Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1984, Blaðsíða 28
28
DV. MÁNUDAGUR 29. OKTOBER1984.
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
Úrvalsdeildin íkörfuknattleik:
Útreið Stúdenta í
vn
„Ljónagryfjunni
Ótrúlegir yfirburðir Njarðvíkinga gegn slökum Stúdentum í Njarðvík,
lokatölur 114:68
íslandsmeistarar UMFN möluðu ÍS
mélinu smærra syðra á föstudags-
kvöldið, með hvorki meira né minna en
114 stigum gegn 68, eftir að hafa haft
yfirhöndina í hálfleik, 66—29. Um tima
í seinni bálfleik var munurinn 53 stig
eða 110—57 en þá slökuðu heimamenn
svolítið á og það notfærðu ÍS-ingar sér
og áttu sæmilegan endasprett og
sýndu að sitthvað býr í liðinu ef það
nærsérá strik.
Njarðvíkingar hófu leikinn með sín-
um reyndari mönnum, Gunnari, Val,
Jónasi, Arna og Isak Tómassyni. Náðu
þeir strax öruggri forustu, 29—12. Eft-
ir það skiptu þeir ört um leikmenn og
létu yngri og óreyndari pilta inn á.
Þrátt fyrir það jókst munurinn svo að
sýnt er aö UMFN er búið aö fylla í
sköröin sem mynduöust þegar fimm
leikmenn yfirgáfu liðið í vor. Teitur
örlygsson, Helgi Rafnsson, Ellert
Magnússon og Hafþór Oskarsson, áttu
allir mjög góðan leik og féllu vel inn í
liðið sem var mjög samstillt. Lék hratt
og skipulega, bæði í vöm og sókn sem
oft endaði með fallegum leikfléttum.
Einnig kom vel í ljós að Jónas
Jóhannesson er liðinu mikill styrkur,
sérstaklega í vöm og fráköstum, en
hann er sem kunnugt er kominn aftur
heim í heiðardalinn eftir tveggja ára
f jarveru hjá Reyni í Sandgerði.
r —■
• Valur Ingimundarson — skoraöi 38
stig.
Sigurður sá
Rangers vinna á
Hampden Park
• er nú í Glasgow til að ræða við forráðamenn
Glasgow Rangers
Sigurður Jónsson, hinn cfnilegi
knattspyraumaður frá Akranesi,
var meðal áhorfenda á Hampden
Park í gær þegar Glasgow Rangers
tryggði sér sigur í skosku deílda-
bikarkeppninni — lagði Dundee
United að velli, 1—0.
Sigurður er nú í Glasgow i boði
Glasgow Rangers en eins og DV
hefur sagt frá hefur félagið gert
honum tilboö um aö koma til
félagsins. Sigurður er nú að kanna
aðstæður og ræða við forráöamenn
Rangers.
Það var Ian Ferguson sem skor-
aði sigurmark Rangers eftir send-
ingu frá David Cooper. Þess má
geta að Dundee United hefur aldrei
unnið bikarúrslitaleik í Glasgow.
-sos
Eins stigs sigur ÍBK
gegn Fram
— í 1. deildinni í körfuknattleik, 58:57
Keflvíklngar sigraðu Framara með
aðeins einu stigi í Keflavik á laugar-
daginn i mjög hröðum og spennandi
leik. Liðin skiptust á um forustuna
undir lokin svo ekki varð ljóst fyrr en á
seinustu sekúndum hvor aðilinn færi
meö sigur af hólmi.
Þegar f jórar minútur voru eftir var
staðan 51—50 Fram í vil og skömmu
síðar 53—54, — og með dyggum stuðn-
ingi áhorfenda tókst heimamönnum að
fryggja sér sigur, 58—57.
öskar Nikulásson var einna drýgstur
heimamanna, skoraði 18 stig, og góður í vöm-
ihni. Jón Kr. Gíslason skoraði 16 stig, Guðjón
Skúlason 10. Matti Osvald Stefánsson 8 stig,
Skarphéöinn Héðinsson 4 og Ingólfur Haralds-
son2.
Af Frömurum áttu góðan leik þeir Auðunn
meö 12 stig, Úmar Þráinsson 12 stig, Jóhann
11 stig. Bjöm Magnússon skoraði 6 stig, Guð-
mundur Lárusson 6, Þröstur Kristinsson 4,
Þorvaidur Geirsson 4, Hilmar Gunnarsson 2
stig.
Dómarar vora þeir Hörður Tulinius og
Sigurður V. Halldórsson.
iS-ingarnir, nýliðarnir, voru að
þessu -sinni í hlutverki músarinnar
gegn kettinum en þeir eiga vafalítið
eftir að gera betur þegar á liöur. Liöiö
nær ekki saman en hefur góðum ein-
staklingum á að skipa. Bestir þeirra
voru Ámi Guðmundsson, Guðmundur
Jóhannsson, Bjöm Leósson og Valdi-
marGuðlaugsson.
Maður leiksins; Valur Ingimundar-
son, UMFN.
