Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1984, Qupperneq 25
DV. MANUDAGUR 29. OKTOBER1984.
25
íþróttir
fþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
mörk. Pétur skoraði einnig með skalla í gær.
Pétur
skoraði
með skalla
— þegarFeyenoord vann
stórsigur, 5-0, yfir Sparta
íRotterdam
Frá Kristjáni Bernburg, fréttamanni DV í Belgíu:
Pétur Pétursson skoraðl fallegt mark með skaila
þegar Feyenoord lagði Sparta Rotterdam að velli
5—0 í hollensku 1. deUdarkeppninni og hefur Pétur
nú skorað fimm mörk fyrir Feyenoord.
Þaö var belgíski landsUðsmaðurinn Ruud GulUt
sem átti snilldarleik í „Rotterdamslagnum”. Hann
skoraði fyrsta mark leiksins en það var hans fyrsta
mark i sjö deUdarleikjum i röð. GuUit lagði siðan
upp annað markiö sem Pétur skoraöi. Pétur kastaði
sérfram og skaUaöi knöttinn i markið.
André Hoekstra skoraði síðan þriðja markið og
GulUt það f jórða — með glæsUegu langskoti. Mario
Been guUtryggði síðan sigurinn, 5—0.
Þjálfari Feyenoord til Grikklands?
Eftir leikinn í gær tilkynnti Thijs Libregts, þjálf-
ari Feyenoord, að það gæti farið svo að leikurinn
heföi verið sá síðasti sem hann stjórnaði Feyenoord-
liðinu þar sem hann hef ði fengiö freistandi tUboö f rá
gríska félaginu Aris Salonika. Ef Libregts fer til
Grikklands tekur Wim van Hanegem, fyrrum lands-
liösmaður Hollands og leikmaður með Feyenoord,
viö stjórninni en hann er nú aöstoðarmaöur Li-
bregts.
Eindhoven er efst í Hollandi með sautján stig eftir
tíu leiki. Ajax hefur fhnmtán eftir átta leiki. Feyen-
oord er í f jórða sæti meö þrettán stig eftir níu leiki.
-KB/-SOS
Heimir lék
með Excelsior
Frá Krlstjáni Bernburg, fréttamanni DV í Belgíu:
— Heimir Karisson úr Víkingl, landsUðsmaður í
knattspyrnu, fékk atvinnuleyfi í HoUandi á föstu-
daginn. Helmir lék sinn fyrsta leik með Excelsior
frá Rotterdam gegn Utrecht. Helmir og félagar töp-
uðu, 1—1, í Utrecht og náði Heimir ekki að skora í
leiknum. -SOS
„Við getum leikið mun
betur en þetta”
— sagði Einar Bollason, þjálfari Hauka, eftir að menn hans höfðu unnið
Val, 83-80, í úrvalsdeildinni í körfu
„Það er gaman að byrja á svona
sigri. En það er langt frá því að ég sé
ánægður með mina menn. Við þurfum
að laga marga hluti. Leikurinn var
yfirhöfuð skemmtUegur og spennandi
og áhorf endur fengu mikið fyrir aurinn
sinn,” sagði Einar BoUason, þjálfari
Hauka í körfuknattleik, eftir að Hauk-
ar höfðu unnið Val í úrvalsdeUdinni í
körfuknattleik í Hafnarfirði í gær-
kvöldi með 83 stigum gegn 80. Staðad í
leikhléi var 39—28 Haukum í vU.
Lengi vel leit út fyrir að Haukar
Dómarinn tóktil
sinna ráða
Það sauð allt upp úr þegar Argentína og
Mexíkó léku vináttulandsleik í knattspymu á
föstudaginu. 300 áhorfendur mddust inn á
völlinn, þegar Mexikanar náðu að Jafna 1—1
— þegar 9 min. vora tU leiksloka. Dómarinn
var þá ekki að tvinóna við hlutina — flautaði
leikinn af. -SOS
myndu fara með stóran sigur af hólmi
en svo fór þó ekki. Strákarnir hans
Einars Bollasonar byrjuðu mun betur
og höfðu um 10 stiga forystu mestan
hluta fyrri hálfleiks.
I síðari háifleik jafnaöist leikurinn
nokkuð og þegar fjórar mínútur voru
til leiksloka höfðu Valsmenn náð sex
stiga forystu, 74—68. Villuvandræði
voru farin að segja til sín hjá Haukum
og flestir aðdáendur liðsins svartsýnir
á heimasigur.
