eða
voru kaldir. 1 vetur varð ég að kynda
með rafmagnsofnum til þess að líft
væri í húsinu og getur hver og einn
ímyndað sér hvaða aukakostnað og
fyrirhöfn þetta hefur haft í för með
sérfyrirmig.
Viö þetta hefi ég orðið að búa í
um átta mánuði og ekki séö fyrir
endann á þessu hev. enn. Ég
kvartaði eins og ég tók fram strax
við hitaveituna.
Þeir komu á staðinn tvisvar sinnum
og sögðu, þetta er ekki okkar mál.
Það er fullur kraftur á vatninu inn í
húsið, það sýndu heitavatnskranarn-
ir, úr þeim kom sjaldan loft. Við ger-
um ekki við innanhússlögn var
svarið (nema demba á mig fullum
reikningumfyrir gallaöavöru).
Það stendur ekki á þeim. Sá sem
seinna kom hreytti í mig ónotum og
sagöi að þaö kvartaði enginn hér á
tanganum nema ég um loft á ofnum
og aö lögnin innanhúss væri ekki í
lagi, sagði hann. Sem þó var búin að
vera í besta lagi frá byrjun. Hann
fullyrti þetta, hinn vitri þjónn hita-
veitunnar. Mér líst ekki á að ég fái
miklar bætur eða afslátt, eða niður-
fellingu á nokkrum reikningum þótt
ekki væri nema þrjá til fjóra reikn-
inga. Trúlega kostar þetta mig mála-
ferli, því ég gefst ekki upp við að ná
rétti mínum hyað sem það kostar.
En fullyrðing mannsins um að ekki
kæmi loft annars staðar á tanganum
inn á ofna er mjög skiljanleg þar sem
mitt hús er fyrsta húsið á hitavatns-
lögninni hér á tanganum. Og þess
vegna kemur loftið fyrst inn á mitt
hús. Þetta virtust þeir eftirlitsmenn
ekki skilja.
Svo óheppinn var ég að vera síðast-
ur til að láta teng ja inn á mitt hús. Og
af þeim völdum varö hitaveitan mér
dýrust, því aö í millitíðinni fékk hita-
veitan helmings hækkun á heim-
taugagjaldi. Ekki nóg með það. Þeg-
ar þeir voru búnir að leggja hitalögn-
ina inn í húsið hafði ég ekki tök á aö
fá pípulagningameistara fyrr en
eftir nokkum tíma, en hvað skeður?
Hitaveitan fær aftur hækkun á heim-
taugum í millitíðinni. Þeir skella
aftur á mig gjaldi á þá heimtaug sem
þegar var búið að leggja. Ég held
þetta sé fátíð ósvífni og okur að ekki
sé meira sagt. Pípulagningameistar-
inn sem tengdi svo inn á ofnana mót-
mælti þessu harðlega við hitaveituna
fyrir mína hönd, hann sagði þá ekki
geta látið mig borga tvisvar fyrir
sama verkiö. En það var eins og við
stein að tala við þessa herra. Við
þetta sat. Ég greiddi tvöfalt fyrir
sama verk.
Svona starfa einokunarfyrirtæki
þess opinbera. Ég hefi margt fólk
sem getur borið vitni um þetta.
Einnig sem geta borið vitni um þetta
mikla loft sem kom inn á kerfið í
vetur og sumar og kemur enn að
stuttum tíma í júní undanskildum.
Og margir vita hvernig upphitunin
gekk í vetur. Ég hefi ekki tekið
ákvörðun enn til hvaða ráða ég gríp
til þess að fá leiðréttingu mála
minna. Én við þessi málalok læt ég
ekki sitja.
Þórarinn Björnsson.