Stigin. UMFN: Valur Ingimundar-
son 38, Ellert Magnússon 14, Hreiðar
Hreiðarsson 11, Teitur örlygsson 10,
Ámi Lárusson, Gunnar Þorvarðsson,
Jónas Jóhannesson og Helgi Rafnsson
8 stig hver. Hafþór Oskarsson 6 og Isak
Tómasson 5.
IS: Bjöm Leósson 16, Guömundur
Jóhannsson 14, Arni Guömundsson 11,
Valdimar Guðlaugsson 10, Ragnar
Bjartmarz 7, Ágúst Jóhannesson 4,
Karl Olafsson 2 og Þröstur Guömunds-
son2.
Dómarar vora Jón Otti Olafsson og
Hörður Tuliníus, — góðir í auðveldum
og prúðmannlegum leik.
Áhorfendurl75.
• Mark Hateley — skoraði sigurmark Inter Mílanó. Hann er nú markhæstur á
Italíu.
Mark Hateley var
hetja AC Mílanó
þegar félagið vann sigur, 2:1, í„MflanóslagnumM fyrirframan
80 þúsund áhorfendur
Mark Hateley, enski landsliðsmið-
herjinn, var hetja AC Mílanó þegar
félagið sigraði í „Mílanóslagnum” —
lagði Inter Míanó að velli, 2—1, á
heimavelli Inter — San Siro Stadium,
þar sem 80 þús. áhorfendur voru
samankomnir. Þeir borguðu samtals
640 þús. dollara en þaö er metupphæð.
Hateley, sem er markhæstur á Italíu
með fimm mörk í sjö leikjum, skoraði
sigurmark ÁC Mílanó með skalla eftir
sendingu frá Pietro Paulo Virdis. Það
var Inter sem náði forastunni í leikn-
um með marki Sandro Altobelli sem
skoraði eftir sendingu frá Karl-Heinz
Rummenigge. Ray Wilkins átti allan
heiöurinn af jöfnunarmarki AC Mílanó
— sendi knöttinn til Agostino di
Bartolomei sem skoraði 1—1.
• Hateley og Wilkins voru ekki einu
ensku leikmennirnir sem voru í sviðs-
ljósinu á Italíu í gær.
Trevor Francis skoraöi jöfnunar-
mark Sampdoria, 2—2, gegn Torínó á
HMífrjálsum
íþróttum í París
Fyrsta helmsmeistaramótið í frjáls-
íþróttum innanhúss veröur haldið í
París í Frakklandi í janúar á næsta
ári. Mótið fer fram 18. og 19. janúar.
-SOS
síðustu min. leiksins. Galbiati skoraði
fyrst fyrir Torínó eftir sendingu frá
Brasiliumanninum Junior sem skoraði
síöan sjálfur, 2—0, úr aukaspyrnu.
Graeme Souness svaraði 2—1 fyrir
Sampdoria og síðan fékk hann tækifæri
til að skora aftur úr vítaspyrnu. Hon-
um brást þá bogalistin — markvörður
Torínó varði skot hans.
• Verona lagði Fiorentina aö velli,
2—1. Þeir Fontolan og Galderisi skor-
uðu mörk Verona en Pecci fyrir
Fiorentina.
• Juventus og Roma gerðu jafntefli,
1—1. Briaschi skoraði mark Juventus
eftir sendingu frá Platini. Giannini
jafnaði, 1—1, fyrir Roma. Dario
Bonetti hjá Juventus var rekinn af
leikvelli fyrir að brjóta á Brasilíu-
manninum Toninho Cerezo.
• Verona er efst á Italíu — með 12
stig eftir sjö umferðir. Torínó og AC
Mílanó eru með 10 stig, Sampdoría 9 og
Juventus, Fiorentína og Inter Mílanó
eru með8stig.
-SOS
j Framkvæmdastjóri j
S Dtisseldorf rekinn !
Wolfgang Ley, fyrrum blaða-
maður Expressen i V-Þýskalandi,
sem var ráðinn framkvæmdastjóri
Fortuna Diisseldorf sl. sumar, var
reklnn frá félaginu á föstudaginn
eftir að ágreiningur haföi komiö
upp milli hans og forseta félagsins,
Bruno Recht.
Ástæðan fyrir þeim ágreiningi
var að Ley var ekki hrif inn af skrif-
stofustúiku hjá Diisseldorf &em
hefur látið ljós sitt skína óþarflega
mikið að undanförnu og verið með
yfirgang að mati Ley. Framkoma
hennar varð til þess að Ley vildi
láta hana fara en því var forsetinn,
Recht.mótfallinn.
Á fundi á föstudaginn var
ákveðið að láta Ley hætta störfum.
Ley lét það ekki á sig fá heldur
sagöi: — ,JEg sé ykkur á
þriðjudaginn þegar ný stjórn hefur
veriðkosin.”
Aðalfundur Diisseldorf verður
haldinn í dag og er fastlega reiknað
með aö ný stjóm taki við félaginu
að loknum þeim f undi.
-SOS.
þróttir 1 þrótti ir í þróttir f
íþróttir