En Haukarnir tóku sig saman í and-
litinu síðustu fjórar mínútur leiksbis
og unnu dýrmætan sigur. Liðið leikur
skemmtilegan körfuknattleik en því er
ekki að neita aö leikmenn liösins gera
furðulegar skyssur inni á milli. Ef leik-
menn liðsins geta komist yfir þennan
galla á leik liðsins veröa Haukarnir
annaö hvort í fyrsta eða ööru sæti þeg-
ar upp verður staöið í vor. Miklu mun-
ar fyrir liðið að Ivar Webster (áður
Dakarsta Webster) leikur nú með lið-
inu. Hann er kominn með íslenskan
ríkisborgararétt og styrkir liðið mjög
mikiö enda prýðisgóður körfubolta-
maður þar á ferð. Ivar skoraði 19 stig í
leiknum eins og Pálmar Sigurðsson
sem átti góðan leik. Aðrir leikmenn
ættu þó að passa sig á því að treysta
ekki um of á Pálmar. Olafur Rafnsson
skoraði 11 stig, Hálfdán 10, Eyþór 9,
Henning 8 og Kristinn 7 stig. Kristján
Agústsson skoraði 21 stig fyrir Val,
Tómas Holton 16, Torfi Magnússon 14,
Einar Olafsson 13, Leifur Gústafsson 9,
Björn Zoega 2, Páll Arnar 3 og Jón
Steingrímsson skoraði 2 stig.
• Einkunnagjöfin: Haukar. Pálmar
Sigurðsson 3, Ivar Webster 3, Eyþór 2,
Hálfdán 2, Olafur 1, Kristinn 1, og Henning 1.
Valur. Kristján Ágústsson 3, Tómas Holton
2, Leifur 1, Torfi 1, Jóhannes 1, Einar 1, Páll
Arnar 1, Björn Zoega 1 og Jón Steingrímsson
1 Dómarar voru Jón Otti Olafsson og Hörður
Thuliníus. Hafa þeir báðir dæmt betur.
Einkunnir þeirra: Jón Otti 2, Hörður
Thuliníusl. -SK.
Essen enn
taplaust
— Sigurður Sveinsson
skoraði sjö mörk
þegar Lemgo vann
Grosswaldstadt, 18-16
„Þetta var góður og kærkominn sig-
ur og ég er ánægður með minn hlut í
leiknum,” sagði Sigurður Sveinsson
hjá Lemgo en um heigina vann Lemgo
Grosswaldstad á heimavelli, 18—16.
Sigurður kom mikið við sögu í leiknum
eins og hann hefur raunar gert í síð-
ustu leikjum sinum og skoraði
Sigurður sjö af 18 mörkum Lemgo.
Atli Hiimarsson og félagar í Berg-
kamen töpuöu á heimavelli fyrir
Hiittenberg, 21—23.
Alfreð Gíslason og félagar í Essen
eru enn taplausir á toppi Bundes-
ligunnar með átta stig eftir f jóra leiki.
Essen vann Schwabing á heimavelli í
gærkvöldi með 14 mörkum gegn 13.
Leikmenn Schwabing voru miklir
klaufar að tapa þessum leik og leik-
menn Essen voru ekki sannfærandi í
leiknum. -SK.
DAfiANA 11.-16. NÓV
Brottför: 11. nóv. kl. 17.00
Komutími: Heathrow flugvelli
kl. 19.45
Heimferð: 16. nóv. kl. 13.15
Komutími: Keflavíkurflugvelli
kl. 16.10
Gist verður í London á Hótel
Royal National; fyrsta flokks
hótel í miðhorg London.
Innifalið: Flug, gisting í tveggja
m. herb. m/baði í 5 nætur, morgun-
verður og söluskattur. Ferðir til
og frá flugvefli á Hótel Royal
National. Ferðir til og frá hóteli
á aðafleikvanginn í Cardiff
14. nóv.
Verð:
Aðeins kr.
og 250.- kr. flugvaflarskattur til
viðbótar. Staðfestingargjald er
kr. 2.000.- „Óendurkræft“.
Látið skráykkur strax í ferðina hjá
Flugleiðum eða ferðaskrifstofunum.
FLUGLEIÐIR
íþróttir